Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 4.–6. janúar 2013 Helgarblað Átta sagt upp hjá SÁÁ n „Vildum fá betra fæði fyrir sama verð.“ E f við hefðum boðið þetta út hefðum við þurft að taka lægsta tilboðinu,“ segir Ás­ gerður Björnsdóttir, fram­ kvæmdastjóri SÁÁ, í viðtali við DV. Öllum starfsmönnum í mötuneyti samtakanna var sagt upp í des­ ember, átta talsins. Verktaki tek­ ur við rekstrinum. Ástæðan er að sögn Ásgerðar sú að maturinn hafi ekki þótt nógu góður og úrbætur hafi ekki gengið sem skyldi. Vilji hafi verið fyrir því að bjóða betri og hollari mat á sama verði. Útboð hefði getað leitt til þess að kostn­ aður við mötuneytið hækkaði og því gætu samtökin illa staðið und­ ir. Rekstur SÁÁ væri afar þungur, vegna lægri styrkja og framlaga, og sífellt væri verið að leita leiða til að draga úr kostnaði. Samið var við Bragðgott ehf. en eigandi þess er Þórir Helgi Bergs­ son. Hann rekur Bergsson mathús, vinsælt veitingahús í Templara­ sundi þar sem boðið er upp á hollan mat. Leiðir Gunnars Smára Egilssonar, formanns SÁÁ, og Þór­ is Helga hafa áður legið saman. Þeir skrifuðu meðal annars saman viku­ lega matarpistla í Fréttatímann. Gunnar Smári vísaði öllum spurn­ ingum um málið á Ásgerði fram­ kvæmdastjóra. Ásgerður segir ekki svaravert að kunningsskapur hafi ráðið för þegar samið var við Bragð­ gott. Leitað hafi verið til nokkurra aðila og reynt að fá þá til að bjóða í reksturinn. „Það var talað beint við nokkur fyrirtæki en enginn vildi bjóða í reksturinn á þeim forsend­ um sem til þurfti.“ Óformlegar við­ ræður hafi átt sér stað við nokkra aðila. „Við vildum fá betra fæði fyrir sama verð.“ Samningurinn er til eins árs. Ásgerður segir að öll­ um starfsmönnum, nema kokkun­ um tveimur, standi endurráðning til boða. n baldur@dv.is Óstundvísi um jólin Töluvert var um seinkanir til og frá landinu á Keflavíkurflugvelli um jólin og héldu aðeins sjö af hverjum tíu ferðum áætlun seinni hluta desembermánaðar. Þetta kemur fram á vef Túrista. Þar kemur fram að vélar WOW air hafi komið og farið á rétt­ um tíma í 73 prósentum tilvika. Í nóvember var sama hlutfall rúmlega 90 prósent hjá WOW air. Vélar Icelandair komu og fóru á réttum tíma í 68 prósent­ um tilvika. Vélar Icelandair töfð­ ust að jafnaði um sjö mínútur en ellefu mínútur hjá WOW air. Í umfjöllun vefjarins er tekið fram að seinkun um korter telj­ ist vera innan skekkjumarka í fluggeiranum og af þeim sökum séu fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum í útreikn­ ingunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung telj­ ast því vera á áætlun. Unnið gegn hálkunni Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið undanfarna daga að því salta og sanda götur, bíla­ stæði, göngustíga og stofnana­ lóðir. Mjög hált er þar sem klak­ inn hefur ekki enn náð að bráðna. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er borgarbúum bent á að þeir geti fengið salt og sand til eigin nota á hverfastöðvum borgarinn­ ar og hafa margir nýtt sér þann möguleika. Hverfastöðvar borgar­ innar við Njarðargötu, Flókagötu, Stórhöfða og Jafnasel eru opnar til kl. 17.00 í dag. Íbúar eru hvattir til að fara varlega í hálkunni. All­ ar ábendingar um það sem betur má fara í borgarlandinu eru vel þegnar. Á vefnum reykjavik.is/ borgarland er auðvelt að setja inn ábendingar og einnig má hringja í símaver Reykjavíkurborgar í síma 411 11 11. Tekið til hendinni Gunnar Smári tók við formennsku í SÁÁ í maí í fyrra. Í slandsbanki hefur afskrifað tæp­ lega tvo milljarða króna vegna gjaldþrots dótturfélags Þor­ bjarnar hf. í Grindavík. Þor­ björn er þriðja stærsta út­ gerðarfélag landsins miðað við þorskígildistonn. Dótturfélagið heit­ ir G­14 ehf., áður Gnúpverjar ehf., og hélt utan um eignarhluti í Saga Capital, Icebank, Icelandic Group, Suðurnesjamönnum og fleiri félög­ um. Því var um að ræða fjárfestingar­ félag í eigu Þorbjarnar hf. Tilkynnt er um skiptalokin í Lögbirtingablaðinu. Hagnaður Þorbjarnar hf. nam tæplega 8,7 milljónum evra árið 2011, samkvæmt ársreikningi félags­ ins fyrir það ár, eða tæplega 1.400 milljónum króna. Félagið er afar sterkt og á bókfærðar eignir upp á tæplega 145 milljónir evra en á móti þeim eru skuldir upp á tæplega 115 milljónir evra. Enginn arður var tek­ inn út úr félaginu árið 2011 en á ár­ unum 2006 til 2009 greiddu hlut­ hafarnir út 641 milljón króna í arð, tæpan þriðjung þeirrar upphæðar sem dótturfélagið hefur nú fengið af­ skrifað. Eigendur Þorbjarnar hf. eru systkinin Eiríkur Tómasson, Gunnar Tómasson og Gerður Sigríður Tóm­ asdóttir. Eiríkur er jafnframt fram­ kvæmdastjóri útgerðarinnar en hann var einnig framkvæmdastjóri Gnúpverja. 3,7 milljónir upp í kröfur Skiptastjóri G­14, Inga Björg Hjalta­ dóttir, segir að tvær kröfur hafi borist í bú félagsins, önnur frá Ís­ landsbanka og hin frá Byr, sem nú er runninn inn í Íslandsbanka. Hún segir að kröfuhafar félagsins hafi fengið 3,7 milljónir króna upp í kröf­ ur sínar sem í heildina námu tæplega 1.975 milljónum króna. Þetta þýðir að kröfuhafarnir fengu endurheimt­ ur sem námu tæplega 0,2 prósentum af kröfuupphæðinni sem þeir lýstu í búið. „Icebank drap okkur“ Eiríkur Tómasson segir aðspurður að Gnúpverjar hafi verið tilraun eigenda Þorbjarnar hf. til að ávaxta fé sitt betur á árunum fyrir hrun. Því miður hafi það ekki gengið. „Icebank drap okkur. Félagið keypti hlutabréf í ónýtum banka. Eftir á að hyggja var hann augljóslega kominn á hliðina þegar við keyptum í honum. Í mín­ um huga var því leynt hvernig hann stóð,“ segir Eiríkur. Eiríkur segir að félagið hefði sennilega lifað af að fjárfesta að­ eins í Saga Capital en ekki Icebank: „Við hefðum sennilega lifað það af ef við hefðum bara keypt bréfin í Saga Capital en ekki í Icebank. […] Þetta fór bara illa já. Þetta var bara partur af því að leita að betri ávöxtun en við vorum ekki betri í þessu en þetta. Þetta voru bara vonbrigði; það fór þarna fullt af peningum sem við höfðum sett í þetta,“ segir Eiríkur. „Þessi hlutabréfakaup á þessum árum voru eins og hreinn faraldur.“ Tapaði rúmum 2,4 milljörðum Í ársreikningi Gnúpverja, nú G­14 ehf., fyrir árið 2008 kemur fram að félagið hafi tapað rúmlega 2,4 milljörðum króna það árið. Eignir félagsins voru þá metnar á tæplega 518 milljónir króna en þær höfðu verið metnar á rúmlega 2,3 millj­ arða króna í lok árs 2007. Stærsta eign Gnúpverja í lok árs 2008 var eignarhlutur í Saga Capital sem metinn var á 400 milljónir króna í lok árs 2008. Þá var eignarhlutur félagsins í vestfirska útgerðarfé­ laginu Guðbjarti metinn á 60 millj­ ónir króna. Í lok þess árs voru eignir félagsins metnar á um 518 milljónir króna og skuldir félagsins námu þá 1.915 milljónum króna. Í skýringu í þeim ársreikningi kom fram af hverju félagið hefði tapað svo miklu árið 2008. Þar sagði: „Mjög óvenjulegar aðstæður sköpuðust á fjármálamarkaði á ár­ inu 2008 og er eigið fé félagsins neikvætt um 1,4 milljarðar kr. í árslok. Á árinu 2008 varð veruleg lækkun á gangvirði fjárfestingar­ eigna félagins og gengistap af lán­ tökum og nemur gjaldfærð fjár­ hæð vegna fjárfestingareigna 1,4 milljörðum á árinu og 0,8 milljörð­ um vegna gengistaps. Vafi er á því hvort félagið geti staðið við skuld­ bindingar sínar í náinni framtíð. Vegna þessara atriða teljum við ríkja verulegan vafa á rekstarhæfi félagsins.“ Félagið hafði ekki skilað árs­ reikningi síðan 2008 þegar það var tekið til gjaldþrotaskipta. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Icebank drap okkur“ n Afskrifa tæpa tvo milljarða hjá dótturfélagi Þorbjarnarins „Eins og hreinn faraldur Tilraun til betri ávöxtunar Eiríkur segir að fjárfestingarfé- lagið Gnúpverjar hafi verið tilraun eigenda Þorbjarnarins til að fá betri ávöxtun á fjármuni sína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.