Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2013, Blaðsíða 45
V
ið sömdum lagið í sum-
ar þegar ég var í heim-
sókn hjá Rósu í New York
en það gerðist eiginlega
fyrir tilviljun, segir Vé-
dís Vantída Guðmundsdóttir tón-
listarkona. Hún segir þær systur
hafa verið að bíða eftir að Curi-
osity-jeppinn lenti á Mars og hafi
ákveðið að drepa tímann með því
að semja lag. Þær hafi sest niður og
eftir rúma klukkustund varð svo til
lagið What I Never Had. „Við urð-
um hálf hissa á okkur að hafa ekki
gert þetta fyrr. Við munum alla
vega klárlega vinna meira saman í
framtíðinni.“
Frumfluttu lagið í
Vestmannaeyjum
Um jólin héldu þær svo tónleika
í heimabæ sínum Vestmannaeyj-
um og frumfluttu lagið ásamt öðr-
um lögum Védísar. „Rósa býr úti
og við hittumst svo sjaldan. Við
ákváðum að halda tónleika stuttu
eftir að hún kom. Við æfðum fyrir
þá í nokkra daga og frumfluttum
þar lagið,“ segir Védís sem segir að
það hafi heppnast vel.
Aðspurð hvort þær muni gefa
lagið út segir hún þær vera mjög
opnar fyrir því. „Það er búið að
bjóða okkur að taka upp lagið
hér heima og það getur vel verið
að gerum það. Það yrði ekki flók-
in vinna. Við syngjum og röddum
sjálfar, hún spilar á píanó og ég
flautuna. Við myndum gera þetta
að okkar.“ Hún er viss um að þær
yrðu ánægðar með útkomuna og
jafnvel setja lagið í spilun.
Sömdu lög sem börn
Systurnar eru aldar upp við tón-
list og spila báðar á hljóðfæri.
„Pabbi forritaði okkur frá fæðingu.
Hann spilaði tónstigann fyrir okk-
ur um leið og við komum heim
af fæðingardeildinni.“ Aðalhljóð-
færi Védísar er þverflauta en hún
er þverflautu-, saxófón- og píanó-
kennari. Rósa býr sem fyrr segir í
New York og starfar þar, bæði bæði
við leik- og tónlist.
Þær hafa spilað saman síðan
þær voru ungar og léku sér meðal
annars sem börn við að semja lög.
„Við hættum því svo en sjáum nú
að þetta getur orðið gott samstarf,“
segir Védís. Hún bendir á að Rósa
hafi samið töluvert af tónlist en
sjálf hafi hún byrjað fyrir einungis
tæpum tveimur árum.
Galaxy-dúettinn hættur
Védís var í dúettinum Galaxy
ásamt Magdalenu Dubik en segir
að þær hafi slitið því samstarfi.
„Við ákváðum að slíta samstarfinu
en það var í góðu. Það var gaman
að prófa þetta en þetta stefndi bara
ekki í þá átt sem við Magdalena
höfðum hugsað okkur. Við viljum
stefna að því að byggja upp fal-
legar melódíur. Það er mikilvægara
fyrir okkur en við erum báðar með
klassískan bakgrunn og við vilj-
um ekki missa það. Það er grund-
völlurinn fyrir því sem við gerum
sem hljóðfæraleikarar.“ n
gunnhildur@dv.is
Fólk 45Helgarblað 4.–6. janúar 2013
É
g ætla svo sem ekki að gera
neitt sérstakt í tilefni dagins,“
segir Halldór Magni Sverris-
son, vélfræðingur hjá Lands-
virkjun í Kröflu, sem verður fimm-
tugur laugardaginn 5. janúar. „Það
er þó aldrei að vita nema mað-
ur skelli sér á vélsleða á afmælis-
daginn, ef veður verður gott. Svo
verður smá veisla um kvöldið fyrir
vinina. Þá höldum við hina árlegu
sviðakjamma- og sviðalappa-
veislu,“ segir hann og bætir við
að vinirnir séu alsáttir við valið á
veislumatnum. „Þetta er hefð hjá
okkur á þessum tíma. Það eru allir
svo önnum kafnir yfir jólin svo við
hittumst vanalega um þetta leytið.
Þetta verður ekkert stór veisla, bara
nokkrir vinir.“
Halldór Magni óttast ekki hækk-
andi aldur. „Sextugsaldurinn leggst
bara ágætlega í mig. Það er ekkert
að því að verða fimmtugur. Enda er
maður alltaf bara 24 ára í anda.“
indiana@dv.is
É
g verð með smá fögnuð á
laugardagskvöldið sem er í
undirbúningi,“ segir Róbert
Karel Guðnason á Selfossi
sem verður fertugur á sunnu-
daginn.
Róbert Karel segist ekki vera
mikið afmælisbarn en að hann
ætli að gera undantekningu í þetta
skiptið. „Ég geri mér afar sjaldan
dagamun þegar ég á afmæli en ég
ætla að gera það núna. Þetta verð-
ur veisla,“ segir hann brosandi
og bætir við að hann finni engan
mun á sér þrátt fyrir að vera að
nálgast fimmtugsaldurinn.
„Það breytir engu hvað maður
er gamall svo lengi sem mað-
ur er heill heilsu. Mér líður bara
alveg eins og þegar ég varð tvítug-
ur og þrítugur. Mamma mín náði
ekki þessum árangri en hún féll frá
aðeins 38 ára gömul. Sem betur
fer eru allir á heimilinu við góða
heilsu og ég ætla ekki að kvarta.
Þetta er bara flott. Eða eins og frú-
in segir; þá ber að fagna hverju ári.“
indiana@dv.is
„Bara 24 ára í anda“
„Þetta er bara flott“
Heldur upp á fimmtugsafmælið með sviðaveislu
Róbert Karel verður fertugur á sunnudaginn
Halldór Magni Ætlar að bjóða vinunum upp
á sviðalappir og sviðakjamma í tilefni dagsins.
Alsáttur Róbert Karel segir aldurinn ekki
skipta máli svo lengi sem heilsan sé í lagi.
SyStur
Sömdu lag
n Stefna á frekara samstarf í tónlist
Þ
að leggst bara rosalega vel
í mig að ná fimmtugsaldr-
inum,“ segir Anna Dröfn
Clausen sem verður fertug
á sunnudaginn en hún var stödd
á Tenerife þegar blaðamaður
náði tali á henni.
Anna Dröfn naut lífsins í
sólinni yfir hátíðarnar ásamt
fjölskyldunni en kom heim á
fimmtudagskvöldið. Fjölskyld-
an hefur einu sinni áður dvalið
ytra yfir jólin og aðspurð segist
Anna ekki hafa saknað íslensku
jólastemmingarinnar. „Þetta er
búið að vera alveg æðislegt. Það
skiptir auðvitað ekki máli hvar
maður er um jólin svo lengi sem
maður er með alla sína með sér,“
segir Anna sem á fjóra drengi á
aldrinum tíu mánaða til tólf ára
sem hún segir hafa skemmt sér
konunglega á ströndinni.
Fjölskyldan var með kalkún í
matinn á aðfangadag. „Við héld-
um íslensk jól þrátt fyrir að vera
á sólarströnd. Svo þegar við
komum heim í kvöld bíða okkar
nokkrir pakkar sem verða opnað-
ir um leið og við komum heim,“
segir hún brosandi.
Anna Dröfn ætlar að taka á
móti gestum á sunnudaginn og
hlakkar til að takast aftur á við
hverdaginn. „Svo er það bara
skólinn hjá börnunum. Rútínan
er alltaf best og það verður gott
að komast heim aftur.“
indiana@dv.is
„Rútínan er
alltaf best“
Afmælisbarnið Anna Dröfn eyddi hátíðinni á Tenerife
Fjölskyldan Anna Dröfn ætlar að taka á
móti gestum á sunnudaginn.
Tónelskar systur Rósa
og Védís Vantída hafa hug
á að vinna meira saman í
framtíðinni
„Það er búið að
bjóða okkur
að taka upp lagið hér
heima og það getur vel
verið að gerum það. Það
yrði ekki flókin vinna.
Við syngjum og röddum
sjálfar, hún spilar á pí-
anó og ég flautuna. Við
myndum gera þetta að
okkar.