Gerðir kirkjuþings - 1966, Qupperneq 5

Gerðir kirkjuþings - 1966, Qupperneq 5
5. Kirkjuþing 1. mál Frumvarp til laqa um skipun prestakalla oq prófastsdæma og um Kristnisjóð Frumvarp þetta var samið af nefnd, er kirkjumálaráðherra skipaði 23. apríl 1965. Hafði það verið lagt fyrir presta- stefnu s.l. vor, er tók það til meðferðar og gerði ýmsar tillögur til breytinga. Hafa till. prestastefnunnar verið sendar prestum og kirkjuþingsmönnum, ásamt frv. nefndarinnar. Kirkjuráð tók frv. til vandlegrar athugunar á fundum frá 22. sept. til 30. s.m., með hliðsjón af tillögum prestastefn- unnar. Breytingatill. prestastefnu og kirkjuráðs voru lagðar fram á Kirkjuþingi sem fylgiskjöl með frv. Kirkjuráð lagði til að ályktun um Kristnisjóð, sem samþykkt var á Kirkjuþingi 1964, væri skeytt við frv. um skipun prestakalla og prófastsdæma og gerði kirkjuráð nokkrar breytingar á þeirri ályktun og jók nokkru við hana um leið og það gekk frá henni í lagafrumvarpsformi. Kirkjumálaráðherra hafði hugsað sér að flytja mál þetta á Kirkjuþingi, en gat ekki komið því við sakir sjúkleika og mæltist þá til, að biskup tæki að sér flutning þess. Rétt þykir að tillögur kirkjuráðs fylgi hér með, þar eð þær hafa ekki verið kynntar utan vébanda Kirkjuþings. Málinu var að lokinni fyrri umræðu vísað til löggjafarnefndar. Hún skilaði áliti sínu þriðjudag 11. okt. og var önnur umræða daginn eftir. Ýmsar breytingatillögur komu fram við nefndar- álitið við 2. umræðu. Var umræðunni frestað og málinu vísað til nefndarinnar að nýju. Að lokinni umræðu var samþykkt það frv. , er hér fer á eftir:

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.