Víkurfréttir - 29.11.2012, Side 28
AÐVENTA • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR28
Adam Sigurðsson er á félagsfræðibraut
í FS en hann er 16 ára
Keflvíkingur. Adam
æfir fótbolta en hann
langar svolítið til þess
að verða íþróttafræð-
ingur í framtíðinni.
Rósa dönskukennari
er eftirlætis kenn-
ari Adams og honum
þykja inniskórnir sínir
einkar þægilegir.
Af hverju valdir þú FS?
Því ég nennti engu veseni að fara í skóla í
bænum og svo leist mér bara vel á hann.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Það er frábært. NFS stendur sig vel.
Áhugamál?
Aðallega fótbolti.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Ég hef ekkert ákveðið hver stefnan er en mig
langar svolítið að verða íþróttafræðingur.
Ertu að vinna með skóla?
Já, ég vinn á Skyndibarnum.
Hvað er skemmtilegast við skólann?
Úff...bara þegar ég er ekki í tímum.
Hvar hangirðu í eyðum og frímínútum?
Ég reyni að læra, en ef ekki, þá
er ég bara í matsalnum.
Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum tóm-
stundum?
Ég æfi fótbolta með Keflavík.
Best klæddur í FS?
Þorgeir Magnússon er skuggalega mikið tískugúrú.
Hverju myndir þú breyta ef þú værir skóla-
meistari?
Engin lokapróf og ég myndi fá gamla
mötuneytið aftur, klárlega!
Hvað borðar þú í morgunmat?
Hafragraut eða Weetos.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða
frægur?
Arnór Ingvi Traustason.
Hvað fær þig til að hlæja?
Fyndnir hlutir fá mig oftast til þess að hlæja.
Hvað er heitasta parið í skólanum?
Halldór Gísli Ólafsson og iPod-
inn hans. Óaðskiljanlegir!
Hvert fara FS-ingar í hádegismat?
Ég borða yfirleitt í matsalnum en annars eru Subway,
Grillhornið og Rétturinn vinsælustu staðirnir.
Eftirlætis:
Sjónvarpsþættir
Criminal Minds og Friends.
Vefsíður
Facebook og fótbolti.net
Flík
Inniskórnir mínir eru þægilegir
Skyndibiti
Beikon Olsen
Kennari
Rósa dönskukennari
Fag í skólanum
Íþróttir og danska
Tónlistin
Hjálmar, Ásgeir Trausti, Retro Stefson,
Valdimar og Of Monsters and Men
Hvað tónlist fílarðu í laumi (guilty pleasure)?
Hljómsveitin Aerosmith rífur mig stundum upp!
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Helena Rós Gunnars-dóttir er nemandi í
10. bekk í Myllubakkaskóla.
Hún bakar og fer í jólabað á
jólunum og fær hamborgar-
hrygg á aðfangadag. Eftir-
minnilegasta gjöfin hennar
er ferð til Flórída sem hún
fékk fyrir nokkrum árum og
hana langar í eitthvað sætt
frá kærastanum sínum í
jólagjöf.
Fyrstu jólaminningarnar?
Þegar ég var 3 ára þá átti ég
jólasveinabangsa sem ég kall-
aði Dingo-Bo því að hann
dansaði og söng Jingle Bells.
Jólahefðir hjá þér?
Á jóladag er hádegisboð sem
fjölskyldan fer í, annars bara
þetta venjulega.
Ertu dugleg í eldhúsinu yfir
hátíðirnar?
Get ekki sagt það en ég reyni
þó eitthvað að hjálpa til.
Jólabíómyndin?
How The Grinch Stole Christ-
mas með Jim Carrey.
Jólatónlistin?
Íslensk jólatónlist er best.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Fer eftir því fyrir hvern ég er
að kaupa.
Gefurðu mikið af jóla-
gjöfum?
Já ég myndi segja það.
Ertu vanaföst um jólin, eitt-
hvað sem þú gerir alltaf?
Bara þetta hefðbundna, fara í
jólabað og baka.
Besta jólagjöf sem þú hefur
fengið?
Flórídaferð árið 2006 er alveg
klárlega besta jólagjöfin.
Hvað er í matinn á aðfanga-
dag?
Hamborgarhryggur.
Eftirminnilegasta gjöfin?
Aftur, Flórídaferðin.
Hvað langar þig að fá í
jólagjöf?
Eitthvað sætt frá kæró.
Íslensk tónlist best
n HELENA RÓS GUNNARSDÓTTIR // UNG UmSJóN: PÁll oRRI PÁlSSoN • PoP@VF.IS
Aerosmith
rífur mig
stundum upp
MENNING OG MANNLÍF
60 ára!
Sextíu ára afmæli Gagnfræðaskóla Keflavíkur og Holtaskóla var fagnað
sl. föstudag. Skólinn var undirlagður af
sögusýningu þeirra 60 ára sem skólinn
hefur starfað og einnig var horft inn
í framtíðina og skólastarfið árið 2052
skoðað.
Nemendur skólans sýndu tísku áranna
1952 til 2052 og í skólastofum voru munir
frá síðustu 60 árum, þar sem skoða mátti
menningu og tísku í víðum skilningi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í af-
mælinu. Fleiri myndir eru væntanlegar
inn á vf.is.
Afmæli Holtaskóla
fagnað með flottri
sögusýningu