Fréttablaðið - 04.02.2016, Side 20
Geta þessar stóru
matvöruverslanir
ekki farið að bjóða
uppá netkaup þar
sem ég er með Mínar
síður og get svo fengið
þetta sent heim? Ég
væri tilbúinn í slíkt
samstarf.
Mér leiðist að kaupa í matinn. Ég kvíði því jafnvel. Ég er að meina
þessi stórinnkaup. Ég fresta þessu
eins lengi og ég get og gef mér ekki
tíma til að sinna þessu fyrr en á
síðustu stundu. Mér finnst alveg
gaman að fara í sumar búðir, bara
ekki matvöruverslanir. Mér finnst
gaman að ráfa um Elkó og skoða
allskonar drasl sem ég kaupi
sjaldnast.
Uppáhalds búðirnar mínar á
Íslandi eru líklega Húsasmiðjan og
Byko. Þar get ég hangið klukku-
tímum saman. Í Ameríku eru það
Home Depot og Target. Ég tala nú
ekki um ef það er Super Target. Þá
bara verð ég að stoppa. Mér finnst
krúttlegar sérvöruverslanir líka
oft skemmtilegar, svona lífrænt
og beint frá býli og svoleiðis. Það
er líka yfirleitt gaman að koma í
fiskbúð. Það er eitthvað svo hress-
andi.
Ég versla eins lítið við kaup-
manninn á horninu og ég get og
sneiði hjá 10-11 nema í algjörri
neyð. Ég er líka einn fárra
Vesturbæinga sem finnst ekki
stórskemmtilegt og sjarmerandi
að fara í Melabúðina. Hagsýna
húsmóðirin í mér strækar á það.
Ég vil ekki borga svona mikið fyrir
matinn minn. Svo þekki ég svo
marga þar að mestur tíminn fer í
eitthvert spjall við fólk um hvað
sé að frétta og hvort gangi ekki vel
og svoleiðis. Mér finnst matvöru-
verslun enginn vettvangur fyrir
slíkar samræður. Ég lít á matar-
innkaup sem verkefni en ekki
félagslega athöfn. Og mér finnst
það leiðinlegt og reyni að ljúka
því eins skipulega og effektíft og
ég get; nái sem mestu, á ásættan-
legu verði og á sem stystum tíma.
Ég finn líka mikið til með fólki
sem er að versla með smábörnum.
Ég þekki þá martröð af eigin raun.
Þegar innkaupum er lokið þá
tekur ennþá verra við. Það þarf
að bera allar vörurnar útí bíl.
Svo þarf að bera þær inn. Ég bý á
annarri hæð og þarf því að púla
upp endalausa stiga. Ef ég er með
mikið þarf ég jafnvel að fara
nokkrar ferðir framogtilbaka.
Auðvitað lagaðist þetta heilmikið
eftir að fjögur elstu börnin fluttu
að heiman. Að kaupa í matinn
fyrir fjóra hungraða unglinga
er ekkert smáræði.
Ég fer yfirleitt í Krónuna
eða Bónus. Ef ég nenni
ekki þangað fer ég í Nettó.
Mér finnst þessar verslanir
allar nokkuð fyrirsjáanlegar
og sjaldnast eitthvað sem
kemur á óvart í vöruúrvalinu.
Enda er þetta yfirleitt það
sama sem ég er að kaupa.
Geta þessar stóru matvöru-
verslanir ekki farið að bjóða
uppá netkaup þar sem ég er
með Mínar síður og get svo
fengið þetta sent heim? Ég
væri tilbúinn í slíkt samstarf.
Við verðum að versla
Alþjóðlegur dagur gegn krabbameini er haldinn árlega 4. febrúar. Alþjóða-
samtökin gegn krabbameini (UICC)
skora nú á þjóðir heims að taka þátt
í að vekja athygli á baráttunni gegn
krabbameini undir slagorðunum
VIÐ GETUM – ÉG GET.
Mikilvægt er að samfélög og ein-
staklingar leggi sitt af mörkum til
að draga úr tíðni krabbameins og
áhrifum sjúkdómsins.
Fagdeild krabbameinshjúkr-
unarfræðinga á Íslandi fagnar í ár
20 ára afmæli sínu og fer nú af stað,
í samvinnu við Krabbameinsfé-
lag Íslands, með röð greina undir
heitinu VIÐ GETUM – ÉG GET. Í
þessari fyrstu grein er áhersla lögð
á forvarnir.
VIÐ GETUM – haft áhrif á tíðni
krabbameins
Á Íslandi greinast árlega að meðal-
tali um 1.450 einstaklingar með
krabbamein og um fjórðungur allra
dánarmeina er af völdum krabba-
meins. Krabbamein er bæði flókinn
og kostnaðarsamur sjúkdómur
fyrir einstaklinginn og samfélagið.
Áætlað er að koma megi í veg
fyrir 30-40% krabbameina með
heilsusamlegum lífsháttum. Þeir
þættir sem skipta mestu máli eru
reykingar, offita, ofneysla áfengis,
mataræði og hreyfing. Við getum
sem samfélag og sem einstaklingar
minnkað líkurnar á krabbameini
með því að tileinka okkur heilsu-
samlega lífshætti og með því að
beita aðgerðum sem auðvelda slíkt.
Við sem samfélag og einstaklingar
getum fundið leiðir og beitt okkur
fyrir eftirtöldum þremur meginráð-
leggingum:
Reykjum ekki né notum tóbak.
Reykingar hafa verið og eru enn
langstærsti áhættuþátturinn og
eru orsök 20-30% allra krabba-
meinstilfella. Mikilvægt er að vinna
stöðugt að tóbaksvörnum. Með því
að reykja ekki né nota tóbak má
koma í veg fyrir og draga úr líkum
á mörgum tegundum krabbameina
t.d. í lungum, munnholi, vélinda,
brisi, nýrum, þvagblöðru og leg-
hálsi.
Drekkum áfengi í hófi ef þess er
neytt á annað borð. Ofneysla áfeng-
is er áhætta fyrir mörg krabbamein,
t.d. brjóstakrabbamein, krabba-
mein í munni, barka, vélinda, ristli
og lifur.
Forðumst ofþyngd og offitu. Með
því að borða hollan mat, hreyfa sig
reglulega og vera í kjörþyngd má
koma í veg fyrir um 25-30% krabba-
meinstilvika vegna t.d. krabbameins
í ristli, brjóstum, legi, eggjastokkum,
brisi, vélinda, nýrum og gallblöðru.
ÉG GET – verið meðvitaður um
einkennin og brugðist við þeim
Það er ekki alltaf auðvelt að greina
krabbamein, sum þeirra gera engin
eða óljós boð á undan sér fyrr en
að sjúkdómurinn er langt genginn.
Ýmsar leiðir hafa verið prófaðar til
þess að greina krabbamein á forstigi
eða á frumstigi hjá einkennalausum
einstaklingum, en þær þurfa að
vera áreiðanlegar og hættulitlar
til þess að þeim sé beitt. Flestum
aðferðunum er beitt á einstaklings-
grundvelli, en mælt er með þremur
þeirra fyrir hópleit (skimun), við
leit að brjóstakrabbameini, legháls-
krabbameini og ristilkrabbameini.
Mörg krabbamein geta gefið
frá sér einkenni eða merki sem er
mikil vægt að þekkja og bregðast
við. Líkur á lækningu er meiri því
fyrr sem krabbamein er greint.
Þetta á til dæmis við um krabba-
mein í lungum, þvagblöðru, ristli,
brjóstum, leghálsi, kvið, eggja-
stokkum, eistum og sortuæxli.
Nokkur einkenni sem mikilvægt
er að þekkja:
l Þrálátur hósti og erfiðleikar við
kyngingu
l Erfiðleikar við þvaglát eða blóð
í þvagi
l Blæðing frá endaþarmi eða blóð
í hægðum
l Breytingar á brjóstum (til
dæmis hnútur eða inndráttur,
útferð)
l Blæðingar eftir tíðahvörf
l Viðvarandi kviðverkir
l Óútskýrt þyngdartap eða
þyngdaraukning
l Viðvarandi þreyta sem minnkar
ekki við hvíld
l Eitlastækkanir
l Hnútar, til dæmis í eistum
l Breytingar á húð og slímhúð
(til dæmis sár í munni sem
gróa ekki, sár á kynfærum eða
breytingar á fæðingarblettum)
Einkenni hér að ofan geta vakið
grun um krabbamein en geta einnig
verið til marks um aðra sjúkdóma.
Það skiptir miklu máli að hver og
einn bregðist við þeim.
VIÐ GETUM sem samfélag og
ÉG GET sem einstaklingur dregið
úr tíðni krabbameins og bætt lífs-
gæði með því að leggja áherslu á
að ástunda heilsusamlega lífshætti
og bregðast við mögulegum ein-
kennum.
Heimildir:
Krabbameinsfélagið
http://www.krabb.is
Krabbameinsskráin
http://www.krabbameinsskra.is/
World Cancer Day
http://www.worldcancerday.org/
Við getum – ég get
Sigrún Lillie
Magnúsdóttir
hjúkrunar-
fræðingur og
forstöðumaður
Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfé-
lagsins
Nanna
Friðriksdóttir
sérfræðingur í
hjúkrun krabba-
meinssjúklinga,
lektor á lyflækn-
ingasviði LSH og
aðjunkt við HÍ
Nú þegar líður að því að fimm ár séu liðin frá því að borg-arastyrjöld braust út í Sýr-
landi heldur alvarlegasti mannlegi
harmleikur samtímans áfram, en
um 250 þúsund mannslíf hafa tap-
ast í Sýrlandsstríðinu fram til þessa.
Alþjóðasamfélagið verður að taka
sig verulega á til að bregðast við og
hjálpa hinum átján milljónum íbúa
Sýrlands og grannríkja þess, sem eru
í brýnni þörf fyrir neyðaraðstoð.
Í dag hefst í London alþjóðlega
ráðstefnan „Supporting Syria and
the region 2016“, sem bresk stjórn-
völd standa að ásamt Þýskalandi,
Kúveit, Noregi og Sameinuðu þjóð-
unum. Ráðstefnunni er ætlað að
nálgast vandann með nýjum og
metnaðarfullum hætti, sem miðar
að því að stuðla að meiri langtíma-
stuðningi við flóttamenn. Þessu
á að áorka með hnitmiðuðum
aðgerðum til að tryggja afkomu
fólksins og lífsviðurværi og bættan
aðgang að menntun. Með þessu er
vonast til að flóttafólkið búi yfir
þeirri færni og þekkingu sem best
er til þess fallin að tryggja framtíð
þess og möguleika á að snúa heim
og byggja upp heimaland sitt að
nýju að stríði loknu. Það gleður mig
að Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra verður meðal
leiðtoga sem sækja ráðstefnuna og
leggur markmiðum hennar lið fyrir
Íslands hönd.
Á ráðstefnunni í London er líka
ætlunin að leita lausna á þeirri
miklu neyð sem sýrlenskur almenn-
ingur stendur frammi fyrir, og safna
verulega auknum fjárframlögum
til að mæta þörfum nauðstaddra,
bæði til skemmri og lengri tíma.
Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir
framlögum upp á alls um 7,7 millj-
arða Bandaríkjadala. Þá er gert ráð
fyrir að framlög upp á 1,2 milljarða
dala til viðbótar vanti til að standa
straum af kostnaði sem stjórnvöld
í nágrannaríkjum Sýrlands bera af
móttöku flóttamanna.
Bretland leiðandi afl
Bretland hefur verið leiðandi afl í
viðleitni alþjóðasamfélagsins til að
taka á vandanum í Sýrlandi. David
Cameron forsætisráðherra hefur
fylgt eftir af festu þeirri stefnu að
finna allsherjarlausn á vandanum,
sem tekur á rótum hans frekar en
einvörðungu að bregðast við afleið-
ingunum.
Í þessari stefnu felst að alþjóða-
samfélagið leggist saman á árar til
að binda enda á hin grimmilegu
stríðsátök sem enn geisa í landinu.
Stefnan er þríþætt og nær til póli-
tískra og hernaðarlegra þátta auk
mannúðaraðstoðar. Hvað hina
pólitísku vídd varðar er Bretland
einn af burðarásum Alþjóðabanda-
lagsins til stuðnings Sýrlandi (ISSG –
Inter national Syria Support Group),
sem vinnur að pólitískri lausn og
að byggja brú yfir í friðsamlega
framtíð. Hernaðarlega tekur Bret-
land virkan þátt í herferðinni gegn
Daesh, hryðjuverkasveitunum sem
kenna sig við Íslamskt ríki. Bretland
er jafnframt annar stærsti veitandi
neyðaraðstoðar við flóttafólk á
svæðinu, næst á eftir Bandaríkj-
unum. Framlög frá Bretlandi eru nú
þegar komin yfir 1,1 milljarð sterl-
ingspunda, sem varið er til mann-
úðar aðstoðar af öllu tagi, matar-
sendinga, tjaldbúða, læknishjálpar
og hreins drykkjarvatns fyrir hundr-
uð þúsunda nauðstaddra.
Grannríki Sýrlands eins og Jórd-
anía, Tyrkland og Líbanon hafa án
vafa bjargað miklum fjölda manns-
lífa með rausnarskap sínum gagn-
vart flóttafólki og með því að veita
því hæli skammt frá heimahögum
sínum, frekar en að það takist á
hendur hættulega för í átt til Evr-
ópu.
En við verðum öll að leggja
meira á okkur. Við verðum að taka
saman höndum um að gera Sýr-
land að öruggari stað, með markið
sett á friðsamlega uppbyggingu til
framtíðar. Alþjóðasamfélaginu ber
skylda til að hjálpa þeim fjórum
milljónum manna sem dvelja í
flóttamannabúðum í grannríkjum
Sýrlands, sem og þeim 13 milljónum
sem eru í nauðum staddar innan
Sýrlands sjálfs. Sýrlenska þjóðin
þarf að vita og finna að alþjóðasam-
félagið stendur með henni og muni
gera það áfram.
Ráðstefnan í London mun ein og
sér ekki vera fær um að leysa þau
margslungnu vandamál sem við er
að etja í Sýrlandi, og finna verður
pólitíska lausn á deilunni. En með
því að halda áfram að beina kast-
ljósinu að óhæfuverkum í garð sak-
lauss almennings munum við sjá til
þess að áþján sýrlensku þjóðarinnar
gleymist ekki.
Sameinumst um aðstoð
við Sýrlendinga
Stuart Mill
sendiherra Bret-
lands á Íslandi
Jón G
narr
Pistillinn
Við getum sem samfélag og
sem einstaklingar minnkað
líkurnar á krabbameini með
því að tileinka okkur heilsu-
samlega lífshættiog með því
að beita aðgerðum sem auð-
velda slíkt.
Alþjóðasamfélaginu ber
skylda til að hjálpa þeim
fjórum milljónum manna
sem dvelja í flóttamannabúð-
um í grannríkjum Sýrlands,
sem og þeim 13 milljónum
sem eru í nauðum staddar
innan Sýrlands sjálfs. Sýr-
lenska þjóðin þarf að vita og
finna að alþjóðasamfélagið
stendur með henni og muni
gera það áfram.
4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r20 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð I ð
0
3
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
C
-4
1
6
0
1
8
5
C
-4
0
2
4
1
8
5
C
-3
E
E
8
1
8
5
C
-3
D
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K