Gerðir kirkjuþings - 1966, Síða 16
sóknarinnar er, skylt að annast ]?ar guðsþjónustur án sérstaks
endurgj alds.
15. gr.
Þegar sóknarkirkja er lögð niður, skulu eignir hennar og
andvirði renna til þeirrar eða þeirra kirkna, er sóknin hverfur
til, og skiptast á milli þeirra í réttu hlutfalli við tölu þeirra
gjalder.da. er hverri sókn bsetist v.ið niðurlagningu sóknarinnar.
Nó eyðist kirkjusókn gersamlega að fólki eða söfnuður er
orðin svo fámennur, að hann getur ekki haldið kirkju messufærri
að dómi hlutaðeigandi sóknarprests og prófasts, og skal þá prófast-
ur taka við sjóði kirkjunnar og umsjón hennar. Kirkjustjórn ákveð-
ur síðan, að fengnum tillögum héraðsprófasts, hvort kirkjan skuli
lögð niður. Ef svo verður, varðveitist andvirði hennar og sjóður
.. hinum almenna kirkjusjóði. Þau heimili, sem eftir kynnu að vera
í sókninni skulu lögð til annarar sóknar eða sókna eftir ákvörðun
kirkjustjórnar. Byggist sóknin á ný og sóknarmenn ákveða að
endurreisa kirkju, skal veita henni sóknarréttindi að nýju og
afhenda sjóð hinnar niðurlögðu kirkju.
16. gr.
Heimilt er kirkjustjórn að ákveða, að fenginni umsögn
sóknarnefnda prestakalls og með ráði sóknarprests og héraðsprcf
asts, að flytja skuli prestssetur á hentugri stað í prestakallinu.
Akvörðun um þetta efni skal birt í B- deild Stjórnartíðinda.
17. gr.
Víðlend og afskekkt prestaköll skulu njóta staðaruppbóta
samkvæmt mati kirkjustjórnar á staðháttum að fengnum tillögum
stjórnar prestafélags íslands.
18. gr.
NÓ tekst ekki að fá prestakall skipað í fimm ár, og er þá
kirkjustjórn heimilt að sameina það öðru prestakalli eða öðrum.
NÚ hefur prestakall lagzt niður með þessum hætti og skal það
tekið upp að nýju, ef tala íbúa og aðrar aðstæður gera það
eðlilegt að mati kirkjustjórnar.