Víkurfréttir - 29.11.2012, Blaðsíða 27
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • AÐVENTA 27
Hafnargötu 90 (fyrir ofan Tölvulistann)
s. 420 6070
Reynir Ólafsson lögg, fasteignasali.
Júlíus Steinþórsson lögg, leigumiðlari, sölumaður
Sigrún Inga Ævarsdóttir sölumaður
ERUM MEÐ Í EINKASÖLU 16 STÓRGLÆSILEGAR NÝJAR 3ja OG 4ra
HERBERGJA ÍBÚÐIR VIÐ BJARKARDAL 33
SÖLUSÝNING LAUGARDAGINN NK.
MILLI KL. 14:00 - 16:00.
Íbúð
101 – seld
102 - seld
103 – seld
104
201
202 – seld
203
204
205
206
301
302 - seld
303
304
305 - seld
306
Bílskúr
101 - seldur
102 – seldur
103
104
105
106-seldur
107-seldur
108-seldur
Með fjölbýlishúsinu eru til sölu aðeins 8 bílskúrar og á þar við
fyrstur kemur fyrstur fær!
Möguleiki er að fá íbúðirnar á ýmsum byggingarstigum.
Möguleiki er á 100% fjármögnun!
Verðdæmi á 3ja herbergja tilbúinni íbúð með
20.280.000 kr. láni, 100% lán:
80% lán á 4,2% vöxtum frá ILS miðað við 40 ár
– greiðslubyrði ca. 70.000 kr.
20% lán á 4,2% vöxtum frá seljanda miðað við 30 ár
– greiðslubyrði ca. 20.000 kr.
Samtals greiðslubyrði lána: ca. 90.000 kr. á mánuði.
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Árið 1997 var Mið-stöðvar símenntunar
á Suðurnesjum (MSS)
stofnuð. Stofnun mið-
stöðvarinnar var mikil
bylting í menntunar-
málum á Suðurnesjum og
síðan þá hefur miðstöðin
sífellt leitað nýrra leiða til
að bregðast við þörfum Suðurnesj-
anna í sérstökum námskeiðum
og auknu framboði í fullorðins-
fræðslu. MSS hefur yfir 12 ár séð
til þess að aðstaða sé fyrir nem-
endur sem búa á Suðurnesjum
til að sækja sér fjarnám með því
að sjá til þess að kennsluaðstaða,
heimavinnuaðstaða og próftaka
sé til staðar. Þessi aðstaða hefur
verið vel nýtt og skila mörgum
meiri menntun án þess að flytja
úr bæjarfélaginu eða að vera á
brautinni daglega.
Allt þar til árið 2010 hefur samband
Sveitarfélaga á Suðurnesjum stutt
við miðstöðina en þá var fram-
lagið tekið af vegna bágrar stöðu
sveitarfélaganna á svæðinu. Nú í
haust var farið af stað með fjar-
nám í hjúkrunarfræði m.a. vegna
þrýstings frá sveitarfélögunum
en sambandi sveitarfélaga var um
leið gert ljóst að ekki væri hægt að
halda úti fjarnáminu nema með
stuðningi sveitarfélagana og í kjöl-
farið ítrekaði sambandið
mikilvægi Miðstöðvar sí-
menntunar og mikilvægi
hennar fyrir svæðið. Enn
hefur þó ekkert svar borist
frá sambandinu og ekk-
ert loforð um fjárframlög
verið gefið.
Nú er í byggingu glæsilegt
hjúkrunarheimili fyrir aldraða í
Reykjanesbæ og það hefur verið
vilji ráðamanna að halda eins mik-
illi þjónustu á heilbrigðistofnun
Suðurnesja og hægt er. Þessari
þjónustu er ekki hægt að halda úti
án hjúkrunarfræðinga. Mikill vandi
hefur steðjað að þessum tveimur
stofnunum undanfarin ár vegna
þess að erfitt er að fá sérmenntað
fólk til starfa og því er mikilvægt að
svæðið geti verið sjálfbært á þessu
sviði og snúi vörn í sókn með því
að bjóða heimamönnum menntun
í heimabyggð.
Ein rök sambands sveitarfélaga
fyrir því að ekki þurfi að styðja
við fjarnámið er að ríkið eigi að
borga það og í miðstöðinni sé til
fjármagn sem nýta eigi í fjarnámið.
Í viðræðum við ríkið um þennan
vanda hefur komið fram að ríkið
greiðir fasta upphæð til allra sí-
menntunarmiðstöðvar á landinu
sem sinna fjarnámi. Þessi upphæð
breytist ekki eftir nemendafjölda
enda er það í höndum sveitar-
stjórna hvort þeir vilji efla slíkt
nám í heimabyggð eða hvetja íbúa
til að sækja sér háskólamenntun
inn á höfuðborgarsvæðið. Nokkur
sveitarfélög hafa t.d. boðið íbúum
sínum upp á ferðastyrk til að sækja
háskólanám. Þessi upphæð ásamt
aðstöðugjöldum nemenda dugar
ekki til að halda úti aðstöðu fyrir
fjarnámsnemendur og því þarf að
koma meira fjármagn til. Afkoma
Miðstöðvar símenntunar var góð
árið 2010 vegna mikilla verkefna í
framhaldsfræðslunni en á síðasta
ári var hallarekstur og stefnir að
svo verðir einnig árið 2012.
Það er afar brýnt að sveitarfélögin
styðji betur við þessa þjónustu
Miðstöðvar símenntunar en gert
hefur verið undanfarin ár. Kann-
anir hafa sýnt að almenningur á
Suðurnesjum er mjög ánægður
með starfsemi Miðstöðvarinnar og
ánægðir með þessa þjónustu. Í ljósi
umfangsmikillar könnunar á stöðu
Suðurnesjanna kemur fram að
menntunarstig íbúa verið almennt
lægra en í öðrum landshlutum.
Hlutfall íbúa með háskólamenntun
er 17,7% en landsmeðaltal er
33%. Í ljósi þessara aðstæðna eru
það kaldar kveðjur frá Sambandi
sveitarfélaga á Suðurnesjum ef enn
eitt árið á að hafna miðstöðinni um
framlag frá sveitarfélögunum til að
sinna aðstöðu fyrir fjarnámsnem-
endur. Því skora ég á stjórnarmenn
að íhuga vandlega málið og horfa
til þess fjölda sem hefur útskrifast
með háskólagráðu og þeirrar stað-
reyndar að 87% þeirra búa enn á
svæðinu og því er ljóst að menntun
þeirra skilar meiri mannauði og
auknum tekjum fyrir sveitarfélögin
í formi útsvars. Einnig að brýn þörf
er á að hækka menntunarstig og
ekki síst þeirrar brýnu þarfar sem
hér er fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Það verður að hafa í huga þegar
sveitarstjórnarmenn á Suður-
nesjum forgangsraða fjármagni til
ársins 2013.
Inga Sigrún Atladóttir
Stjórnarformaður MSS
Er aðstaða fyrir fjarnem-
endur ekki forgangsverkefni?
PISTILL
Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrv. ráðherra Samfylk-
ingarinnar, hefur að undanförnu
lagt land undir fót og heimsótt
jafnaðarmenn vítt og breitt um
landið til að ræða verkefnin fram-
undan. Árni Páll leiðir lista Sam-
fylkingarinnar í Suðvesturkjör-
dæmi í alþingiskosningum í vor
og hefur til þessa einn tilkynnt
framboð sitt til formanns Sam-
fylkingarinnar en nýr formaður
mun taka við á landsfundi flokks-
ins helgina 1.- 3. febrúar 2013.
Árni Páll verður gestur á fundi
Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ
fimmtudagskvöldið 29. nóvember.
Fundurinn verður í Samfylkingar-
salnum Víkurbraut 13 við Kefla-
víkurhöfn, er öllum opinn og hefst
kl. 20.00.
Fundur með
Árna Páli
ÞRjú blöÐ
TIl jólA!
ÞARFTU AÐ
AUglýsA?
Hafðu samband
í síma 421 0001
eða á fusi@vf.is