Fréttatíminn - 30.10.2015, Blaðsíða 8
Atvinnubílar
Fyrir erfiðustu verkin
Volkswagen Crafter
Extreme Edition
Crafter Extreme Edition kostar aðeins frá
4.596.774 kr. án vsk
Volkswagen Crafter er hannaður til að takast á við krefjandi verkefni
þar sem styrkur og notagildi eru í forgangi. Crafter er einstaklega
hagkvæmur og er með mjög öflugum en jafnframt sparneytnum
díeselvélum. Volkswagen Crafter er með 3 ára ábyrgð og allt að
250.000 km akstur.
Líttu við og í sýningarsal VW Atvinnubíla og kynntu þér einstaklega vel
útbúinn Volkswagen Crafter Extreme Edition.
Aukalega í Volkswagen Crafter
Extreme Edition
• Hraðastillir (Cruise control)
• Bluetooth símkerfi
• Hiti í bílstjórasæti
• Fjaðrandi hæðastillanlegt ökumannssæti
með armpúða
• Vélarhitari með fjarstýringu og tímastilli
• Rafmagns-miðstöðvarhitari
• Aðgerðastýri
• Fjarlægðaskynjarar með bakkmyndavél
• Díóðulýsing í flutningsrými
• Klæðning og rennur í flutningsrými
Staðalbúnaður
• Rennihurðir á báðum hliðum
• 16“ stálfelgur
• Lokað skilrúm með glugga
• ABS / EBV
• ESP stöðugleikastýring og spólvörn
• Bekkur fyrir 2 farþega með
geymslukassa
• Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
• Útvarp með SD kortarauf
• Klukka
• Fullkomin aksturstölva
• Glasahaldari
• Fjarðstýrðar samlæsingar
• Rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar
• Hæðarstillanlegt öryggisbelti
• 270° opnun á afturhurðum
Mögulegur valbúnaður
• Dráttarbeisli 180.000. kr m/vsk
L istamaðurinn Odee hefur sinnt sinni myndlist um nokkurt skeið og segir viðbrögðin mjög
góð. Að undanförnu hefur hann setið
undir ásökunum um brot á höfundar-
rétti frá teiknurum sem teiknað hafa
karaktera sem hann notar í verkum
sínum, sem segja verkin stuld. „Þetta
kemur alltaf upp annað slagið að fólk
er að pirrast á því að ég sé að nota
þessa þekktu karaktera í minni list,“
segir Odee. „Það kemur í svona bylgj-
um. Það eru aðallega tveir listamenn
sem eru hvað heitastir. Það er annars
vegar Stephanie Hans sem vinnur
fyrir Disney og Marvel og er ekki sátt
við að ég notaði Female Thor sem er
hennar karakter, og hins vegar maður
sem heitir Ben Mauro sem er brjálað-
ur þar sem ég tók konsept sem hann
hafði notað í gæluverkefni sínu. Sem
ég notaði sem andlitið í verki mínu
Dagfari,“ segir hann. „Hann hefur
unnið með konsept úr Hobbitanum og
Spider Man og fleiru.
Þau hafa haft samband og beðið
mig um að taka sín verk úr mínum.
Ég hef sagt við þau að ég taki ekki við
sérpöntunum og geri engar breyting-
ar. Ég er búinn að gera ný sjálfstæð
verk sem ég á. Sama hvaða efnivið ég
nota,“ segir hann. „Lagalega hliðin á
þessu er loðin og þetta er grátt svæði,
en samkvæmt íslenskum lögum er ég
nokkuð öruggur. Enda hefur aldrei
orðið neitt úr því sem þau hóta. Þau
hafa hótað mér lögfræðingum og
meira að segja gengið svo langt að
hóta mér lífláti,“ segir Odee.
„Reglan er sú að ef þú tekur tvö eða
fleiri höfundarréttarvarin verk og
blandar þeim saman í nýtt sjálfstætt
verk þá öðlast það sinn eigin höf-
undarrétt. Það eru mörg þekkt dæmi
um þetta og það frægasta er auðvitað
Erró okkar,“ segir hann. „Það mætti
líka stilla þessu þannig upp að ef ég
væri ljósmyndari og væri með mynd
á sýningu úr mínum eigin ísskáp þá
mætti Coca Cola ekki fara í mál við
mig þó þar sæist flaska frá þeim.“
Odee sýnir verk sín á sýningu
hjá Gallerí Fold sem hefst þann 14.
nóvember og hann býst ekki við því að
erlendir lögfræðingar láti sjá sig. „Ég
held bara ótrauður áfram og ég hef
aldrei látið þetta á mig fá,“ segir hann.
„Þeir voru með einhverjar meiningar
MyndList UMdeiLd verk ListaMannsins Odee
Hótað lífláti frá
teiknara Marvel
Listamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, betur þekktur sem Odee,
hefur getið sér gott orð fyrir myndir sínar sem flokkast undir svokall-
aða POP-list. Myndir Odee innihalda persónur úr listasögunni og þá
oftar en ekki teiknimynda- og kvikmyndahetjur. Ekki eru allir sáttir
við þessa aðferð Odee og hefur hann fengið hótanir utan úr heimi frá
teiknurum hjá kvikmyndarisunum Disney og Marvel sem hafa meira
að segja gengið svo langt að hóta honum lífláti. Odee segir listina
vissulega vera á gráu svæði en óttast alls ekki framhaldið.
Odee með eitt verka sinna. Til hægri verkið Dagfari eftir Odee. Að neðan Female Thor.
um það að senda lögfræðiteymi frá
Marvel á þessa sýningu. Ég hef
svo ekkert heyrt neitt meira um
það, svo það kemur bara í ljós.
Það er greinilega eitthvað
til sýnis þarna sem þeir
vilja ekki að sé til sýnis,“
segir listamaðurinn
Odee.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 30. október-1. nóvember 2015