Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 26

Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 26
Ég myndi ekki segja að ég hafi mikinn áhuga á tísku. Frekar myndi ég segja að áhugi minn liggi í lífsstíl og hegðun fólks. Oft er hægt að lesa mikið í fólk út frá klæðnaði og hvern- ig það ber sig. Rúrik Andri Þorfinnsson Það er nóg að gera hjá hinum 23 ára gamla Rúrik Andra Þorfinnssyni. Í vor klárar hann viðskiptafræði, með áherslu á fjármál, frá Háskóla Íslands auk þess sem hann kenn­ ir í Nóbel námsbúðunum og sinnir einkakennslu á háskólastigi. Þess á milli starfar hann sem ráðgjafi hjá Íslandsbanka og hefur gert í nokkur ár. „Svo er ég leik­ maður meistaraflokks Fram í knatt­ spyrnu en hef lítið náð að spila und­ anfarin ár vegna þrálátra meiðsla.“ Rúrik Andri er fæddur í París þar sem foreldrar hans bjuggu á sínum tíma en hefur meira og minna búið í Hlíðunum undanfar­ in ár. „Ég hef brennandi áhuga á fjármálum, mannlegum samskipt­ um, smekklegum fatnaði, góðum mat, ferðalögum og hamingju. Síðan elska ég móður mína, kær­ ustuna og nánustu aðstandendur. Ég kem af æðislegu fólki og reyni ég að taka þá samhygð og óeigin­ girni sem það sýnir daglega inn í mína eigin hegðun.“ Hvenær fékkstu áhuga á tísku? Ég myndi ekki segja að ég hafi áhuga á tísku. Frekar myndi ég segja að áhugi minn liggi í lífsstíl og hegð­ un fólks. Oft er hægt að lesa mikið í fólk út frá klæðnaði og hvern­ ig það ber sig. Ég reyni að fylgja eigin huga þegar kemur að tísku en viðurkenni þó að hafa fallið í gryfju hóphegðunar þegar kemur að tískufyrirbærum eins og Nike Free og Timber land skóm. Hvernig myndir þú lýsa fatastíln- um þínum? Stíllinn minn er fyrst og fremst klassískur, faglegur og smekklegur ásamt því að ég vil að hann tengist mér persónulega. Að reyna að finna klæðnað sem hent­ ar þér sjálfum er mikilvægt og þá meina ég að þér líði vel með fötin. Hvernig fylgist þú með tísku? Ég myndi ekki segja að ég fylgist með tísku með markvissum hætti. Tíska er meira og minna komin inn í daglegt líf okkar í gegnum bíómyndir, sjónvarpsþætti, ver­ aldarvefinn og annað afþreying­ arefni. Því er næstum ómögu­ legt fyrir venjulega manneskju að fylgjast ekki með tísku. Hvað einkennir klæðnað ungra karlmanna í dag? Hann er frá­ bær. Fyrir hvern þann sem klæð­ ir sig eins og Justin Bieber er Skiptir meStu að manni líði vel Þótt Rúrik Andri sé áberandi snyrtilega klæddur ungur maður segist hann hafa lítinn áhuga á tísku. Stíllinn hans er fyrst og fremst klassískur, faglegur og smekklegur ásamt því að vera persónulegur. Hér klæðist Rúrik Andri jakkafötum frá Tiger of Sweden. Skyrtan og peysan eru einnig þaðan. Skórnir eru frá Paul Smith. MYNDiR/ERNiR Buxur og frakki frá Kormáki og Skildi og trefill frá Paul Smith. Hér klæðist Rúrik Andri buxum frá Weekdays og jakka frá Pull and Bear. annar strákur sem klæðir sig eins og hippi á leið á Woodstock. Það skiptir ekki máli hvaða stíl menn sækjast eftir svo lengi sem þeir eru ánægðir og líður vel í eigin skinni. Áttu þér uppáhaldsverslanir? Kult­ ur Menn og Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar eru í upp­ áhaldi. Svo þarf ég að prufukeyra Suitup á Laugaveginum þar sem góðvinur minn Egill Ásbjarnar­ son sérsaumar gæðafatnað á karl­ menn. Áttu þér eina uppáhaldsflík? Ég á leðurjakka sem færeyskur hönn­ uður gerði og býst ég ekki við að margir þannig séu til í heiminum. Hann er einstakur og passar mér mjög vel. starri@365.is Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Síð peysa/túnika 13.900 kr. 2 litir: svart með kremhvítu og blátt með ljósbláu. Stærð 36 - 48. Opið virka daga kl. 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Nýtt frá Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Nýjar vörur í hverri viku Baknuddnámskeið verður næst helgina 6 – 7 febrúar n.k. frá kl. 11.00-15.00 Vinsælt og nothæft námskeið fyrir einstkalinga og pör sem ég hef verið með í 25 ár. Námskeiðið byggist upp á slökunarnuddi á bak, háls og handleggi með sérvöldum ilmkjarnaolíum. Djúp- og þrýstipunktanuddi ásamt svæðameðhöndlun. Farið í ilmolíur og góðar uppskriftir. Skráning og nánari upplýsingar í síma 896 9653 og á Heilsusetur.is eða á thorgunna.thorarinsdottir@gmail.com. BESTA TÓNLISTIN FRÁ 1960 1985 ÞESSI GÖMLU GÓÐU Á EINUM STAÐ 4 FÓLK Tíska 4. febrúar 2016 0 3 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 C -3 C 7 0 1 8 5 C -3 B 3 4 1 8 5 C -3 9 F 8 1 8 5 C -3 8 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.