Gerðir kirkjuþings - 1966, Síða 28
-2-
Biskuparáð fer með umboð þjóðkirkju íslands út á við
og fyrirsvar hennar í þeim málum, sem ekki varða sérstaklega
einstök biskupsdæmi.
Biskuparáð getur falið einum biskupanna að fara með
einstaka málaflokka eða að hafa á hendi umboð þjóðkirkjunnar í
einstökum atriðum.
Allir biskuparnir eru sjáifkjörnir til setu á Kirkjuþingi
og í Kirkjuráði, en Reykjavíkurbiskup er forseti þessara stofnana
beggja.
5.gr.
Reykjavíkurbiskup vígir biskupa, ef því verður komið
við, en ella sá biskup, sem hærri er að embættisaldri. Se
embættisaldur jafn vígir sá biskup sem eldri er að árum,
nema biskuparáð ákveði annað.
6. gr.
Biskupar fara hver um sig með öll sérmál biskupsdæmis
síns. Þeir vígja presta og kirkjur biskupsdæmisins og
framkvæma annað það í biskupsdæminu, sem lög, reglur eða
venjur fella undir biskupsvald.
Biskupar skipa prófasta og má skipun í prófastsembætti
vera til ákveðins tíma.
Skálholtsbiskup hefur forræði Skálholtsstaðar í umboði
þjóðkirkju íslands og skipar forsæti í Kirkjuráði þegar
ráðstafað er árlegu framlagi til staðarins samkvæmt lögum
nr. 32/1963.
7. gr.
Biskupar skulu halda prestastefnu ár hvert, hver í sínu
biskupsdæmi.
Reykjavíkurbiskup boðar til allsherjar prestastefnu,
þegar biskuparáð ákveður, að slík prestastefna skuli haldin,
og er forseti hennar.
8. gr.
Biskupar skulu vísitera biskupsdæmi sín eigi sjaldnar