Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Blaðsíða 42
42 Fólk 4.–6. janúar 2013 Helgarblað Þ rátt fyrir að eiga næga peninga virðast margar Hollywood-stjörn- ur oftar en ekki taka feilspor þegar kemur að fatavali. Stjörnur eins og Jennifer Lopez og Mariah Car- ey eru komnar langt yfir fertugt en klæða sig ennþá eins og þær séu 18 ára á með- an það mætti halda að stjörnur á borð við Christinu Hendricks og Taylor Swift séu að gramsa í fataskáp ömmu sinnar áður en þær stíga út úr húsi. Klæða sig eKKi eftir aldri Heidi Klum Það vita það allir að þú ert súper- módel, Heidi Klum. Þú ert hins vegar líka fertug margra barna mamma. Farðu í peysu! n Sumar stjörnur þurfa nauðsynlega á stílista að halda Eins og tvítug Söngkonan Mariah Carey er tveggja barna móðir sem nálgast fimmtugsaldurinn. Það er kominn tími á að hætta að fá tískuráð hjá fólki á sama aldri og Miley Cyrus. Alltaf jafn flott Þótt þú getir klæðst ögrandi fatn- aði er ekki þar með sagt að þú ættir að gera það. Leikkonan Halle Berry er miklu nær fimmtugu en tvítugu. Hún er samt alltaf jafn glæsileg. Gömul sál Söngkonan Taylor Swift er gömul sál sem á fataskáp í stíl. Hnepptu! Það gleymdist, fyrir nokkrum áratugum, að láta gítarleikarann Joe Perry úr The Aerosmith vita að karlmenn hneppa skyrtunni eftir þrítugt. Eins og amma Leikkonan Christina Hendricks er bara 36 ára en klæðir sig eins og gömul kona. Stelpuleg Jennifer Lopez má alveg hætta að ganga í fötum sem ætluð eru fyrir helmingi yngri stúlkur. Við vitum öll að þú ert fáránlega vel vaxin. Þetta er orðið fínt. Föt dótturinnar Raunveruleikastjarn- an Kris Jenner er 55 ára og lítur út fyrir að ganga í sömu fötum og dóttir hennar, kyntáknið Kim Kardashian. Bókasafnsvörður Ólíkt mömmu sinni, sem gerir allt til að stoppa tímann, reynir Kourtney Kardashian að flýta klukkunni með þessu útliti sem minnir helst á bókasafnsvörð. Í stíl við gömlu Leikarinn Ashton Kutcher er aðeins 33 ára en hefur klætt sig um árabil líkt og hann sé eldri en fyrrverandi eiginkonan Demi Moore, sem er 48 ára. Úti að aka Miðað við hvað Justin Timber lake er oft flottur í tauinu er furðulegt að hann geti ekki hjálpað eiginkonunni að búa sér til sinn eigin stíl. Jessica Biel lítur oft út fyrir að hafa sloppið út um gluggann á elliheimilinu. Eins og unglingur Fyrrverandi kryddpían söngkonan Mel C klæðir sig enn- þá eins og unglingur í popphljómsveit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.