Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 45

Fréttablaðið - 04.02.2016, Síða 45
Verkið Old Bessastaðir verður frumsýnt í kvöld, en ekki í gær líkt og Fréttablaðið greindi frá. Hér með er það leiðrétt. Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur 4. febrúar 2016 Leiðsögn Hvað? Leiðsögn um sýningar Jóns Laxdal Halldórssonar og Jónborgar Sigurðardóttur Hvenær? 12.15 Hvar? Listasafnið á Akureyri Hlynur Hallsson mun leiða leið- sögnina um sýningarnar sem bera heitin … úr rústum og rusli tímans og Völundarhús plastsins en auk Hlyns tekur Jonna á móti gestunum. Aðgangur er ókeypis. Listasýningar Hvað? Opnun listasýningarinnar KONA Hvenær? 17.00 Hvar? Gallery O, hjá Orange Project í Ármúla 4-6. Hvað: Opnun listasýning „KONA“ Málverk eftir Gunnar Gunnarsson, skúlptúrar eftir Finnbogi Gunn- laugsson og að auki frum- samin tónlist eftir Finn- boga með raftónlistar- manninum Jakob Reyni. Allir vel- komnir á opnunina, sem og sýninguna sem verður opin alla virka daga frá klukkan 9.00-17.00. Hvað? Ljósmyndasýning Hvenær? 17.00 Hvar? Coocoo’s Nest Brynja Bjarnadóttir stendur fyrir ljósmynda- sýningu, sem verður opnuð í dag. Myndirnar eru teknar á Kúbu, en hún ferðaðist þangað með filmuvélina sína. Eru myndirnar prentaðar á gömul lök og rammarnir úr gömlu timbri. Sýningin stendur út febrúarmánuð. Aðgangur ókeypis. Önnur afþreying Hvað? Félagsvist á vegum Rangæinga- og Skaftfellingafélagsins Hvenær? 20.00 Hvar? Salur Skaftfellingafélagsins, Laugavegi 178 , 4. hæð Mikið verður um dýrðir þegar blásið verður til félagsvistar í kvöld. Vegleg verðlaun eru í boði og kaffiveitingar á boðstólum. Allir hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hvað? Opnunarkvöld Vetrarhátíðar Hvenær? 19.30 Hvar? Við Hörpu Vetrarhátíð verður sett með afhjúpun verksins Slettireku, við Hörpu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setur hátíðina. Á opn- unarkvöldinu verður ljósahjúp Hörpu breytt í risastóran gagn- virkan striga sem almenningur getur myndskreytt með sýndar- málningu. Einnig verður blásið til snjóbrettapartís. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Fyrirlestrar og erindi Hvað? Bragur og breytingar, Kolbeinn og himnasmiðurinn Hvenær? 16.30 Hvar? Askja, stofa 132 Í fyrirlestrinum, sem Guðrún Þór- hallsdóttir, dósent í íslenskri mál- fræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, mun flytja, verður fjallað um gildi kveðskapar sem heim- ildar um íslenskt mál að fornu og málbreytingar á fyrstu öldum rit- aldar á Íslandi. Tekið verður dæmi af skáldinu Kolbeini Tumasyni og kveðskap hans, ekki síst sálminum Heyr, himna smiður, kvæði sem sker sig úr bæði efnisins vegna og bragarháttar- ins. Allir velkomnir. Hvað? Hönnuðir hittast á Einari Ben Hvenær? 17.15 Hvar? Einar Ben, Veltusundi Opnir fræðslu- og spjallfundir sem snúast að miklu leyti um HönnunarMars og sitthvað hagnýtt sem tengist þátt- töku í hátíðinni. Í dag verður boðið upp á spurningar og svör með HönnunarMars teyminu. Hönnuðir og arkitektar sérstaklega hvattir til að kíkja við. Aðgangur ókeypis. Hvað? Skapandi greinar – ný mjólkurkýr? Hvenær? 14.00 Hvar? Nauthóll Félag atvinnurekenda efnir til opins fundar á undan aðalfundi félagsins. Yfirskrift fundarins er „Skapandi greinar – ný mjólkur- kýr?“ og verður þar fjallað um vax- andi verðmætasköpun listgreina á borð við kvikmyndagerð, tónlist og hönnun og framlag þeirra til útflutningstekna og hagvaxtar. Taka til máls þau Illugi Gunnars- son mennta- og menningarmála- ráðherra, Guðný Guðjónsdóttir, forstjóri Sagafilm, Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri Útón, og Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður. Hanna Katrín Frið- riksson, framkvæmdastjóri hjá Icepharma, sér um fundarstjórn. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Hvað? Heimilið er hægfara atburður. Þjóðfræðileg greining á Stúdenta- görðunum Hvenær? 16.00 Hvar? Safnahúsið, Hverfisgötu Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir tekur að sér að flytja næsta fyrir- lestur í mánaðarlegri fyrirlestraröð Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Sig- rún er með MA-próf í þjóðfræði, og segir hún gestum frá MA-rit- gerð sinni, sem ber sama titil og fyrirlesturinn. Allir velkomnir. Hvað? Frontex og landamærastjórn Hvenær? 12.00 Hvar? Þjóðminjasafnið Berndt Körner, varaforstjóri Front- ex, Landamærastofnunar Evrópu, verður ræðumaður á hádegisfundi Varðbergs í dag. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Tónlist Hvað? Paul Brown og hljómsveit Hvenær? 21.00 Hvar? Café Rosenberg Grammy-verðlaunahafinn, gítar- leikarinn og upptökustjórinn Paul Brown leikur á tónleikum í kvöld. Aðeins er um að ræða þessa einu tónleika kappans á landinu, en hann hefur að auki fengið Jack Magnet og Friðrik Karlsson til liðs við sig. Aðgangseyrir 2.500 krónur. Hvað? Hádegistónleikar Hönnu Þóru og Birgis Hvenær? 12.00 Hvar? Fríkirkjan í Reykjavík Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópr- an og Birgir Þórisson píanóleikari flytja fjölbreytta dagskrá á ljúfum nótum í hádeginu í dag. Flutt verða Verk eftir Edvard Grieg, Kurt Weill, Jón Múla Árnason og fleiri. Tónleikarnir taka um hálfa klukkustund og aðgangseyrir er 1.500 krónur. Ekki er tekið við greiðslukortum. Hvað? Opið hús með Dj Julie Hvenær? 20.00 Hvar? Samtökin 78, Suðurgötu 3 Opið hús í dag, þegar DJ Julie mun leika fyrir gesti hinsegin tóna. Kjör- inn vettvangur til að koma saman og kynnast fólki. Allir velkomnir. Hvað? Moses Hightower Hvenær? 21.00 Hvar? Kex Hostel Hljómsveitin Moses Hightower hefur fyrir löngu heillað lands- menn með huggulegum tónum. Bandið mun í kvöld ylja gestum Kex Hostels. Aðgangur ókeypis. Leiksýningar Hvað? Frumsýning Old Bessastaðir Hvenær? 20.30 Hvar? Tjarnarbíó Old Bessastaðir er nýtt leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur í upp- færslu Sokkabandsins, þar sem þær Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og María Heba Þor- kelsdóttir standa á sviðinu í kvöld og frumsýna verkið í leikstjórn Mörtu Nordal. Miðasala á midi.is. Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is Fleiri myndir í sýningu á emidi.is - MBL - USA TODAY- BÍÓVEFURINN 5 ÓSKARSTILNEFNINGAR -T.V., BIOVEFURINN -S.G.S., MBL THE BOY 8, 10:10 THE REVENANT 5:50, 9 RIDE ALONG 2 5:50 NONNI NORÐURSINS 5:50 ÍSL.TAL THE HATEFUL EIGHT 10:30 SISTERS 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKA DIRTY GRANDPA KL. 8 - 10:20 CREED KL. 10:20 ÚBBS! NÓI ER FARINN... ÍSLTAL KL. 5:50 DADDY’S HOME KL. 8 STAR WARS 3D KL. 5:15 DIRTY GRANDPA KL. 5:40 - 8 - 10:20 DIRTY GRANDPA VIP KL. 8 - 10:20 CREED KL. 5:15 - 8 - 10:45 ÚBBS! NÓI ER FARINN... ÍSLTAL KL. 6 DADDY’S HOME KL. 8 - 10:20 POINT BREAK KL. 10:10 STAR WARS 3D KL. 5:15 - 8 - 10:45 STAR WARS 2D KL. 7 STAR WARS 2D VIP KL. 5:15 GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 2D KL. 5 DIRTY GRANDPA KL. 5:40 - 8 - 10:40 CREED KL. 8 - 10:40 ÚBBS! NÓI ER FARINN... ÍSLTAL KL. 5:10 THE BIG SHORT KL. 8 DADDY’S HOME KL. 5:50 STAR WARS 2D KL. 5:10 - 10:10 DIRTY GRANDPA KL. 5:40 - 8 - 10:20 CREED KL. 10:10 ÚBBS! NÓI ER FARINN... ÍSLTAL KL. 6 THE BIG SHORT KL. 5:20 - 8 - 10:45 DADDY’S HOME KL. 8 DIRTY GRANDPA KL. 8 - 10:20 CREED KL. 10:20 DADDY’S HOME KL. 8 EGILSHÖLL Sýnd með íslensku tali  WHAT CULTURE  DFW.COM  USA TODAY  K.Ó. VISIR.IS  S.G.S. MORGUNBLAÐIÐ  TOTAL FILM óskarstilnefningar5 Yfir 80.000 manns Þökkum frábærar viðtökur Besti leikari í aukahlutverki- Sylvester Stallone Frábær teiknimynd fyrir alla fjölskylduna  THE NEW YORKER  TIME Frábær grínmynd frá þeim sömu og færðu okkur BORAT Besti leikari í aukahlutverki - Christian Bale Besti leikstjóri - Adam McKay óskarstilnefningar  NEW YORK TIMES HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 Youth 17:30 45 years 18:00 Rams / Hrútar ENG SUB 18:00 Njósnir, lygar og fjölskyldubönd ENG SUB 20:00 Joy 20:00 Sparrows / Þrestir ENG SUB 20:00 Marguerite 22:00 A Perfect day 22:30 Virgin mountain / Fúsi ENG SUB 22:00 Grammy-verðlaunahaf- inn Paul Brown verður á Café Rosenberg í kvöld. M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 33F i M M T U D A g U R 4 . F e B R ú A R 2 0 1 6 0 3 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 C -3 2 9 0 1 8 5 C -3 1 5 4 1 8 5 C -3 0 1 8 1 8 5 C -2 E D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.