Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 28

Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 28
Ný stefnumótun í heilbrigðismálum var kynnt í upp-hafi árs 2014 undir heitinu Betri heil-brigðisþjónusta 2013-2017. Þar á meðal eru áform um breytt fyrirkomulag á greiðsl- um til heilsugæslustöðva og að boðið verði upp á tvo möguleika á rekstrarformi; einkareknar heilsu- gæslustöðvar með samning við ríkið og ríkisreknar stöðvar með einn stjórnanda yfir hverri rekstrar- einingu. „Þetta eru breytingar í grunninn á greiðslu- og gæðakerfi heilsu- gæslunnar. Þannig að það verður búinn til gagnagrunnur þar sem verður miðlæg skráning á hverjum og einum einstaklingi á heilsugæslu; uppfærð í rauntíma,“ segir Oddur Steinarsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt nýja kerfinu mun fjármagn fylgja hverjum og einum einstaklingi, þannig að ef skjól- stæðingur færir sig af einni stöð yfir á aðra þá flyst fjármagnið með. Nýja kerfið í undirbúningi Oddur segir að Sjúkratryggingar séu um þessar mundir að smíða skráningargagnagrunna og áætlað sé að prufukeyrslur á þeim byrji eftir áramót. Kerfið fari svo í gang með vorinu. Með breytingu á fyrirkomu- laginu hér á Íslandi er meðal ann- ars horft til kerfis sem Svíar kalla „Vårdval“. Oddur segir að þetta kerfi bæti aðgengið að heilsu- gæslunni. „Það kemur inn ákveðin samkeppni. Fjármunum verður stýrt eftir metinni þörf, út frá aldri, kyni, sjúkdómsbyrði, félagslegum þáttum, gæðaþáttum og fleiru,“ segir Oddur og bætir við að það sé aldurs- og kynkúrfa í grunninn. Mest sé greitt fyrir einstaklinga á fyrstu tveimur æviárunum en svo lækki greiðslurnar. Þær hækki svo aftur með aldri. Svo eru til dæmis hærri greiðslur fyrir konur á barn- eignaaldri vegna mæðraverndar. Við ákvarðanir um greiðslu með sjúklingum er síðan notaður svo- kallaður ACG-heilsugæslugreininga- flokkari, sem er þróaður hjá John Hopkins háskólanum og notaður í fimmtán löndum í heiminum í dag, CNI-félagsþáttastuðull sem Svíar nota og svo gæðastaðlar. Býst við meiri samkeppni „Greiðslumódelið verður þannig að fjármagnið fylgir verkefnunum og allir sitja við sama borð. Það mun vonandi verða ákveðin sam- keppni,“ segir Oddur. Oddur segir að á öllu höfuðborgarsvæðinu séu nú í heildina um 100 heimilislæknar starfandi. Staðan sé þannig að það þurfi að tvöfalda fjölda námslækna í heimilislækningum. Að hans sögn útskrifast um sex til átta heilsu- gæslulæknar á hverju ári, en á næstu tíu árum séu um 40 læknar að fara á eftirlaun hjá Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins. Það þurfi því að fjölga námslæknum töluvert til að vinna á móti bæði þeim skorti sem sé á landsvísu og þeim stóra hópi sem fari á eftirlaun á næstu árum. Samkvæmt nýlegri skýrslu OECD, Health at Glance 2015, eru 16 pró- sent lækna á Íslandi heimilislæknar. En í ríkjum OECD er meðaltalið 29 prósent. Þrjár nýjar stöðvar Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, spurði Kristján Þór Júlíusson heil- brigðisráðherra út í stöðu heilsu- gæslunnar á Alþingi á dögunum. Í svari heilbrigðisráðherra við fyrir- spurn Katrínar kemur fram að það sé gert ráð fyrir þremur nýjum einkareknum heilsugæslustöðum. „Það sem hefur verið rætt um er að þær verði reknar með svipuðu sniði og Salastöðin og Lágmúli,“ segir Oddur. Hann segir ekki liggja fyrir á þessari stundu hvar þær stöðvar yrðu. Hugsanlegt sé að þeir aðilar sem sækja um að reka stöðvarnar kæmu með tillögur að því. „Það yrði byrjað á áhuga- könnun, hvaða hópar séu til- búnir í verkefnið,“ segir Oddur en bætir því við að það verði vel- ferðarráðuneytisins að ákveða það. Heilsugæslan á höfuðborgar- svæðinu komi ekki að því verkefni. Oddur segist vonast til þess að þetta nýja fyrirkomulag verði til þess að auka áhuga íslenskra heimilislækna á að starfa á Íslandi. Bæði lækna sem búsettir eru hér- lendis en eru í starfi erlendis og íslenskra lækna sem hafi einfaldlega flust út og lækna sem nýlega hafi lokið sérnámi erlendis. „Vonandi fáum við einhverja úr þessum hópi. Það myndi strax þétta í raðirnar,“ segir hann. Ekki tilbúnir í vinnu fyrir ríkið Oddur segist telja að það séu íslenskir læknar sem séu ekki reiðubúnir til þess að vinna fyrir hið opinbera en væru til í að vinna sjálfstætt. Það þurfi að breyta Fjármagnið fylgi einstaklingunum Ráðgert er að breyta mikið greiðslukerfi í íslenskri heilsugæslu. Breytingar munu sjást strax á næsta ári. Lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að með þessu verði til aukin samkeppni. Ísland sé ekki samkeppnishæft við Norðurlöndin að óbreyttu. Heilsugæslan í Lágmula er ein tveggja einkarekinna heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Þar starfar meðal annars Salóme Ásta Arnardóttir læknir. FréttABLAðið/GVA Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is Það kemur inn ákveðin samkeppni. Fjármunum verður stýrt eftir metinni þörf, út frá aldri, kyni, sjúkdómsbyrði, félagslegum þáttum, gæða- þáttum og fleiru. Það er í raun og veru skrýtið hvernig umræðan verður hérna á Íslandi miðað við hvað er í gangi á Norðurlöndunum. Og jafnvel öfgayfirlýsingar. Oddur Steinarsson lækningaforstjóri á Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins kerfinu á Íslandi til þess að Íslend- ingar geti verið samkeppnishæfir við önnur Norðurlönd. „Þetta er í boði á hinum Norðurlöndunum,“ segir Oddur og bætir við að kerfið í Danmörku og Noregi byggi nánast eingöngu á einkareknum heilsu- gæslustöðvum. Jens Stoltenberg hafi breytt kerfinu í Noregi í vinstri- stjórn árið 2001. „Það er í raun og veru skrítið hvernig umræðan verð- ur hérna á Íslandi miðað við hvað er í gangi á Norðurlöndunum. Og jafnvel öfgayfirlýsingar,“ segir hann. Oddur segir að helsti ávinningur- inn fyrir íslenska ríkið af þessari breytingu sé sá að í dag sé stórum hluta af þeirri þjónustu sem ætti heima í heilsugæslunni sinnt á bráðamóttöku, annars staðar á spít- ölum, og jafnframt á einkastofum sérfræðilækna. „Að vera að sinna þessu á bráðamóttökum og spítala er mun kostnaðarsamara og það er mikilvægt að sjúkrahúsið sinni því sem það á að sinna og geri það vel,“ segir Oddur. Margvíslegt eftirlit Oddur segir að eftirlit með heilsu- gæslustöðvunum í nýja kerfinu yrði með margvíslegum hætti. „Faglegt eftirlit er hjá Landlækni. Síðan er velferðarráðuneytið og Sjúkratryggingar. Þær koma inn í þetta og munu hafa ákveðið eftirlit. Síðan er hugmyndin að það verði eining innan heilsugæslunnar sem verði faglega leiðandi og myndi leggja línurnar. Svo mun Sam- keppniseftirlitið vonandi gæta að því að það sé virk og sanngjörn samkeppni. Það er inni í kerfinu í Svíþjóð,“ segir Oddur. Hvaða aðilar hafa komið að vinnu við uppbyggingu þessa kerfis? Oddur segir að vinna við breyt- ingarnar hafi farið fram á vegum velferðarráðuneytisins, fyrst undir stjórn Hönnu Katrínar Friðriksson, en svo Björns Zoëga, en jafnframt með þátttöku annarra starfsmanna. Þá hafi fulltrúi frá Landlækni tekið þátt í vinnunni og starfsmenn Sjúkratrygginga. Oddur hefur svo verið ráðgefandi í vinnunni, en hann starfaði lengi í Svíþjóð og kynntist Vårdval-hugmyndafærð- inni. Margir leigulæknar starfandi Oddur bendir á að ef Ísland sé skoðað heilt yfir þá séu, meira og minna, allir landshlutar með leigu- lækna í einhverjum mæli í dag, sem sinni viku og viku á hverjum stað. 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r6 markaðuriNN 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 9 B -2 F C 4 1 7 9 B -2 E 8 8 1 7 9 B -2 D 4 C 1 7 9 B -2 C 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.