Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Page 6
Þ etta var það versta sem við höfum kynnst síðan á snjó­ flóðaárunum,“ segir Hall­ dór V. Magnússon, fram­ kvæmdastjóri rafveitusviðs Orkubús Vestfjarða, um rafmagns­ leysið sem Vestfirðingar þurftu að búa við á milli jóla og nýárs og fram yfir áramótin. Eitt versta óveður sem skollið hefur á í seinni tíð gekk yfir Vestfirði með þeim afleiðing­ um að samgöngur fóru úr skorð­ um og rafmagnsdreifikerfið varð fyrir verulegum bilunum. Við þær aðstæður eiga varaaflsvélar, sem ganga fyrir dísilolíu, að taka við raf­ orkuframleiðslunni. Þær biluðu hins vegar líka og þurftu Vestfirðingar því að búa við langvarandi rafmagns­ leysi og raforkuskömmtun. Viðbragðsaðilar, forsvarsmenn lögreglunnar og slökkviliðsins í Ísa­ fjarðarbæ, eru ekki sáttir við þá stöðu sem skapaðist á þessum tíma og láta hafa eftir sér í ísfirska fréttamiðlin­ um Bæjarins besta að mikið hættuá­ stand hefði getað skapast. „Þetta var ekki ásættanlegt og í raun gat skapast hættustand, þótt allt hafi farið vel. Það er umhugsunarefni að lögregla og almannavarnir þurfi að glíma við rafmagnsleysi,“ sagði Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, í samtali við bb.is, en almannavarnanefnd Súðavíkur og Ísafjarðarbæjar þurfti að funda í raf­ magnsleysi og myrkri síðastliðinn laugardag. Að sögn Hlyns lá síma­ kerfið niðri á tímabili og farsíma­ sendar og endurvarpar orðnir tæpir á varaafli. Rafhlöður í tetrasendum á Vestfjörðum voru á nokkrum stöðum en Neyðarlínan hefði ekki getað haft samband við lögreglu, sjúkraflutn­ ingamenn og slökkvilið ef tetrakerfið hefði dottið út. Varaaflsvélin olíulaus Eftir að gert hafði verið við varaafls­ vélar á Ísafirði og í Bolungarvík kom upp sú staða í Bolungarvík að varaflsvélin varð olíulaus um tíma. Sú staða skapaðist að sögn Halldórs V. Magnússonar vegna þess að ekki var fært á milli Bolungarvíkur og Ísa­ fjarðar sökum snjóflóðahættu á veg­ inum um Eyrarhlíð. Var því ekki hægt að koma olíubíl til Bolungarvíkur og enginn slíkur var í bæjarfélaginu. „Olíubíllinn var fastur á Ísafirði og fór svo að lokum að mokað var í gegnum hlíðina til að hleypa bílnum í gegn áður en það var mokað fyrir almenna umferð,“ segir Halldór. „Ég er mjög ánægður hvernig dreifikerfið stóð sig. Það var lítið tjón á dreifikerfi Orkubúsins. Allir starfs­ menn sem stóðu vaktina stóðu sig al­ veg gríðarlega vel,“ bætir Halldór við að lokum. Því má ætla að hyggilegast væri að hafa olíubíla tilbúna í hverju bæjar­ félagi ef útlit er fyrir að vegir lokist sökum ófærðar og snjóflóðahættu svo að viðlíka ástand skapist ekki aftur. Í skýrslu Landsnets frá mars árið 2009 kemur fram að áreiðanleiki af­ hendingar raforku sé minnstur á Vestfjörðum. Í skýrslunni kemur fram að meðaltal samfélagslegs kostnaðar vegna straumleysis á Vestfjörðum á árunum 2002 til 2008, með teknu til­ liti til raforkuframleiðslu á varaflsvél­ um sem ganga fyrir dísilolíu, sé um 84 milljónir króna á ári. Meðalkostn­ aður Landsnets vegna tapaðs flutn­ ings og keyrslu varaafls sé hins vegar ekki nema 10,4 milljónir króna á ári miðað við sama tímabil. Þá eru varaflsvélarnar á Vestfjörð­ um komnar til ára sinna og biluðu fjórar þeirra á milli jóla og nýárs, ein í Súðavík, ein í Bolungarvík og tvær á Ísafirði. Myndi raforkuöryggi á Vest­ fjörðum stóraukast ef Landsnet legð­ ist í framkvæmdir á varaaflsstöðvum í Bolungarvík líkt og fyrirhugað er. Aðeins sjóleiðin fær þegar lygndi Þá er umhugsunarvert ástand sem myndast þegar ófærðin er slík að ekki er hægt að flytja fólk á sjúkrahús. Til að mynda var vegurinn á milli Súða­ víkur og Ísafjarðar lokaður svo dög­ um skipti og því spurning hvað hægt hefði verið að gera ef alvarlegt slys hefði borið að og koma hefði þurft fólki í flýti undir læknishendur. Frá Súðavík voru farnar bátsferðir á milli jóla og nýárs til að ferja strandaglópa yfir á Ísafjörð og sækja vistir. Vegur­ inn var lokaður lengi vel vegna snjó­ flóða og snjóflóðahættu en snjóflóð­ in sem féllu á vegina til Súðavíkur, um Kirkjubólshlíð og Eyrarhlíð og á vegina í Súgandafirði og Önundar­ firði skipta tugum að sögn Vega­ gerðarinnar á Ísafirði. n „Það versta sem við höfum kynnst“ n Það mátti litlu muna að illa færi í rafmagnsleysinu á Vestfjörðum Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is „Þetta var ekki ásættanlegt og í raun gat skapast hættu- stand. Allt úr skorðum Ófærð, samgöngu- erfiðleikar og fjarskiptaleysi settu svip sinn á samfé- lagið á Vestfjörðum í kjölfar óveðursins fyrir áramót. 6 Fréttir 4.–6. janúar 2013 Helgarblað 1.840 milljóna afskriftir n Votaberg ehf. var leigusali Kvikmyndaskóla Íslands K röfuhafar fyrrverandi leigu­ sala Kvikmyndaskóla Íslands, eignarhaldsfélagið Votaberg ehf., þurftu að afskrifa nærri 1.840 milljóna króna kröfur sínar á hendur félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu um skiptalok Votabergs ehf. í Lögbirtingablaðinu. Engar eignir fundust í búinu. Kvikmyndaskólinn leigði húsnæði af Votabergi í Víkurhvarfi í Kópavogi þar til skólinn flutti í húsnæði í Ofan­ leiti í byrjun árs 2011. Skólinn hafði þá ekki greitt Votabergi leigu af hús­ næðinu frá því í apríl árið 2009. DV greindi frá því í janúar 2011 að skuld­ ir Kvikmyndaskólans við Votaberg næmu á annað hundrað milljónum króna og að í gangi væru samninga­ viðræður um uppgjör á skuldinni. Þessar samningaviðræður runnu þó út í sandinn og Kvikmyndaskólinn flutti sig um set. Viðskiptabanki Votabergs, Lands­ bankinn, leysti fasteignina í Víkur­ hvarfi til sín. Fasteignin, sem er um 7.000 fermetrar, var eina eign Vota­ bergs á þessum tíma. Félagið var svo tekið til gjaldþrotaskipta í október 2011 og er skiptum á félaginu nú lokið. n Biðjist afsökunar Jón Bjarnason, þingmaður VG, skýtur föstum skotum að forystu flokksins og segir þá aðila sem tekið hafa þátt í ESB­brölti Sam­ fylkingarinnar eiga umsvifalaust að hætta því og biðja stuðnings­ menn flokksins opinberlega afsök­ unar. „Hér dugar enginn „heim­ iliskattaþvottur“, svo gengið sé í smiðju forsætisráðherra Samfylk­ ingarinnar.“ Tilefni skrifa Jóns er slæm niðurstaða VG í nýjustu skoðana­ könnun Gallup en þar mælist flokkurinn aðeins með 9,1 pró­ sents fylgi sem er helmingi minni stuðningur en hann fékk við síð­ ustu kosningar. Enginn vafi leik­ ur á ástæðu þess að mati Jóns; stuðningur við aðildarumsókn Samfylkingarinnar að Evrópusam­ bandinu. Hann segir að stuðn­ ingsfólki sem treysti á VG hafi verið fórnað á „altari ESB – eins­ málsstefnu Samfylkingarinnar.“ Undrast söfnun þjóðkirkjunnar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, for­ maður velferðarnefndar Alþing­ is, spyr hvort eðlilegt sé að stofn­ un eins og þjóðkirkjan, sem telji sig þurfa á viðbótarfjárveitingu að halda, fari í söfnun fyrir Landspít­ alann. „Hún er að þiggja fé frá ríkinu sem annars hefði getað far­ ið í tækjakaup eða niðurgreiðslu skulda.“ Þetta segir hún við RÚV. Tugum milljóna hafi verið bætt við fjárveitingar til þjóðkirkjunnar vegna fjárskorts og þrýstings um auknar fjárheimildir. „Ég skil vel að þjóðkirkjan vilji láta gott af sér leiða og bæta ímynd sína í leiðinni en spurn­ ingin er hvort þetta samræmist hlutverki hennar. Mér finnst það mjög einkennilegt að hún líti á þetta sem hlutverk sitt og er sjálf rekin fyrir ríkisfjármuni og hef­ ur sótt mjög fast á auknar fjár­ veitingar.“ Slæm staða Málefni kvikmyndaskólans komust í hámæli árið 2011, meðal annars slæm staða leigusala skólans sem ekki hafði fengið greidda leigu frá árinu 2009. Myndin er tekin á fundi stjórnenda og nemenda skólans árið 2011.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.