Víkurfréttir - 29.11.2012, Side 39
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • AÐVENTA 39
SPORT
Körfuknattleikskappinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík er kom-
inn aftur á ról eftir mjög alvarleg
meiðsli sem hann varð fyrir í úrslita-
keppninni á síðustu leiktíð. Ólafur
fór mjög illa úr lið á ökkla í leik
gegn Stjörnunni og reif í kjölfarið
nánast öll liðbönd á hægri ökkla.
Hann braut einnig ristarbein og var
ljóst í upphafi að hann yrði lengi
frá. Meiðslin voru mikið áfall fyrir
Ólaf enda var hann lykilleikmaður
í liði Grindavíkur sem náði þó að
tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn
þrátt fyrir fjarveru hans í síðustu
leikjum úrslitakeppninnar. Ólafur
hefur leikið lítið hlutverk í síðustu
leikjum Grindavíkur en er að nálgast
sitt fyrra form.
„Það er frábært að vera kominn aftur
af stað og endurhæfingin hefur gengið
mjög vel,“ segir Ólafur. „Meiðslin voru
mjög alvarleg og í upphafi var talið
að ég myndi ekki snúa aftur fyrr en í
febrúar. Þetta hefur verið mjög erfiður
tími. Þeir sem þekkja mig vita að ég er
ofvirkur og líkar ekki að sitja heima
og gera ekki neitt. Það hjálpaði að ég
ákvað strax í upphafi að vera jákvæður
og nú er ég kominn á ról, nokkrum
mánuðum á undan áætlun.“
Fitnaði talsvert af
að gera ekki neitt
Ólafur hefur fengið að leika nokkrar
mínútur í Lengjubikarnum en hefur
aðallega vermt bekkinn hjá Grinda-
vík meðan hann nær fyrri styrk á ný.
Ólafur viðurkennir að bekkjarsetan
fari ekkert allt of vel í hann, en skilur
vel að þjálfarinn vilji fari sparlega með
hann.
„Ég þarf að koma mér í betra form
og vinna mér inn spilatíma. Ég er svo
klikkaður að auðvitað tel ég mig eiga
að spila 40 mínútur í hverjum leik. Ég
er afleitur í því að sitja á bekknum og
læt alveg heyra í mér að ég vilji fá að
spila. Ég jafna mig á því klukkutíma
eftir leik og veit að þetta snýst allt um
að liðinu gangi vel og að ég fari varlega
af stað úr meiðslunum,“ segir Ólafur
sem viðurkennir að hann hefði mátt
vera duglegri í endurhæfingunni.
„Ég sat eiginlega bara heima og gerði
ekki neitt meðan ég var meiddur. Þegar
ég losnaði úr gipsinu þá var ég ekki
nógu duglegur að mæta í ræktina. Ég
mátti ekki hlaupa en reyndi að halda
mér við með því að skjóta reglulega,
hjóla og fara í sund. Ég viðurkenni að
ég fitnaði talsvert á þessum tíma en
sem betur fer þá er það allt runnið af
mér núna.“
Meiðslin 70% andleg
Ólafur er þekktur háloftafugl í ís-
lenskum körfubolta og hefur meðal
annars orðið troðslukóngur. Honum
leiðist heldur ekki að troða boltanum,
helst á stórum augnablikum í leikjum.
Nú stígur hann hins vegar upp úr mjög
erfiðum meiðslum sem hefðu jafnvel
getað bundið enda á feril hans aðeins
22ja ára gamall. Ólafur viðurkennir
fúslega að hann sé ekki mikið í stórum
troðslum þessa dagana.
„Þú ert ekki sá fyrsti sem spyrð mig
að þessu,“ segir Ólafur og hlær þegar
blaðamaður spyr út í troðslur á æf-
ingum. „Ég get alveg troðið en ég geri
ekki mikið af því. Þegar ég fór fyrst af
stað þá var ég mjög hræddur við að
meiðslin myndu taka sig upp að nýju.
Þegar ég stökk upp í skot þá passaði
ég mig á því að lenda alltaf á vinstri
löppinni. Það er erfitt að spila körfu-
bolta ef þú ert hræddur og að hugsa
um eitthvað annað. Fyrstu vikuna
eftir meiðslin þá dreymdi mig löppina
ennþá í ‚L-i‘ eins og þegar ég meidd-
ist. Ég hef verið að vinna í andlega
þættinum og eins og sjúkraþjálfarinn
segir þá eru meiðslin 70% andleg.
Það þarf líka að vinna sig andlega úr
meiðslum.“
Sverrir ekki eins
klikkaður og Helgi
Ólafur og félagar í Grindavík fengu
nýjan þjálfara fyrir tímabilið. Sverrir
Þór Sverrisson tók þá við af Helga
Jónasi Guðfinnssyni sem hafði stýrt
Grindvíkingum til Íslandsmeistaratit-
ilsins síðasta vor. Ólafur líkar vel við
nýja þjálfarann sem gerði Njarðvík
að tvöföldum Íslandsmeisturum í
kvennakörfunni á síðustu leiktíð.
„Ég kann mjög vel við Sverri Þór og
hann er toppþjálfari. Það er þó eng-
inn eins og Helgi Jónas því hann er
klikkaður einstaklingur,“ segir Ólafur
og hlær. „Sverrir er líkur Helga að því
leytinu til að þeir halda leikmönnum
mjög vel á tánum og skipta manni út
ef maður er ekki að standa sig. Ef þú
gerir það sem þjálfarinn segir þá mun
liðið standa sig.“
Grindvíkingar mæta KR í kvöld í
DHL-höllinni og er Ólafur spenntur
fyrir leiknum. „Ég elska að spila á móti
KR og hef spilað marga af mínum
bestu leikjum á móti KR. Það er fátt
sem kemur mér meira í gang en að
heyra Bubba ‚s-mæltan‘ að syngja KR-
lagið. Ég fæ vonandi að spila eitthvað
og ætla að nýta þau tækifæri sem ég
fæ. Ég er hvíldarmaður á bekknum í
dag en þegar ég verð kominn í topp-
form þá mega andstæðingarnir fara
að vara sig.“
n Ólafur Ólafsson snýr
aftur eftir erfið meiðsli
n Var hræddur á
fyrstu æfingunum
Afleitur í að sitja
á bekknum