Fréttablaðið - 04.02.2016, Page 46
Dans
Óður og Flexa halda afmæli
HHHHH
Hannes Þór Egilsson
og Þyri Huld Árnadóttir
Leikstjóri: Pétur Ármannsson
Ljósahönnuður:
Jóhann Friðrik Ágústsson
Hljóðmynd: Baldvin Magnússon
Sviðsmynd og búningar:
Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Dansarar: Ásgeir Helgi Magnússon,
Cameron Corbett, Ellen Margrét
Bæhrenz, Hannes Þór Egilsson og
Þyri Huld Árnadóttir
Óður og Flexa halda afmæli er fram
hald af verkinu Óður og Flexa reyna
að fljúga, sem Þyri Huld og Hannes
Þór sýndu á sviðslistahátíðinni
ASSITEJ árið 2014. Nú fá þau til liðs
við sig þrjá dansara Íslenska dans
flokksins: Cameron Corbett, sem
er í hlutverki sögumannsins með
látbragðsleik og Ásgeir Helga og
Ellen Margréti sem eru í hlutverki
„prumpuskrímslanna“.
Óður og Flexa eru krakkar með
feikilega ríkt hugmyndaflug og ótrú
lega líkamlega tilburði. Þau virðst
vera venjulegir krakkar en breytast
svo í ofurhetjur sem geta allt. Hvort
það er í eigin hugarheimi eða í raun
veruleikanum sjálfum skal ósagt
látið. Verkið fléttar saman danslist,
látbragð og sjónhverfingar.
Pétur Ármannsson leikstýrir
verkinu og tekst honum einkar
vel upp við að halda góðum takti,
breytingum og óvæntum snún
ingum í gegnum allt verkið. Sér
staklega má þar nefna síðasta atriði
verksins þar sem trúðahúmor skín
skýrt í gegn.
Mikill hlátur var meðal áhorfenda
sem spönnuðu mjög breiðan aldurs
hóp, allt frá eins árs börnum til full
orðinna sem allir virtust skemmta
sér konunglega.
Leikmyndin eftir Júlíönnu Láru
er mjög snjöll og þótt hlutirnir
virðist hversdagslegir búa þeir yfir
töfrum sem flytja áhorfendur í ný
rými/víddir. Búningarnir eru einn
ig sérlega skondnir og margþættir.
Þeir öðlast svo sitt eigið líf þar sem
þeir vakna bókstaflega til lífsins
og dansa um sviðið með ævintýra
legum hætti.
Verkið studdist við klassíska tón
list, m.a. eftir Johann Strauss, Wagn
er og Tsjajkovskí, sem léði verkinu
yfirbragð klassísks gríns eða trúða
leiks eins og mætti kalla það.
Hljóðmyndin eftir Baldvin Magn
ússon var mjög skondin og þá má
sérstaklega nefna þegar prumpu
skrímslin eru kynnt til sögunnar
með viðeigandi hljóðum.
Allir dansarar stóðu sig með stakri
prýði og héldu uppi orku, húmor
og leikrænum tilburðum í gegnum
allt verkið. Einnig má hrósa lengd
verksins. Hnitmiðaðar 40 mínútur
reyndust einstaklega heppileg lengd
fyrir barnaverk af þessu tagi. Þessar
mínútur voru stútfullar og aldrei
mátti finna orkuna falla.
Kara Hergils Valdimarsdóttir
niðurstaða: Vel unnið barnaverk
þar sem hugmyndin, útfærslan og
umgjörðin voru til fyrirmyndar.
Óður og Flexa eru
krakkar með
Feikilega ríkt hugmynda-
Flug og Ótrúlega líkamlega
tilburði.
tÓnlist
Kammertónleikar
HHHHH
Caput hópurinn
Verk eftir Svein Lúðvík Björnsson,
Hallvarð Ásgeirsson, Guðmund Stein
Gunnarsson, Þráin Hjálmarsson og
Gunnar Karel Másson.
Norðurljós í Hörpu
Föstudaginn 29. janúar
Sveinn Lúðvík Björnsson er vaxandi
tónskáld. Skemmst er að minnast
einstaklega hrífandi klarinettukons
erts eftir hann sem var frumfluttur
á Sinfóníutónleikum í fyrra. Hann
kann þá list að segja margt með
fáum tónum, einföldum hendingum
og markvissum endurtekningum.
Verk sem bar nafnið Dropakast
og var frumflutt á tónleikum Caput
hópsins á Myrkum músíkdögum
olli ekki vonbrigðum. Tónsmíðin
var í sex köflum. Hún var eins konar
konsert þar sem einleikarinn var
slagverksleikarinn Steef van Ooster
hout en hljómsveitin eingöngu
fjórir blásarar. Andrúmsloftið var
grípandi. Ýmist var tónlistin svo
innhverf að hún heyrðist varla,
eða þá alsett vélrænum, hvössum,
síendurteknum tónum. Þessi mikla
breidd í skáldskapnum var mögnuð;
útkoman var dásamlega margræð.
Samspil einleikarans og blás
aranna var litríkt. Stundum var
blásturinn kröftugur, eða bara and
varp. En hann rammaði ávallt ein
leikinn inn á athyglisverðan hátt
og lyfti honum upp í hæstu hæðir.
Einleikurinn sjálfur var pottþéttur,
taktfastur og akkúrat, en líka fínlega
mótaður.
Infernal Oscillation eftir Hallvarð
Ásgeirsson kom ekki eins vel út.
Tónlistin sjálf var þó eftirtektarverð,
en hún leið fyrir slakan flutning. Þar
bar mest á samspili bassaklarinettu
og sellós, sem var oft ónákvæmt.
Útkoman missti óneitanlega marks.
Mun verra var þó Erfiljóð handa
Guðmundi eftir Guðmund Stein
Gunnarsson. Tónlistin var afskap
lega fráhrindandi, hún hljómaði
helst eins og almannavarnaflauta.
Það var ófagurt.
Influence of Buildings on Musical
Tone fyrir sex hljóðfæraleikara eftir
Þráin Hjálmarsson var hins vegar
spennandi. Í tónleikaskránni var
sagt að verkið væri „óður til hljóm
burðar torfhúsa sem voru algeng
ustu hljóðvistarrými Íslendinga um
aldir“. Tónlistin samanstóð sumpart
af þruski og óljósum tónum sem
var raðað upp á smekklegan máta.
Heildarmyndin var þrungin stemn
ingu og fallegum blæbrigðum sem
voru heillandi.
Einleikskonsert fyrir túbu og sin
fóníettu (stóra kammersveit) eftir
Gunnar Karel Másson var líka dálít
ið spúkí. Túban er ákaflega gróft
hljóðfæri og tónlistin var groddaleg,
bæði einleikurinn og hljómsveitar
spilið. Framvindan var einbeitt og
tónmálið blátt áfram. Einleikarinn
Nimrod Ron lék af festu og öryggi,
og hljómsveitin var með allt sitt á
hreinu. Jónas Sen
niðurstaða: Megnið var gott,
sumt frábært, annað ekki.
Segir margt með fáum tónum
Ævintýralegur dans
Óður og Flexa halda afmæli er langþráð og skemmtileg danssýning fyir börn á öllum aldri.
Sveinn Lúðvík Björnsson FréttaBLaðið/GVa
HALDA AFMÆLI
Miðaverð 2.500 kr.
Tryggðu þér miða á www.id.is eða í miðasölu
Borgarleikhússins í síma 568 8000
Bráðfyndið barnaverk sýnt alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:00 í
febrúar í Borgarleikhúsinu
4 . F e b r ú a r 2 0 1 6 F i M M t u D a G u r34 M e n n i n G ∙ F r É t t a b l a ð i ð
menning
0
3
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
5
C
-3
7
8
0
1
8
5
C
-3
6
4
4
1
8
5
C
-3
5
0
8
1
8
5
C
-3
3
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K