Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 16
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 16
Þeir sem vinna í opnu rými eru að
meðaltali truflaðir elleftu hverja
mínútu. Það hefur ekki bara áhrif á
vinnufrið, heldur einnig framleiðni.
Þetta eru niðurstöður alþjóðlegrar
rannsóknar á vegum bandaríska
húsgagnaframleiðandans Steel-
case.
Alls tóku 10.500 einstaklingar í 14
löndum þátt í rannsókninni. Af þeim
sögðust 85 prósent ekki geta einbeitt
sér í vinnunni en 11 prósent sögðust
vera ánægð með vinnu umhverfi sitt.
Síðarnefndi hópurinn átti auðveld-
ara með að einbeita sér.
Á fréttavef sænska blaðsins
Dagens Nyheter er haft eftir Gunn-
ari Aronssyni, prófessor í vinnu- og
skipulagssálfræði við Háskólann
í Stokkhólmi, að afar fáar rann-
sóknir leiði í ljós að opið skrifstofu-
rými sé jákvætt fyrir starfsmenn.
Rannsóknir hafi ekki bara sýnt
fram á ónæði, heldur séu veikindi
algengari hjá þeim sem starfa í
opnu skrifstofurými.
Dagens Nyheter greinir frá því
að með opnu skrifstofurými, sem
farið var að nota á sjötta áratug
síðustu aldar, hafi átt að auka sam-
vinnu starfsmanna og hugmynda-
vinnu. Nú snúist þetta frekar um
sparnað, pláss og möguleika á
breytingum. Tekið er fram að ein-
beitingarskortur starfsmanna kosti
talsverða fjármuni. Rannsókn á
vegum Gallup sýni að eingöngu í
Bandaríkjunum sé kostnaður fyrir-
tækja vegna þess 450 til 500 millj-
arðar Bandaríkjadala á ári.
Truflunin er ekki bara sögð
draga úr framleiðni starfsmanna,
heldur einnig áhuga þeirra. Gunnar
Aronsson bendir á að sá sem er í
starfi sem hann hefur persónu legan
áhuga á geti orðið fyrir miklum
vonbrigðum nái hann ekki að vinna
verk sitt vel. ibs@frettabladid.is
Ónæði í vinnunni
elleftu hverja mínútu
Niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar sýna að 85% starfsmanna í opnu skrifstofu-
rými geta ekki einbeitt sér. Veikindi algengari hjá þeim sem vinna í opnu rými.
ÞREYTA
Kostnaður vegna
einbeitingarskorts
starfsmanna
kostar fyrirtæki í
Bandaríkjunum
450 til 500 millj-
arða dali á ári.
NORDICPHOTOS/GETTY
Skýrt samhengi er á milli meng-
unar í andrúmslofti og fæðingar-
þyngdar barna, að sögn Davids
Q. Rich við Rochester-háskóla í
New York í Bandaríkjunum. Hann
stýrði rannsókn sem leiddi í ljós að
börn sem fæddust í Kína rétt eftir
Ólympíuleikana sem haldnir voru
þar 2008 voru 23 grömmum þyngri
en börn voru almennt við fæðingu.
Nokkrum mánuðum fyrir
Ólympíu leikana settu kínversk
stjórnvöld strangar reglur um akst-
ur bíla. Þau lokuðu verksmiðjum og
frestuðu byggingarframkvæmdum.
Auk þess var efni skotið upp í skýin
til að þau mynduðu regndropa sem
hreinsa andrúmsloftið, að því er
greint er frá á vefnum forskning.
no. Þessar aðgerðir báru árangur.
Brennisteinsdíoxíð í andrúmsloft-
inu minnkaði um 60 prósent, kol-
mónoxíð um 48 prósent og köfn-
unar efnis mónoxíð um 43 prósent í
um sex til sjö vikna skeið.
Nokkrir vísindamenn notuðu
tækifærið til bera saman fæðingar-
þyngd barna þeirra mæðra sem voru
á áttunda mánuði meðgöngu meðan
Ólympíuleikarnir fóru fram við fæð-
ingarþyngd barna fæddra 2007 og
2009 þegar mengunin var jafn mikil
og venjulega. Skoðuð var fæðingar-
þyngd 83.672 barna og í ljós kom að
börn fædd 2008 voru 23 grömmum
þyngri en börn fædd árið á undan
og á eftir. Bent er á að síðasti hluti
meðgöngunnar sé sérstaklega mikil-
vægur fyrir vöxt fóstursins.
Rannsóknir í Evrópu hafa einnig
sýnt fram á samhengi á milli minni
fæðingarþyngdar og mengunar í
andrúmslofti. - ibs
Andrúmsloftið hreinsað vegna Ólympíuleikanna:
Minni mengun jók
fæðingarþyngdina
Í KÍNA Börn sem fæddust rétt eftir
Ólympíuleikana í Kína voru þyngri en
börn sem fæddust árið á undan og á
eftir. NORDICPHOTOS/GETTY
Íshokkíklúbbar í Norrköping og
Linköping í Svíþjóð ætla í sam-
vinnu við heilbrigðisyfirvöld og
háskóla að hjálpa of þungum stuðn-
ingsmönnum sínum til að halda sér
í góðu formi. Á komandi hausti og
vori verður 60 einstaklingum á
aldrinum 35 til 65 ára sem eru með
líkamsþyngdarstuðul yfir 28 boðið
að taka þátt í verkefni sem miðar
að bættri heilsu.
Þátttakendur í verkefninu eiga
að hittast einu sinni í viku um 12
vikna skeið. Veitt verður fræðsla
um heilbrigðan lífsstíl auk þess
sem gerðar verða léttar líkams-
æfingar.
Fyrirmyndin er námskeið sem
haldið var í Skotlandi. Þar léttust
þátttakendur um fimm kíló á 12
vikum en 90 prósent þátttakenda
luku námskeiðinu. Fjöldi evrópskra
klúbba býður nú stuðningsmönnum
sínum upp á slík námskeið.
Greint er frá árangrinum í rit-
inu Lancet.
Stuðningsmönnum
hjálpað að léttast
tímanlega. Ekki geyma það til síðasta dags
skila atkvæði þínuMundu að
FLÓABANDALAGIÐ
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. júní
22. júní er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
Hvergi í heiminum gaf almenning-
ur meira til landsnefndar UNICEF,
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
en hér á landi í fyrra. Framlagið
sem safnaðist á Íslandi til baráttu
UNICEF nemur 12 Bandaríkja-
dölum á hvern landsmann, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
UNICEF á Íslandi. Næst á eftir
Íslandi kemur Svíþjóð, með 9 dali
á hvern landsmann, og þar á eftir
Lúxemborg með 7 dali á mann. Um
framlög einstaklinga og fyrirtækja
er að ræða, ekki ríkisstjórna.
Í fréttatilkynningunni kemur
jafnframt fram að heims foreldrum
á Íslandi hafi fjölgað um 18,5 pró-
sent á milli ára. Í lok síðasta árs
voru þeir orðnir 26.152 talsins.
Mánaðarleg gjöf heimsforeldra
gerir UNICEF kleift að bregð-
ast samstundis við þegar neyðar-
ástand brýst út, vera áfram til
staðar fyrir börn eftir að kast-
ljós fjölmiðla er farið annað,
sinna hjálparstarfi á svæð-
um sem njóta engrar fjöl miðla-
athygli, skipuleggja hjálparstarf
til lengri tíma litið og beita sér á
heimsvísu. Í fyrra söfnuðust alls
36,5 milljónir króna frá almenn-
ingi og fyrir tækjum í sérstakar
neyðar safnanir á vegum UNICEF
á Íslandi. Auk þess hafa aldrei
fleiri börn tekið þátt í grunnskóla-
verkefninu UNICEF-hreyfingunni
en um 40 prósenta aukningu er að
ræða frá árinu 2013.
Heimsforeldrum á Íslandi fjölgaði um 18,5 prósent á milli ára og voru þeir í lok síðasta árs yfir 26 þúsund talsins:
Hvergi hærri framlög til UNICEF en hér á landi
BARNVÆNT SVÆÐI Eftir jarðskjálftana
í Nepal opnaði UNICEF barnvæn svæði
í landinu. MYND/UNICEF
450-500
MILLJARÐA
DALI
á ári kostar
einbeitingar-
skortur
starfsmanna
fyrir tæki í
Banda-
ríkjunum.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
8
-8
F
2
C
1
7
5
8
-8
D
F
0
1
7
5
8
-8
C
B
4
1
7
5
8
-8
B
7
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K