Gerðir kirkjuþings - 1966, Síða 2

Gerðir kirkjuþings - 1966, Síða 2
Fimmta Kirkjuþing hinnar íslenzku þjóðkirkju var kvatt saman í Reykjavík sunnudaginn 2. október 1966 og sat til laugar- dagsins 15. sama mán. Þingið hófst með messu í Dómkirkjunni kl. 17 sunnud. 2. okt. Þar prédikaði kirkjuþingsm. sr. Þorsteinn B. Gíslason, prófastur, en fyrir altari þjónuðu sr. úskar J. Þorláksson, dómkirkjuprestur, og kirkjuþingsm. sr. Þorgrímur Sigurðsson, prófastur. Altarisganga var fjölmenn. Þingsetning fór fram í fundarsal Neskirkju mánudaginn 3. okt kl. 10. Voru þingfundir og nefndafundir haldnir á þeim stað eins og að undanförnu. Forseti þingsins, herra Sigurbjörn Einarsson, biskup, setti þingið með ritningarlestri og bæn en sunginn var sálmur á undan. Því næst ávarpaði biskup þingfulltrúa og gerði grein fyrir verk- efnum þingsins. í ræðu sinni minntist biskup fyrrv. kirkjuþings- manns, Jóns Jónssonar, bónda á Hofi, en hann andaðist 30. maí s.l. Hann sat á Kirkjuþingi fyrsta kjörtímabil þess (1958-64). Heiðruðu þingfulltrúar minningu hans með því að rísa úr sætum. Að tillögu biskups var samþykkt að senda kveðju ekkju hans, frú Sigurlínu Björnsdóttur. Þinginu barst skeyti með árnaðaróskum frá kirkjumálaráðherra Jóhanni Hafstein, en hann var á sjúkrahúsi og gat því ekki komið t þings. Samþykkt var að senda honum kveðju og þakkir. Einnig var forseta íslands, herra Ásgeiri Asgeirssyni, send kveðja og bárust þinginu heillaóskir hans daginn eftir. Á þessum fyrsta fundi var kosin kjörbrófanefnd og hlutu kosningu: Steingrímur Benediktsson, Þórður Möller, sr. Þorgrímur Sigurðsson, sr. Björn Magnússon og sr. Sigurður Guðmundsson. Fjórir þingmenn höfðu tjáð forföll: Þingm. III. kjörd. af leik- manna hálfu, Friðjón Þórðarson,sýslum., þingm. V. kjörd. af leik- manna hálfu, Sigurjón Jóhannesson, skólastjóri, þingm. VI. kjörd. af hálfu kennimanna, sr. Þorleifur Kristmundsson, og þingm. VII. kjörd., af hálfu leikmanna, Erlendur Björnsson, hreppstj.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.