Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 12
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR GOLFSÍÐAN | 12
„Ég vil bara láta þig vita eitt,“ sagði
Jón Steinar Gunnlaugsson (25.0)
lögmaður við blaðamanninn (18.7)
þegar verið var að skipuleggja golf-
hringinn sem hér er til umfjöllun-
ar. Jón Steinar dró niður röddina
þannig að ómögulegt var annað en
veita því fulla athygli hvað hann
ætlaði að segja. Svo kom tilkynn-
ingin ísmeygileg: „Ég ætla að
vinna þig.“ Tónninn var dáleiðandi
og það kvarnaðist ósjálfrátt úr
sjálfstraustinu – einhvern veginn
var ekki annað hægt en trúa þessu
og það þurfti að hafa fyrir því að
hrista af sér þessi álög: Svona
vinna þeir þá þessir laganna refir.
Óvæntur makker Jóns Steinars
Hugmyndin var að slást í hópinn
með lögmönnum og dómurum sem
spila gjarnan golf saman. Þar er
Jón Steinar foringinn en í hópnum
eru meðal annarra Brynjar Níels-
son alþingismaður og Ólafur Börk-
ur Þorvaldsson hæstaréttardóm-
ari. Jón Steinar var að tilkynna
forföll fyrir Ólaf Börk, það væri
svo mikið að gera í réttinum.
Jón Steinar hafði hins
vegar mann og ekki
ónýtan á kantinum
til að hlaupa í skarð-
ið fyrir dómarann:
Björgvin Þorsteinsson (3.7) lög-
mann og margfaldan Íslandsmeist-
ara í golfi. Jón Steinar, sem hefur
spilað golf árum saman, er með
um 25 í forgjöf og hann var búinn
að reikna dæmið til enda: Hann og
Björgvin áttu að vera saman í liði
gegn blaðamanninum og Brynjari.
Goðsögn bætist í hollið
Jæja, „the game was on“, en blaða-
maður sá sæng sína upp reidda.
Með fullri virðingu fyrir Brynjari
þá var ekki mikil von til þess að
okkur tveimur, sem erum slarkar-
ar í golfinu sé miðað við forgjöf,
ættum mikið í snillinginn Björg-
vin, herra Hola í höggi; hann hefur
oftar fengið ás í golfinu en flest-
ir. Nema, enn hringir Jón Steinar.
Brynjar forfallaðist og lögmaður-
inn spurði kurteislega: „Ég vona að
þér þyki ekki verra en ég er búinn
að fá annan mann í hans stað.“
Aldrei að spyrja spurninga sem
þú veist ekki svarið við. „Ásgeir
Sigurvinsson (9.5) er mikill vinur
minn og hann gæti fyllt hollið.“
Tónninn í rödd Jóns Steinars var
með þeim hætti að sá sem neitaði
svo góðu boði væri galinn. Og það
stóð heima. Ekki bara að blaða-
maður hafi dýrkað Ásgeir, allt frá
því hann sá þessa goðsögn í fót-
boltanum afgreiða A-Þýskaland á
sínum tíma, heldur er Ásgeir mjög
góður golfari.
Varamannabekkur Jóns Steinars
var greinilega vel skipaður, þetta
var orðið rándýrt holl.
Spilað lengur með færri höggum
Menn mættu hressir í bragði á
teig á tilskyldum tíma. Jón Steinar
gantaðist með það að Björgvin
hefði spilað golf 50 árum lengur en
hann sjálfur, Björgvin sagði að það
gæti verið, en með færri höggum.
Grafarholtsvöllur er einhver allra
skemmtilegasti völlur landsins og
hann var í góðu standi. Jón Steinar,
Ásgeir og Björgvin eru allir með-
limir í þessum elsta golfklúbbi
landsins, sem stofnaður var 1934.
Jón Steinar lagði upp leikfyrir-
komulagið. Þetta væri holukeppni,
ekkert vesen, samanlögð stig, eða
punktar, miðað við forgjöf. Jájá,
ók.
Sérhannaðir leiðir fyrir Jón Steinar
Það var spenna á 1. teig, Ásgeir átti
frábært upphafshögg, blaðamaður-
inn einnig, miðað við getu, Björg-
vin missti boltann aðeins til hægri
og Jón Steinar sló honum eilítið út í
móann en fékk vinahopp og var vel
sláanlegur. Það átti eftir að sýna sig
þegar leið á leikinn að Jón Steinar
kann vel á völlinn og eitt sinn sló
hann að því er virtist í gegnum
grjótvaxinn móa, einhver leynigöng
sem hann einn vissi um.
Ekki er ætlunin að rekja leikinn
högg fyrir högg. Framan af leit vel
út með viðureignina. Jón Steinar
og Björgvin voru undir fyrstu hol-
urnar og foringinn hafði engan
húmor fyrir því þegar hann fór eftir
vinnuvélagötu út í móa í leit að kúlu
sinni og blaðamaður spurði hvort að
þarna væri búið að leggja veg sér-
staklega fyrir hann?
Sígur á ógæfuhliðina
Galgopahátturinn átti eftir að
hefna sín því nú fór að síga á ógæfu-
hliðina, Jón Steinar setti í gírinn
eftir fáeinar holur og þegar meistar-
inn Björgin fór að negla niður fugl-
unum, einum fimm þennan hring-
inn, snerist taflið við. Ásgeir spilaði
gott og stöðugt golf en því miður var
þetta upp og niður hjá blaðamann-
inum. Hann missti hausinn ef högg
misheppnaðist. Eins glatað og það
nú er, var salt í sárin að vera að
draga átrúnaðargoð sitt niður. En,
það verður að segja Ásgeiri til hróss
að hann var alveg einstaklega þægi-
legur makker.
Allir spiluðu þeir þrír á sinni
forgjöf en blaðamaður ekki og því
fór sem fór. Kampakátir hrósuðu
þeir Jón Steinar og Björgvin sigri,
eftir 15. holu var leik í raun lokið;
forskot þeirra var orðið óyfir-
stíganlegt. En, fyrst og fremst
var þetta ótrúlega skemmtileg-
ur hringur. Að leik loknum gaf
Björgvin blaðamanni vinsamleg
ráð; vera ekki alltaf með þungann
á hægri fæti í sveiflunni – en, ekki
fyrr en að leik loknum. Það lá að.
Refurinn Jón Steinar hafði sigur
Í harðri rimmu á Grafarholtsvelli fór Jón Steinar Gunnlaugsson með sigur af hólmi gegn blaðamanni Fréttablaðsins; með útsjónarsemi og
þrautseigju. Lærdómur dagsins er sá að það borgar sig að vera með „gameplan“ þegar golfið er annars vegar.
JÓN STEINAR LÆTUR DRÆVERINN FINNA FYRIR ÞVÍ Hinir í hollinu fylgjast með fullir aðdáunar. Jón Steinar hefur sérstakan stíl í golfinu, hann hikar dágóða stund en svo, líkt og höggormur, lætur hann til skarar
skríða og lætur kylfuna vaða í kúluna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GLÆSILEG GOLFSVEIFLA Ásgeir hefur
spilað golf árum saman– en algengt
er að íþróttamenn snúi sér að golfinu
þegar ferlinum lýkur.
HVAÐ ER ÞETTA EIGINLEGA LANGT?
Jón Steinar vissi nákvæmlega hvert
hann var að fara, löngu áður en flautað
var til leiks.
HERRA HOLA Í HÖGGI Björgvin er
sexfaldur Íslandsmeistari í höggleik, og
hann hefur farið oftar holu í höggi en
aðrir menn, eða tíu sinnum.
MEISTARINN BJÖRGVIN MERKIR
Á FLÖTINNI Ásgeir Sigurvinsson
mundar pútterinn en í baksýn má sjá
glæsilegt klúbbhús þessa elsta golf-
klúbbs landsins– Golfklúbbur Reykja-
víkur var stofnaður árið 1934.
Jakob Bjarnar
Grétarsson
jakob@frettabladid.is
Nánar verður greint frá þessari
viðureign á Vísi.
visir.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
A
-1
A
2
C
1
7
5
A
-1
8
F
0
1
7
5
A
-1
7
B
4
1
7
5
A
-1
6
7
8
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K