Fréttablaðið - 04.02.2016, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 04.02.2016, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Tónlistarkonan Soffía Björg er um þessar mundir að hljóðrita sína fyrstu sólóplötu en breski upptökustjórinn Ben Hillier stýrir upptökum á plötunni. Ben Hillier hefur komið víða við og hefur unnið með þekktum nöfnum í tónlistar- heiminum á borð við Blur, Suede, Depeche Mode, Balthazar og Elbow svo nokkur nöfn séu nefnd. „Þetta atvikaðist þannig að ég var aðeins að þreifa fyrir mér úti í útlönd- um, að leita að einhverjum heppi- legum í þetta verkefni og hans nafn kom upp og okkur leist vel á hann. Hann kom svo til baka eftir að hafa hlustað á nokkrar prufuupptökur og sagðist vera rosa hrifinn af því sem hann væri að heyra og sagðist vera til í að taka eina góða viku með okkur,“ segir Kári Sturluson, umboðsmaður Soffíu Bjargar, spurður út í tildrög samstarfsins. Upptökurnar hafa farið fram í hljóðverinu Sundlauginni í Mos- fellsbæ í vikunni. „Hingað til hefur þetta gengið rosa vel og það er fínn samhljómur á milli Bens og tónlistar- fólksins sem er ekki af verri endanum það er að segja Pétur Ben á gítar, Ingi- björg Elsa Turchi á bassa og Kristofer Rodriguez Svönuson á trommum,“ bætir Kári við. Upptökurnar eru þó einungis fyrsta skrefið í ferlinu og mun Ben einnig hljóðblanda plötuna í Bret- landi. „Ben er ekki bara svona týp- ískur upptökustjóri sem snýr tökkum fram og til baka heldur er hann mikill músíkant líka,“ segir Kári um Ben. Það hlýtur að vera mikill fengur að fá eins reyndan og virtan aðila og Ben í verkefnið. „Jú, það er ansi stórt og gott skref að fá jafn þekktan og frjóan upptökustjóra og Ben inn í þetta með Soffíu og hljómsveit. Það setur meiri vigt í þetta og stuðning, Vinnur með sama upptökustjóra og Blur og Depeche Mode Soffía Björg ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en hún fær Ben Hillier til að vinna með sér að fyrstu sólóplötu sinni. Blur Suede Depeche Mode Balthazar Elbow The Editors Natalie Imbruglia Nadine Shah Ben Hillier Hefur unnið Með nöfnuM á Borð Við: Hópurinn er á fullu við að taka upp í hljóðverinu Sundlauginni í Mosfellsbæ þessa dagana. F.v. eru Ingibjörg Elsa, Pétur Ben, Soffía Björg, Kristofer Rodriguez og upptökustjórinn Ben Hillier. MyND/KáRI STURLUSON Ben Hillier hefur talsvert unnið með bresku hljómsveitinni Blur. MyND/FILMMAGIc bæði út og inn á við á margan hátt. Það er gaman að fá nýtt fólk inn og gott að fá nýja sín á hlutina.“ Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Ben vinnur með íslenskum tónlistarmönnum. Soffía Björg hefur komið víða við og var til dæmis meðlimur í hljóm- sveitinni Brother Grass. Hún er tiltölulega nýbyrjuð að vinna að sólóefni sínu en gaf út sitt fyrsta smáskífulag í haust, lagið Back & Back Again. Hún kom fram á Iceland Airwaves og þá er hún bókuð á Secret Solstice í sumar og ýmislegt annað er einnig bókað hjá Soffíu Björg. Stefnt er að því að platan komi út í haust. gunnarleo@frettabladid.is 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r42 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð 0 3 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 C -1 E D 0 1 8 5 C -1 D 9 4 1 8 5 C -1 C 5 8 1 8 5 C -1 B 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.