Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 09.12.2015, Qupperneq 4
Heildarverðmæti vinninga í desember er 107 milljónir króna ÍS LE N SK A/ SI A. IS D AS 7 74 17 1 2/ 15 Verður 30 milljóna króna íbúð í jólapakkanum? drögum út íbúð á þorláksmessu - dregið í hverri viku! Kauptu miða á www.das.is eða í síma 561 7757. DREGIÐ Á MORGUN! Grímsnes Gróðurhús í Grímsnesi splundrað- ist og eyðilagðist í veðurofsanum. ✿ Dæmi um útköll björgunarsveita í veðurofsanum svæði 16 Lambafell Útkall að Lambafelli undir Eyjafjöllum. Talið að ábúandi væri í stórhættu. Við frekari eftirgrennslan var engin hætta á ferðum. Lélegt síma- samband og tungumála- örðugleikar áttu sinn þátt í misskilningi sem þar varð. Hvolsvöllur Hætta skapaðist af þakplötum við bæinn Sunnuhvol rétt við Hvols- völl, talið að þakplötur gætu fokið inn í íbúða- byggð og valdið tjóni. svæði 7 Bolungarvík Þak fauk af hlöðu á bænum Hanhóli. Engin hætta á ferðum. Björgunar- sveitarmenn þurftu frá að hverfa vegna vindstyrks þar sem ekki var hægt að tryggja öryggi þeirra á staðnum. Bolungarvík Flotbryggja losnaði í heilu lagi en margir bátar voru bundnir við flot- bryggjuna. Þetta uppgötvaðist í reglubundnu bryggjueftirliti björgunarsveitarinnar. Náði hún að afstýra stórtjóni og festi flotbryggjuna áður en hún fór á haf út. Hveragerði Rúður sprungu í Garðyrkjuskólanum í Hveragerði, vindur stóð inn í húsið. Náðist að koma í veg fyrir frekara tjón með aðgerðum björgunarsveita. Mikið af lausamunum og umferðarskiltum fuku á svæðinu sem skapaði hættu. svæði 6 Patreksfj. Eitt hús gjöreyði- lagðist á Patreksfirði í ofsaveðrinu. Húsið var mannlaust þegar atvikið átti sér stað. Húsið fauk á haf út og því ekki um hættu að ræða. Patreksfj. Þrjú snjóflóð féllu í nótt við Patreksfjörð. Engin hætta stafaði af flóðunum. Patreksfj. Margar þakplötur fuku af gömlu frysti- húsi í bænum. Skapaði ekki hættu þar sem þær fuku óhindrað á haf út. Höfn Tveir garðkofar fuku á Höfn og rúða sprakk í íbúðarhúsi í bænum. Höfn Nokkur útköll björgunarsveitarinnar á Höfn varðandi fjúkandi girðingar og lausamuni. Engin hætta stafaði af veðri. Keflavík Í Keflavík fuku þök af tveimur húsum sem skapaði hættu þar sem járn- plötur fuku yfir íbúðabyggð. Aðstoð fengin hjá Bruna- vörnum Suðurnesja til að komast upp á annað þakið. Reykjanesb. Þakplötur fuku af klúbbhúsi Golf- klúbbs Suður- nesja. vestm.eyjar Hús í Smáragötu varð fyrir miklum skemmdum. Partur af þakinu fauk af og náði að skemma hús í kring. Nágrönnum gert viðvart og boðið að yfirgefa hús sín og komast í öruggt umhverfi. vestm.eyjar Þakplötur á nýbygg- ingu á hafnarsvæði Vestmannaeyja fuku. Björgunarsveitir lokuðu vettvangi og tryggðu öryggi. vestm.eyjar Á þriðja tug mála í Vestmannaeyjum, þó nokkuð um rúðubrot í húsum. svæði 3 svæði 2 svæði 18 svæði 15 Reykjavík Tveir bátar losnuðu frá bryggju í Reykja- vík. Náðist að koma böndum á annan bát- inn en hinn sökk í höfninni. veðuR Veðurofsinn sem gekk yfir landið í fyrradag og síðustu nótt olli nokkru tjóni vítt og breitt um landið. Rafmagnslaust varð á stórum svæðum þar sem flutningskerfið réð ekki við veðurofsann. „Rekstur flutn- ingskerfisins var tvísýnn og er það enn. Tjón Landsnets er talsvert og talið að það verði líklega yfir 100 milljónir króna,“ segir í tilkynn- ingu Landsnets en línur féllu niður á fimm stöðum á landinu. Óveðrið skall fyrst á Suðurlandinu um miðjan dag í gær með aftakaveðri í Vestmannaeyjum. Síðan færðist óveðrið hægt og rólega yfir landið og um miðja nótt var orðið mjög hvasst á Vestfjörðum og í Skagafirði. Hæst fór vindurinn í 72,6 metra á sekúndu á Hallormsstaðahálsi um ellefu leytið í fyrrakvöld sem samsvarar 260 km hraða á klukkustund. Yrðu menn vart til frásagnar stæðu þeir úti í slíkum vindi. Fréttablaðið hefur náð tali af mörgum formönnum aðgerðastjórna Landsbjargar. Eru þeir á einu máli um að lokun vega hafi minnkað álag á björgunarsveitirnar. Með því móti hafi verið hægt að takast á við öll þau útköll sem bárust. Þeir segja lykilinn að því að lágmarka tjón hafa verið að landsmenn fóru vandlega eftir fyrir- mælum Almannavarna. Veðrið hefði getað valdið stórhættu fyrir erlenda ferðamenn en þar sem allir lögðust á eitt við að koma skila- boðum áleiðis hafi allflestir ferða- menn verið vel upplýstir um stöðu mála. sveinn@frettabladid.is Landsmenn hlýðnir í ofsanum Hæst fór vindurinn í 72,6 metra á sekúndu í óveðrinu í fyrrakvöld. Aðgerðastjórar Landsbjargar segja við- brögð landsmanna við fyrirmælum Almannavarna til fyrirmyndar. Erlendir ferðamenn voru vel upplýstir. MannRéttinDi Innanríkisráðu- neytið hefur metið það svo að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum hælisleitenda á Ítalíu verði ekki taldir slíkir að þeir gefi ástæðu til að ætla að endursendingar þangað muni almennt brjóta gegn alþjóð- legum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda. Lagt er til að meginreglan verði sú að hælisleitendur verði endursendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en hins vegar skuli áfram ávallt skoða hvert tilvik fyrir sig og meta aðstæður viðkomandi einstaklings áður en ákvörðun er tekin. Áfram skal miðað við þá fram- kvæmd íslenskra stjórnvalda síðan í maí 2014 að þeir sem teljist vera í sér- staklega viðkvæmri stöðu skuli ekki sendir til Ítalíu. – kbg Má senda hælisleitendur til Ítalíu 400 útköllum sinntu björgunar- sveitir í óveðrinu. MannRéttinDi Razia Stanikzai sem starfar hjá afganska menntamála- ráðuneytinu og Fatima Hossaini, fyrrverandi nemandi í Jafnréttisskóla SÞ, eru á meðal fyrirlesara á málþingi sem UNICEF og UN Women halda á fimmtudag kl. 8.30 á Hótel Sögu um menntamál stúlkna í landinu. Þær tala frá Kabúl. Nemendum í Afganistan fjölgar stöðugt og mikill árangur hefur náðst í menntamálum í landinu. Árið 2001 voru færri en ein milljón barna í skóla – og nánast engar stúlkur – en í dag eru nemendur vel yfir átta milljónir. Nærri 40% þeirra eru stúlkur. Málþingið er í boði forsætis-, utan- ríkis- og velferðarráðuneytanna. Það er haldið í tengslum við níu milljóna króna styrk ráðuneytanna til UNICEF í Afganistan fyrir menntun stúlkna. Allir eru velkomnir, ókeypis er inn og boðið upp á morgunverð. – kbg Í beinni frá Kabúl Razia Stanikzai og Fatima Hossaini ræða menntamál stúlkna mynd/UnICEF 9 . D e s e M B e R 2 0 1 5 M i ð v i K u D a G u R4 f R é t t i R ∙ f R é t t a B L a ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 9 B -1 7 1 4 1 7 9 B -1 5 D 8 1 7 9 B -1 4 9 C 1 7 9 B -1 3 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.