Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 4
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Og ég hræðist það vegna þess að ég veit að það mun hafa slæm áhrif á heilbrigðis- kerfið til framtíðar. Ólafur G. Skúlason, formaður Félags hjúkrunarfræðinga. LEIÐRÉTT Lesa má úr frétt í blaði gærdagsins að Selfosslína 3 og Hellulína 2 kosti tæpar 600 milljónir króna. Það er hins vegar kostnaður Landsnets við lagninguna eina. Strengirnir sjálfir kosta sem svarar rúmum 370 milljónum og heildarkostn- aður því tæpur milljarður króna. Sunna, ertu í fatageira? „Er algjör algjör myndlistargeira.“ Sunna Ben myndlistarkona hefur hannað ermalausa boli í tilefni samkomu sem boðað hefur verið til á Austurvelli á laugardag til stuðnings frelsun geirvörtunnar. UMHVERFISMÁL Starfsleyfi endurnýjað Umhverfisstofnun hefur gefið út endurnýjað starfsleyfi fyrir rekstur kítín- og kítósanverksmiðju Primex ehf. á Siglufirði. Ekki voru gerðar nema smávægilegar orðalagsbreytingar á sjálfum starfsleyfistextanum við útgáfu starfsleyfisins sem gildir til 3. júní 2031, segir á vef Umhverfisstofnunar. UPPLÝSINGATÆKNI Apple hefur á heimsvísu kallað inn ferðahátal- ara sem nefnast Beats Pill XL vegna hættu á að rafhlaða þeirra ofhitni og valdi eldhættu. Fram kemur á vef Mannvirkja- stofnunar, sem vekur athygli á innköllun Apple, að hátalararnir hafi verið seldir um heim allan frá því í byrjun síðasta árs. Fólk gæti því hafa keypt hátalara þessarar tegundar á ferðalögum erlendis eða í verslunum sem selja Apple-varning hér á landi. Leiðbeiningar um skil á vör- unni er að finna á vef Apple (www.apple.com/is/support/ beats-pillxl-recall). - óká Innköllun Apple á heimsvísu: Eldhætta af ferðahátalara SAMGÖNGUR Viðræður eru hafnar milli Akureyrar- og Egilsstaða- flugvallar við erlenda aðila um að hefja millilandaflug. Forsætisráðuneytið skip- aði starfshóp í vor til að kanna möguleika á millilandaflugi um flugvellina á Akureyri og Egils- stöðum og hefur sú vinna borið þann árangur að viðræður eru hafnar milli flugvallanna beggja og erlendra aðila um mögulegt samstarf í millilandaflugi. Ef samningar næðust yrði það tvímælalaust lyftistöng fyrir ferðaþjónustu vítt og breitt um landið auk þess sem það myndi dreifa álagi af völdum ferða- manna betur um landið. - sa Millilandaflug úti á landi: Flugfélög hafa haft samband PÁFAGARÐUR Frans páfi hefur samþykkt stofnun sérstaks dómstóls til að fjalla um mál kaþólskra biskupa sem hafa hald- ið hlífiskildi yfir barnaníðingum í röðum presta. Fyrir nokkrum árum kom upp hvert málið á fætur öðru innan kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkj- unum, á Írlandi, í Belgíu, á Ítalíu, í Þýskalandi og víðar, þar sem prestar höfðu framið kynferðis- brot gagnvart börnum en bisk- upar séð til þess að málin yrðu þögguð niður. Á síðasta ári sætti Páfagarður harðri gagnrýni af hálfu Samein- uðu þjóðanna fyrir að taka ekki nægilega vel á þessum málum. - gb Nýr dómstóll í Páfagarði: Dregur biskupa til ábyrgðar HÁTALARINN Beats Pill XL hátalarar hafa verið seldir um heim allan frá því í janúar í fyrra. MYND/APPLE FRANS PÁFI Biskupar komast ekki lengur upp með að halda hlífiskildi yfir barnaníðingum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SAMFÉLAG „Ríkisstjórnin verður að axla ábyrgð á vanda sem er samfélagslegur og verður ekki leystur af einstaklingum eða frjálsum félagasamtökum einum,“ segir í opnu bréfi til íslensku ríkisstjórnarinnar sem fem- íníska vefritið Knúz birti á vefsíðu sinni í gær. Bréfið er sent vegna byltingar á samfélags- miðlum undanfarið þar sem fjölmargar konur hafa sagt frá kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. „Í nær öllum tilvikum eru karlmenn gerend- ur. Það liggur fyrir að þolendur munu þurfa stuðning til að vinna úr áfallinu og að sama skapi er ljóst að kynbundið ofbeldi er gríðar- legt samfélagslegt mein sem full ástæða er að vinna bug á,“ segir í bréfinu. Ellefu spurning- ar til ráðherra ríkisstjórnarinnar eru settar fram. Meðal annars er spurt hvort ríkisstjórn- in ætli að grípa til sérstakra aðgerða vegna frásagnanna, hvort samtök og stofnanir fái aukafjárveitingar til að berjast gegn kyn- ferðisofbeldi og hvort menntamálaráðherra muni beita sér fyrir auknum forvörnum. Ritstjórn Knúz segir það ljóst að mikið verk sé óunnið og réttast væri að hrinda af stað sérstöku átaki í nafni þjóðaröryggis þar sem aðgerðir til að sporna gegn kynferðisofbeldi yrðu kynntar auk aðstoðar við fórnarlömb. - þea Femíníska vefritið Knúz birti opið bréf til ríkisstjórnar Íslands þar sem ráðherrar eru spurðir spurninga: Vandinn ekki leystur af einstaklingum ÁSKORUN Knúz skorar á ráðherra ríkisstjórnarinnar að beita sér gegn kynferðisofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARAMÁL Í venjulegu árferði hefðu fengist um 600 tonn af afurðum úr slátrun á tæplega 3.000 nautgripum á því tímabili sem verkfall dýralækna hefur staðið, frá 20. apríl, að því er fram kemur á vef Félags íslenskra kúa- bænda. „Við blasir því að víða er farið að þrengjast verulega um í fjós- um. Sárafáar undanþágur hafa fengist til slátrunar nautgripa. Undan þágur eru eingöngu veittar á grundvelli sjónarmiða um dýra- velferð og er gerð krafa um úttekt dýralæknis á stöðu dýravelferðar á viðkomandi búi, eigi undanþága að fást,“ segir í umfjöllun félagsins. Augaleið gefi að slátrun á fáum gripum í senn yrði bæði „hrika- lega“ kostnaðarsamt og tímafrekt. „Það er því niðurstaða Lands- sambands kúabænda að þær leik- reglur sem settar hafa verið til að fá undanþágur frá verkfalls- aðgerðum eftirlitsdýralækna séu óframkvæmanlegar og alger- lega ótækar frá sjónarhóli naut- griparæktarinnar.“ Bændur hafi sýnt kjarabaráttu dýralækna þolinmæði og skilning, en þegar aðgerðir standi svo mánuðum skiptir og haldi „nautgriparækt- inni einni í gíslingu“ sé mál að linni. - óká Undanþáguferli í verkfalli sagt óásættanlegt fyrir nautgriparæktendur: Nautgriparæktin sögð í gíslingu KÁLFAR Bolakálfar á bás sínum. Bændur eru langþreyttir á verkfalli dýralækna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJARAMÁL „Ríkissáttasemjari sleit fundi án niðurstöðu og engin skýr svör eru um framhaldið,“ segir Þórunn Sveinbjarnardótt- ir, formaður Bandalags háskóla- manna, eftir samningafundi þeirra við ríkið var slitið rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. BHM fékk tilboð frá ríkinu í gær sem samninganefndin kann- aði hjá baklandi sínu í samninga- nefndum aðildarfélaganna. „Að mati okkar baklands þótti vera þarna grundvöllur til að semja ef það væri til tveggja ára. Ríkið féllst ekki á það og það er ljóst að ríkið er ekki tilbúið til að semja um kjarabætur fyrir háskólamenntað starfsfólk sitt,“ segir Þórunn. Aðspurð segist hún hafa miklar áhyggjur af lögum á verkfallið. „Þau hafa verið að hóta okkur lögum á verkfallið í allan dag [í gær] ef ekki væri samið. Lög á verkfallið yrði versta mögu- lega niðurstaðan og myndi ekki gagnast neinum.“ Fundi samninganefnda hjúkrun- arfræðinga og ríkisins lauk hins vegar án árangurs um tvöleyt- ið, en hann hófst klukkan ellefu. Annar fundur var ekki boðaður. Ólafur G. Skúlason, formað- ur Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, segir stöðuna lítið hafa breyst frá því í síðustu viku. „Það kom ekkert formlegt til- boð fram á þessum fundi,“ segir hann og kveður hjúkrunarfræð- inga líta svo á að þeir hafi gefið það mikið eftir af sinni kröfu- gerð að næsti leikur sé ríkisins. „Og okkur finnst þeir ekki nálg- ast okkar kröfur nógu mikið.“ Í þeim efnum kveðst Ólafur óttast að ríkið bregðist við með lagasetningu á verkfallið. „Og ég hræðist það vegna þess að ég veit að það mun hafa slæm áhrif á heilbrigðiskerfið til framtíðar.“ Hvort hjúkrunarfræðingar muni segja upp í hrönnum segir Ólafur erfitt að fullyrða nokkuð um. Hann segist hins vegar heyra úr röðum síns fólks að það muni ekki sætta sig við lagasetningu. „En hvað fólk gerir er náttúrlega þess ákvörðun.“ - okr / - srs Fundi BHM og ríkis slitið án niðurstöðu Formaður BHM segir lög á verkfallið ekki munu gagnast neinum. Enginn árangur var af fundi þeirra með ríkinu í gær. Samningafundur BHM og ríkisins stóð frá níu að morgni og fram á kvöld. Hjúkrunarfræðingar óttast einnig lagasetningu. ÞUNG Á BRÚN „Það er ljóst að ríkið er ekki tilbúið til að semja um kjarabætur við háskólamenntað starfsfólk sitt,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, þegar fundi samninganefndanna var slitið í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SPURNING DAGSINS Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Krít Frá kr. 131.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 131.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 22. júní í 10 nætur Maleme Mare th . th . tht ve að v eeveveve að v ee að v e að vevevevvv ð vv að vvvvvv ð v ð vvvv ð v ð v ð v ð v ð vvvvv ð v ð vv ð ðððððððððððððððððaaaaaaaaa ð g e rð g ee rð g ee rð g eee rð g e rð g e rð g e g e rð g e ð g eeee rð g ee g e g ee g e g e g e g e g e g ee g e g e rð g e g gggggggg rð gggggggggggg rð rðð ðrð ð ð rðrð rð ð rðrððrðrðrðððððrðrðrðððrðrððrððrðrððrððððrðrðrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr bbbbbbb tu r tut yseyy sys re yys re y re y r a.aa SÉ RT ILB OÐ 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 8 -2 7 7 C 1 7 5 8 -2 6 4 0 1 7 5 8 -2 5 0 4 1 7 5 8 -2 3 C 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.