Fréttablaðið - 09.12.2015, Síða 60

Fréttablaðið - 09.12.2015, Síða 60
Margir af röppur- unuM í dag eru MjóróMa. en þessi strákur – hann er Með djúpa rödd, fulla af bassa. Og hann hendir fólki hreinlega til Með röddinni. svO getur hann rappað hraðar en nOkkur annar. www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 ÞAÐ SKRIFAR ENGINN EINS OG BRAGI „Venjulegir hlutir verða mjög skrýtnir hjá Braga og skrýtnir hlutir verða mjög venjulegir … Undirfurðulegur húmor.“ Egill Helgason / Kiljan „Bragi tekur mann í skemmtilegan leik.“ Sigurður G. Valgeirsson / Kiljan „… fyndin bók og furðuleg … sniðug á svo margan hátt ...“ Ingi Freyr Vilhjálmsson / Stundin ✶ ✶ ✶ ✶ „... í söguheimi Braga er ávallt stutt í gráglettinn og góðlátlegan húmorinn ... skemmtilega skrítinn húmoristi.“ Magnús Guðmundsson / Fréttablaðið ✶ ✶ ✶ ✶ „Knöpp og stórskemmtileg skáldsaga … afrek snjalls höfundar að segja frá … á svo forvitnilegan hátt.“ Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið Rapparinn RA The Rug­ged Man er væntan­legur til landsins og mun troða upp um helgina í Iðnó. Ferill hans er mjög for­ vitnilegur, því þrátt fyrir að hafa verið að síðan 1992, hafa eingöngu tvær breiðskífur hans verið gefnar út. Hann hefur nokkrum sinnum staðið í deilum við plötufyrirtækin sín. Þrátt fyrir það hefur hann unnið með mörgum af þekktustu mönnum rappsenunnar, á borð við Notorious B.I.G., DJ Premier og Mobb Deep. RA tekur ungan rappara með sér, hinn 17 ára A­F­R­O, en þeir kynnt­ ust í gegnum rappkeppni sem RA hélt í gegnum netið. Hann ákvað þá að taka þennan strák, sem hann telur vera undrabarn, með sér í tónleikaferðalag og kynnti hann fyrir goðsögnum rappheimsins. Auk þess að rappa mun RA the Rugged Man lýsa bardaga Gunnars Nelson, sem verður varpað upp á risaskjá á meðan hlé verður gert á tónleikunum. Afturhvarf til fortíðar Þeir RA the Rugged Man og A­F­R­O sameinast í ást sinni á fortíð rapps­ ins. Þeir leggja mikið upp úr flókn­ um röðum rímorða og hröðu flæði og telja gullöld rappsins hafa verið fyrir um tveimur eða þremur ára­ tugum. RA segir það alltaf koma sér jafn mikið á óvart að ungur strákur eins og A­F­R­O hafi verið jafn djúpt sokkinn í eldgamla rappara og raun ber vitni. RA heyrði A­F­R­O fyrst rappa í gegnum netið og heillaðist strax. Rappkeppninni sem RA hélt var í raun lokið samstundis, eftir að A­F­R­O skilaði sínu framlagi inn. RA lýsti hann strax sigurvegara og flaug með hann til New York til þess að hitta menn á borð við upptöku­ stjórann og taktsmiðinn DJ Premier. A­F­R­O segir að fyrir ungan strák, sem hafi alist upp við að hlusta á gamalt hiphop, hafi þetta verið eins og í draumi. Frjálst flæði A­F­R­O er þekktur fyrir frjálst flæði, eða freestyle, eins og það kallast á ensku, sem snýst um að spinna rímur á staðnum. Hann hefur meðal annars komið fram í spjallþætti Queen Latifah, þar sem hann rappaði um allskyns hluti sem hún var með í kassanum sínum. RA The Rugged men er mjög hrifinn af þessum unga rappara, bæði tækni hans og líkamlegum hæfileikum. „Margir af röppurunum í dag eru mjóróma. En þessi strákur – hann er með djúpa rödd, fulla af bassa. Og hann hendir fólki hrein­ lega til með röddinni. Svo getur hann rappað hraðar en nokkur annar,“ útskýrir reynsluboltinn. Lýsir bardaganum Sama kvöld og tónleikarnir fara fram mun Gunnar Nelson fara í búrið og taka þátt í einum stærsta viðburði í sögu UFC. Bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu og er ljóst að landsmenn munu hafa mikinn áhuga á honum. Til þess að enginn missi af neinu, verður gert hlé á tónleikunum á meðan Gunnar berst og mun RA lýsa bardaganum af sviðinu. RA er þekktur áhugamað­ ur um bardaga og mun leyfa rapp­ kemur með sautján ára undrabarn með sér RA The Rugged Man lýsir tónleikum Gunnars Nelson á risatjaldi, á milli þess sem hann rappar. Kemur fram með ungum rappara sem á áhugaverða sögu. RA the Rugged Man hefur verið í rappinu í áratugi. þyrstum áhorfendum að njóta vitn­ eskju sinnar um bardagaíþróttir. Tónleikarnir verða í Iðnó á laugar­ daginn og hefjast klukkan 21 og standa fram eftir nóttu. Með RA The Rugged Man og A­F­R­O kemur bandaríski rapparinn Mr. Green fram. Auk þeirra kemur fram fjöldi af íslenskum röppurum og hljómsveitum, meðal annars Class B, 7Berg, Shades of Reykjavík og Mælginn. kjartanatli@frettabladid.is A-F-R-O hefur vakið mikla athygli. 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r40 L í f I Ð ∙ f r É T T A b L A Ð I Ð 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 9 B -2 5 E 4 1 7 9 B -2 4 A 8 1 7 9 B -2 3 6 C 1 7 9 B -2 2 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.