Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.11.2012, Side 4

Víkurfréttir - 29.11.2012, Side 4
AÐVENTA • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4 Hilmar Bragi Bárðarsonvf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: afgreiðsla og ritstjórn: ritstjóri og ábm.: fréttastjóri: blaðamenn: auglýsingadeild: umbrot og hönnun: auglýsingagerð: afgreiðsla: Prentvinnsla: uPPlag: dreifing: dagleg stafræn Útgáfa: RITSTJÓRN RITSTJÓRNARBRÉF Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Meirihlutinn féll – í faðMa! Ég sakna þess mikið að Litla leikfélagið í Garði hafi hægt og hljóðlega lognast útaf og hætt að setja á svið leikverk og rómaðar revíur. Ég var virkur félagi í Litla leik- félaginu. Steig fyrst á svið árið 1982 þegar ég var tólf ára. Þá var það leikverkið um Litla Kláus og Stóra Kláus. Aðrar uppfærslur fylgdu í kjölfarið. Annað hvort var leikið á sviði, unnið við lýsingu eða bara aðstoðað við leik- skrárgerðina. Síðasta leikverkið sem ég tók þátt í að setja á svið og fór með nokkur hlutverk í var gaman- leikur sem Ómar heitinn Jóhannsson skrifaði og fjallaði um lífið í litlu sjávarplássi. Þar fór ég með hlutverk færeysks blaðamanns sem þóttist vera pólskur farandverkamaður. Í sama verki lék ég níræða ömmu og einhver önnur smærri hlutverk. Ástæða þess að ég rifja upp árin með Litla leik- félaginu í Garði er sá farsi sem verið hefur í Garði síðustu misseri og tengjast bæjarmálunum og fjölmörgum uppá- komum í kringum þau. Ég veit það að ef krafta Ómars Jóhannssonar hefði enn notið við þá væri hann búinn að skrifa sjóðheita revíu um fallandi meirihluta í Garðinum og stuðið í kringum skólamálin. Nýjustu kaflar revíunnar hefðu verið skrifaðir um nýliðna helgi. Bæjarfulltrúar í Garði fóru nefnilega inn í helgina með þá trú að meirihluti númer tvö á þessu kjörtímabili væri að falla, því enn einn bæjarfulltrúinn væri kominn um borð í hringekju og ætlaði frá borði í faðmi annars flokks. Því var lýst yfir að ágreiningur væri í stjórnunaraðferðum og því var það svo til frágengið að Davíð ætlaði að kaupa ölið hjá D-listanum. Liðsmenn Davíðs voru þó ekki á því að hann myndi taka sér far með þessari hringekju. Meirihlutinn var kallaður til fundar. Næstum fallinn en þá féllust menn og konur bara í faðma. Ákváðu samt að boða til bæjarstjórnarfundar og kjósa odd- vita minnihlutans sem forseta bæjar- stjórnar. Oddvitinn sá kom af fjöllum með þennan ráðahag, sagðist bara vilja Davíð og breiðfylking kæmi ekki til greina. Hætt var við auka- fund í bæjarstjórn og siglt verður inn í jólin á laskaðri skútu bæjarstjórnar. Eitthvað í áttina að þessu hefði revía runnið undan rifjum Ómars heitins Jóhannssonar. Blessuð sé minning Ómars og vonandi blessast nú allt hjá bæjarstjórninni í Garði. Það er kominn tími á að bæjarfulltrúar snúi bökum saman til góðra verka og revían bíði betri tíma. Markviss vinna skilar árangri Njarðvíkurskóli hefur unnið markvisst eftir lestrarstefnu sem unnin var af deildastjórum skólans frá hausti 2011. Stefnuna hafa deildastjórar kynnt í öðrum skólum á svæðinu og hefur sam- starf milli skólanna aukist til muna. Má þar nefna samstarfs- verkefni sem fellur undir lestrar- stefnuna og eru allir skólar sem heyra undir Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar þátttakendur í því. Þar sem færni í lestri er undirstaða fyrir allt nám leggur Njarðvíkur- skóli áherslu á lestrarkennslu á öllum stigum skólans. Við álítum að þó nemendur hafi náð grunntækni í lestri þurfi þeir að halda áfram að bæta sig í þessu mikilvæga fagi. Að vinna með lestur er ferli sem þarf að vera í sífelldri endurskoðun og kennslan þarf þess vegna að taka mið af því sem reynist farsælast hverju sinni. Veturinn 2011-2012 var áhersla lögð á hraðlestur í öllum árgöngum skólans. Þjálfun í hraðlestri er sam- eiginlegt verkefni skóla og heimilis en sérstök áhersla er á heimalestur. Hver nemandi setur sér ákveðin markmið sem hann vinnur að með aðstoð kennara og foreldra til að komast sem næst viðmiðum skól- ans eða yfir þau. Á þessu skólaári er áfram unnið að því að efla hraðlestur en að auki er veruleg áhersla á lesskilning. Til að öðlast góðan skilning á texta er ekki nóg að lesa mikið. Það þarf einnig að beita markvissum les- skilningsaðferðum og í lestrar- stefnu Njarðvíkurskóla kemur fram að lesskilningur skuli kenndur með mismunandi aðferðum og sérstök áhersla lögð á eftirfarandi þætti: Vönduð efnistök, einföld framsetn- ing og fjölbreytni. Til þess að fylgjast með framförum nemenda eru hrað- og lesskilnings- kannanir lagðar fyrir nemendur með jöfnu millibili yfir veturinn. Í lestrarstefnunni er nákvæmlega út- listað hvaða kannanir skulu lagðar fyrir hvern árgang og hvenær, yfir allt skólaárið. Þetta er gert til að kanna hvort nemendur nái þeim viðmiðum sem skólinn hefur sett fyrir hvern árgang. Þeir nemendur sem ekki ná settum viðmiðum fá einstaklingsáætlun í hrað- og/ eða lesskilningi sem er svo endur- skoðuð reglulega út frá niður- stöðum næstu könnunar. Allar niðurstöður könnunarprófa eru færðar í gagnagrunn þar sem þær eru varðveittar og er því auðvelt að fylgjast með árangri hvers og eins nemanda á skólaárinu og á milli árganga alla skólagönguna. Auk hefðbundinna hrað- og les- skilningsprófa eru ýmiss önnur matstæki (skimanir) notuð til að hjálpa kennurum að koma auga á vísbendingar sem mögulega gætu bent til lestrarörðugleika hjá einstaka nemendum með það að leiðarljósi að taka á hugsanlegum vanda áður en hann verður að vandamáli (snemmtæk íhlutun). Allar þessar skimanir eru staðl- aðar og sýna því árangur á milli ára eða tímabila hjá hverjum og einum nemanda. Fyrst og fremst eru þessar skimanir hugsaðar til þess að vinna markvisst með veik- leika og styrkleika hvers og eins. Niðurstöður kannana og skim- unarprófa sýna að þessi markvissa vinna eftir lestrarstefnunni hefur skilað betri og skilvirkari árangri í lestri og lesskilningi á milli ára hjá allflestum nemendum. Nemendum sem ekki hafa náð viðmiðum í lestri og lesskilningi hefur fækkað verulega milli ára og þurfa því tölu- vert færri einstaklingsáætlun til að efla færni í lestri og lesskilningi. Þessu má þakka markvissri lestrar- og lesskilningskennslu, jákvæðum nemendum, samstíga kennarahópi og áhugasömum og hvetjandi for- eldrum. Þá hefur nákvæm skráning á árangri og eftirfylgni haft sitt að segja. Nemendur, kennarar og for- eldrar eru afar ánægðir með þann árangur sem hefur áunnist. Njarðvíkurskóli náði sögulegum árangri á samræmdum prófum í ár og eins og fram kemur í inn- gangi er lesturinn undirstaða alls náms og teljum við að sú mikla vinna sem unnin er eftir lestrar- stefnunni sé að byrja að bera þann árangur sem stefnt er að. Ætlunin er að halda ótrauð áfram og ná enn betri árangri á öllum sviðum skóla- starfsins. Lestu meira-lestu betur! Drífa Gunnarsdóttir Helena Rafnsdóttir deildastjórar Njarðvíkurskóla Ókeypis gisting á Hótel Keflavík Hótel Keflavík býður upp á fría gistingu á hótelinu í desember í ellefta sinn og styður þannig við verslun og þjónustu í Reykjanesbæ. Hótel Keflavík ætlar að styðja við verslun í Reykjanesbæ með því að bjóða upp á allt að 20 herbergi á dag sem gestir borga fyrir með því að framvísa kvittunum úr verslunum í Reykjanesbæ. Rétt er að árétta að gistingin er hugsuð fyrir fólk sem býr utan Suðurnesja en kemur til Reykjanesbæjar til að gera jóla- innkaup og um leið að heimsækja vini og ættingja. Gegn kvittun upp á 16.800 kr. fæst frí gisting í 2ja manna herbergi en sé framvísað kvittun upp á lágmark 20.800 krónur fæst gisting í fjöl- skylduherbergi. Að auki fylgir frír morgunmatur með gistingunni, en Hótel Keflavík er rómað fyrir sérlega glæsilegan morgunmat. Steinþór Jónsson, hótelstjóri, segir nauðsynlegt að Suðurnesjamenn standi saman og versli heima fyrir jólahátíðirnar. Tilboðið á Hótel Keflavík stendur frá 1. til 20. desember og allt að 20 herbergi eru í boði á sólarhring. Góð nýting hefur verið á Hótel Keflavík í ár og hafa haustmánuð- irnir verið einstaklega góðir að sögn Steinþórs. Miklar breytingar hafa verið gerðar á hótelinu en skipt hefur verið um flesta glugga auk þess sem gólf hafa verið flísalögð. Þeir einstaklingar sem hafa áhuga á að nýta sér þetta tilboð er bent á að panta herbergi áður en haldið er af stað í verslun og þannig tryggja sér næturgistinu. Einungis þarf að framvísa kvittunum í af- greiðslu Hótels Keflavíkur og gildir þar til jafns matarinnkaup sem og önnur innkaup hjá verslunum Reykjanesbæjar. Steinþór hvetur einnig Suðurnesjamenn til að ýta við vinum eða ættingjum sem búa utan Suðurnesja að nýta sér þetta frábæra tilboð.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.