Fréttablaðið - 04.02.2016, Qupperneq 42
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragnhildur Helgadóttir
fyrrverandi alþingismaður
og ráðherra,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 29. janúar. Hún verður
jarðsungin frá Neskirkju við Hagatorg mánudaginn
8. febrúar kl. 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Ástusjóð (banki 301-13-302339, kt. 630714-0440) og
minningarsjóði Landspítalans.
Þórunn Þórsdóttir
Kristín Þórsdóttir og Þórir Óskarsson
Inga Þórsdóttir og Stefán Einarsson
Helgi Þórsson og Guðrún Eyjólfsdóttir
barnabörn og börn þeirra.
Viðar Daníelsson
byggingameistari
verður jarðsunginn frá Lindakirkju,
Kópavogi, föstudaginn 5. febrúar kl. 13.
Aðstandendur
Þökkum auðsýnda samúð
við andlát móður okkar,
Jónínu Ásgeirsdóttur
Kaaber
Guðrún Elín, Ásgeir, Eva, Kári og
Birgir Kaaber og fjölskyldur.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi og vinur,
Páll G. Björnsson
framkvæmdastjóri,
Nestúni 13, Hellu,
lést á Sjúkrahúsi Selfoss 2. febrúar.
Ragnar Pálsson Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir
Ragnar Páll, Ásgerður og Þorgerður
Stefán Smári, Álfheiður Fanney og Ásrún Ásta
Þórný Þórarinsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragna G. Ágústsdóttir
lífeindafræðingur,
Gullsmára 7, Kópavogi,
lést mánudaginn 1. febrúar síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Elísabet Kristbergsdóttir Guðmundur Hjaltason
Halldóra Kristbergsdóttir
Magnús Kristbergsson Helena Bjarman
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur bróðir okkar, mágur
og frændi,
Hólmkell Ögmundsson
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi, sunnudaginn
31. janúar síðastliðinn.
Útför fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 6. febrúar kl. 11.00.
Aðstandendur
Okkar elskulegi faðir,
Daníel Pétursson
flugstjóri, áður til heimilis að
Sunnuflöt 32, Garðabæ,
Hraunvangi 3, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 21. janúar. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks Landakots á deild K2
fyrir einstaka umönnun.
María Sigríður Daníelsdóttir Sigurður Jónsson
Pétur Daníelsson Sigrún Ósk Ólafsdóttir
Þóra Hrönn Daníelsdóttir Patrik Ahmed
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jóhann Þorsteinsson
frá Litlu Hlíð,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
mánudaginn 25. janúar sl. Útför hans fer
fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn
5. febrúar kl. 13.00. Þökkum starfsfólki
Sunnuhlíðar góða umönnun.
Sigurður Barði Jóhannsson Valgerður Vésteinsdóttir
Steingerður Jóhannsdóttir Árni B. Emanúelsson
Áróra Jóhannsdóttir
Friðþjófur Jóhannsson Áslaug Ó. Kolbeinsdóttir
Júlíus Ragnar Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar heittelskaða eiginkona, móðir,
amma og tengdamamma,
Ragnhildur Magnúsdóttir
Skógarseli 43, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 28. janúar sl.
Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn
5. febrúar kl. 13.00.
Jóhann Steinsson
Erla Jóhannsdóttir Pétur Guðmundarson
Steinn Jóhannsson Berglind Ósk Ólafsdóttir
María Jóhannsdóttir Bjarki Már Hinriksson
og barnabörnin Alexandra, Ólafur Jóhann, Ísak, Patrik,
Andri Már, Jóhann Berg og Rakel
Innilegar þakkir fyrir veittan stuðning
vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns,
Jóns Halldórs Olsen
Björnssonar
Hringbraut 63, Keflavík.
Sérstakar þakkir fá MND teymi LSH,
Nesvellir dagdvöl, Kobbi fyrir einstaka tryggð,
Rikki hjá Útfararþjónustu Suðurnesja, yfirmenn og
starfsfólk Byko Breidd, fyrir einstakan hlýhug og stuðning
í þessari erfiðu baráttu og allir þeir sem heimsóttu hann í
veikindum hans.
Hanna Ingimundardóttir
„Undanfarið hef ég óspart reynt að
sannfæra sjálfan mig um að aldur sé
bara tala en eftir því sem nær dregur
hinni stóru stund hefur fjarað mjög
undan þeirri sannfæringu,“ segir Krist-
jón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri
Pressunnar og DV.is, um fertugsafmælið
í dag. Honum finnst erfitt að verða mið-
aldra – finnur samt engan mun. „Ég er
ekki farinn að hækka í sjónvarpinu og
heldur ekki kominn með vatnsglas á
náttborðið,“ huggar hann sig við og
vippar sér í alvarlegri gír.
„Að öllu gamni slepptu þá eigum við
að vera þakklát fyrir hvern dag sem við
fáum að taka þátt í þessu samkvæmi
og njóta stundanna með fjölskyldu og
vinum.“
Kristjón býst við að drjúgur tími dags-
ins fari í að svara símtölum og kveðjum.
Hann lýkur miklu lofsorði á samstarfs-
fólkið en kveðst þó munu beita sér fyrir
því að þeir sem segi brandara á hans
kostnað innan fyrirtækisins í dag verði
umsvifalaust reknir. Þeir sem hrósa
honum fyrir unglegt útlit gætu hins
vegar átt von á stöðuhækkun síðar á
árinu.
Í kvöld er móðir hans, Elísabet Jökuls-
dóttir, búin að bjóða honum í mat. „Það
er ekki hægt að skorast undan því þegar
tilvonandi forseti boðar mann í heim-
sókn. Ég vil heldur ekki styggja mömmu
ef hún skyldi vinna þessar kosningar svo
mér verði nú boðið á Bessastaði reglu-
lega,“ segir Kristjón sem stefnir á að
bjóða sínum nánustu í gott partí síðar
í vetur. „Svo treysti ég því að þú veljir
unglegustu myndina af mér. Ég hótaði
ljósmyndaranum mjög mikið, þú skalt
ekki verða hissa þó hann komi dálítið
bældur til baka.“ gun@frettabladid.is
Vil ekki styggja mömmu
Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri Pressunnar og DV.is, er fertugur í dag og tilfinn-
ingarnar eru blendnar. Kvöldið lofar góðu því tilvonandi forseti boðar hann í heimsókn.
Kristjón er búinn að skrifa nokkrar bækur og stefnir á þá braut síðar. Fjölmiðlabransinn hefur átt hug hans síðustu ár en hann lítur á það sem
hluta af rithöfundarferlinum. Fréttablaðið/anton brinK
4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r30 T í M a M ó T ∙ f r É T T a b L a ð I ð
tímamót
0
3
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
5
C
-1
4
F
0
1
8
5
C
-1
3
B
4
1
8
5
C
-1
2
7
8
1
8
5
C
-1
1
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K