Fréttablaðið - 11.06.2015, Síða 18
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR ÞINGSJÁ | 18
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
Bjarni Benediktsson varð formaður Sjálf-stæðisflokksins í mars 2009. Óhætt er að segja að hann hafi tekið við flokknum á erfiðum
tímum og í kosningunum skömmu
síðar fékk Sjálfstæðisflokkurinn
minnsta fylgi í sögu sinni. Það
hefur síðan sveiflast upp og niður
en verið á niðurleið undanfarið. Sú
niðursveifla hófst þegar Icesave-
dómurinn féll og, öfugt við það sem
yfirleitt gerist, jókst hún við lands-
fund flokksins sem haldinn var í
febrúar. Bjarni segir að flokkurinn
sé ósáttur við fylgi sitt í könnunum
og ætli sér að sækja fram að nýju.
„Sjálfstæðisflokkurinn er einn
flokka að tala fyrir raunhæfum
leiðum til að lækka skatta og efla
atvinnulífið í landinu en allt stendur
og fellur með því þegar uppi er stað-
ið. Bæði staða ríkissjóðs og staða
heimilanna er algjörlega undir því
komin að atvinnulífið taki við sér
en sé ekki í þeim dróma sem verið
hefur.“
Skattaafsláttur
Bjarni segir mikilvægast fyrir
heimilin að lækka skatta og skuldir.
Horfa verði á greiðslugetu heimil-
anna.
„Það eru um 25 þúsund heimili
sem á skömmum tíma voru komin
með neikvæða eiginfjárstöðu. Það
gerir yfir 50 þúsund framteljend-
ur. Á þessu verður að taka, annars
verður allt annað sem þarf að fást
við miklu erfiðara.
Við ætlum að gefa fólki sem greið-
ir af húsnæðislánum sínum skatta-
afslátt. Hann mun vara í fjögur til
fimm ár og þegar horft er á dæmi-
gert lán munu þessar aðgerðir gera
það að verkum að höfuðstóll láns-
ins verður 20 prósentum lægri en
ella. Þetta gerist annars vegar með
tekjuskattsafslættinum, sem fæst á
móti afborgunum á lánum, og hins
vegar því að við ætlum að veita fólki
valkost um að taka greiðslur sem
færu ella til séreignarsparnaðar og
beina þeim beint inn á húsnæðis-
lánin sín.
Þetta tvennt, saman með tekju-
skattslækkun og endurskoðun
þessa þriggja þrepa skattkerfis,
mun bæði auka ráðstöfunartekjur
og bæta skuldastöðu heimilanna.
Það er líka eitt stærsta hagsmuna-
mál heimilanna að í landinu sé öfl-
ugt atvinnulíf sem tryggi fólki störf
og bæti lífskjör.“
14 til 16 milljarðar
Hafið þið reiknað út hvað þetta
þýðir í minni tekjum fyrir ríkissjóð?
„Já. Við teljum að þessar aðgerð-
ir muni kosta ríkissjóð um 14-16
milljarða á ári, í þessi fjögur til
fimm ár. Það er brúttókostnaður.
Nettókostnaðurinn er lægri. Þetta
er raunhæft en ekki byggt á ein-
hverju stórkostlegu ofmati á getu
ríkissjóðs til að standa undir hundr-
aða milljarða loforðum sem sumir
flokkar hafa gefið fyrir þessar
kosningar. Í frétt RÚV í vikunni
voru hugmyndir flokkanna bornar
saman og þar kom fram að aðrir
eru að lofa aðgerðum sem kosta á
bilinu 240-400 milljarða. Þetta eru
10-15 Hörpur eða rekstrar kostnaður
Landspítalans í um það bil tíu ár. Á
sama tíma er kirkjan að safna fyrir
lækningatækjum fyrir sjúkrahúsin
og lögreglan er fjársvelt. Þetta er
því ávísun á stórkostlega viðbótar-
skuldsetningu ríkissjóðs, verðbólgu
og lífskjararýrnun Íslendinga um
ókomna tíð.
Hvað aðgerðirnar okkar varðar
hafa þær ekki sömu áhrifin á tekjur
ríkissjóðs til skamms tíma vegna
þess að séreignarsparnaðurinn
hefði aldrei komið til tekna hjá rík-
issjóði fyrr en hann hefði verið tek-
inn út. Okkar hugmynd er að hann
verði varanlega skattlaus og að því
leyti má segja að hann hafi engin
áhrif á tekjur ríkissjóðs til skamms
tíma, en tekjuskattsafslátturinn
vegna afborgana veldur einhverri
tekjulækkun hjá ríkissjóði.
Á móti munu ráðstöfunartekjur
heimilanna smám saman vaxa og
þau geta orðið virkari þátttakendur
í efnahagslífinu og þannig gerum
við ráð fyrir að nettókostnaðurinn
verði lægri. En það liggur í hlutar-
ins eðli að við getum ekki gert eitt-
hvað sem um munar sem kostar
ekki neitt. Þetta er ábyrg og raun-
hæf leið.
Hvað áhrif á ríkissjóð varðar er
þessu dreift á nokkur ár og þetta er
almenn aðgerð sem nýtist öllum sem
eru að greiða af húsnæðislánum.
Hún hvetur til þess að fólk standi í
skilum, hún styður fólk í þeirri við-
leitni sinni að halda eignum sínum.
Þannig styður hún við séreigna-
stefnuna sem við höfum alltaf stutt
og hún er, hvað tekjuskatts afsláttinn
snertir, alveg hlutlaus gagnvart
tekjuhópunum. Það skiptir ekki máli
hvað þú ert með í tekjur, þú munt fá
sama afsláttinn af tekjuskattinum.“
Hvetja til sparnaðar
Sjálfstæðisflokkurinn vill gera
atlögu að almennri notkun verð-
tryggingar í landinu og tryggja það
að fólk hafi val um verðtryggð eða
óverðtryggð lán. Bjarni segir það
vera hlutverk stjórnvalda að endur-
skoða húsnæðislánamarkaðinn með
það að markmiði að tryggja óverð-
tryggð lán sem valkost.
Hann segist vilja vinna áfram
með hugmyndir ASÍ um breytta
fjármögnun húsnæðislánakerfisins.
Útgangspunkturinn sé að fyrst og
fremst verði um óverðtryggð lán að
ræða og verkefnið að tryggja fasta
vexti til lengri tíma.
„Að auki viljum við beita skatta-
legum hvötum til að gera ungu fólki,
sem er að fara í fyrstu fasteigna-
kaup, kleift að eignast höfuðstól.
Þetta er mikilvæg kerfis- og hugar-
farsbreyting, þannig að það verði
ekki meginreglan að fólk skuldsetji
sig mikið við kaup á fyrstu íbúð og
fái svo vaxtabætur frá ríkinu eins
og verið hefur.
Það skiptir öllu að tefla fram hug-
myndum sem ganga upp því ella
fáum við aðgerðirnar í bakið með
hærri verðbólgu og vöxtum. Það má
því segja að ekkert af þessu takist,
þegar upp er staðið, það er að segja,
að ná raunverulegum kjarabótum
nema við náum stöðugleika, lækkum
verðbólguna og sköpum fleiri störf.“
En er hægt að tryggja þann
stöðug leika sem með þarf með
íslenskri krónu?
„Já. Ég tel að það sé hægt. Það
hefur verið og verður áfram eitt
erfið asta verkefni stjórnvalda á
hverjum tíma að tryggja stöðug-
leika. Ég hef lengi talað fyrir því
að það þurfi, og ræddi um það í
eldhúsdags umræðunum, að strax
eftir kosningar yrði að ná nýrri
þjóðarsátt. Það þarf að gera nýjan
stöðug leika- og vaxtasáttmála í
landinu. Ég hugsa í því sambandi til
þjóðar sáttarinnar frá 1990 og þess
hve miklu hún skipti fyrir heimilin
og atvinnulífið.
Stöðugleikasáttmáli, þar sem
menn tryggja að kjarabætur haldist
í hendur við aukna verðmætasköp-
un, aukna framlegð og framleiðslu,
er ein grunnforsenda þess að okkur
takist að ná tökum á ástandinu. Ein
helsta forsenda þess að það takist
er að fyrir liggi trúverðug áætlun
stjórnvalda til næstu ára.“
Skattar verða lækkaðir
Hvað atvinnulífið varðar segir
Bjarni að þrennt hafi staðið því fyrir
þrifum í tíð núverandi ríkisstjórnar.
„Í fyrsta lagi pólitísk óvissa um
hvert skuli stefna. Í því samhengi
nægir að benda á sjávarútveginn
og orkunýtingarmál. Það verður
að tryggja atvinnulífinu í landinu
starfsöryggi og vissu um lagalegt
og rekstrarlegt umhverfi sitt.
Í öðru lagi eru skattahækkanir.
Mun hærra hlutfall aðhalds aðgerða
ríkisstjórnarinnar kom í gegnum
auknar skatttekjur en lofað var í
stöðugleikasáttmálanum. Okkar
stefna verður að lækka skatta að
nýju og einfalda skattkerfið. Fremst
á forgangslistanum er trygginga-
gjaldið sem er enn allt of hátt.
Í þriðja lagi eru það höftin. Þau
verða einfaldlega að fara, enda kæfa
þau bæði atvinnulífið og heimilin í
landinu.
Tekjutap sem vinnst upp
Bjarni segist ósammála því að það
að lækka skatta þýði tekjutap fyrir
ríkið. Fjölmörg dæmi séu frá undan-
förnum áratugum þar sem skattar
hafi verið lækkaðir en tekjur ríkis-
ins á sama tíma aukist vegna frek-
ari umsvifa. Nægi þar að horfa á
tekjuskattslækkanir á fyrirtæki úr
50 prósentum í 15 prósent á meðan
tekjur ríkisins jukust.
En geturðu lofað kjósendum því
að skattalækkun þýði ekki minni
tekjur?
„Já, þegar upp er staðið er það
alveg skýrt. Tekjutap ríkissjóðs
getur hins vegar verið óhjákvæmi-
legt í skamman tíma en afrakstur-
inn af skattalækkunum mun koma í
ljós þegar umsvifin aukast.“
Í hve skamman tíma og hve
mikið?
„Reynsla annarra þjóða er að á
einu til þremur árum er hægt að
snúa hagkerfinu við með markviss-
um aðgerðum. Tekjutap í eitt til
tvö ár getur ekki komið í veg fyrir
að menn grípi til aðgerða sem eru
skynsamlegar og borga sig marg-
falt til baka til samfélagsins með
meiri fjárfestingum og fjölgun
starfa,“ segir Bjarni. Hann segir
sem dæmi að lægra og sann-
gjarnara veiðigjald muni auka fjár-
festingu í greininni og útflutnings-
tekjur þar með.
„Það verður líka flókið mál, og
ekki einnar nætur verk, að einfalda
virðisaukaskattkerfið. Við viljum
lægra almennt þrep þar, en í dag
eru þau þrjú með tilheyrandi flækju-
stigi. Þetta er ekki verkefni sem við
getum leyst á fyrstu mánuðum eftir
kosningar, en það er hins vegar
hægt að gera það varðandi trygg-
ingagjaldið. Að auki þarf að endur-
skoða vöru- og aðflutningsgjöldin.“
En hafið þið reiknað það nákvæm-
lega út hvað þetta kostar?
„Já, en við einblínum ekki síður
á hverju þetta skilar. Það er aðal-
atriðið að við þurfum að
hefja nýtt vaxtar-
skeið. Skammtíma-
tekjutap upp á
10-20 milljarða af
skattalækkunum
á atvinnulífið mun
skila sér margfalt
til baka. Að sjálf-
sögðu munum við
loks raða þessum
skattalækkunarað-
gerðum þannig að
það eigi saman við
stöðuna í hagkerfinu
á hverjum tíma og við
munum ekki gefa eftir
það stóra markmið
okkar að loka fjárlaga-
gatinu. Ég vil setja mun
strangari reglur um
fjármál ríkis-
i n s e n
fylgt
hefur
verið
hing-
að
til.“
Munum lækka skatta og skuldir
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur minnkað undanfarið og landsfundur flokksins breytti engu þar um. Fréttablaðið settist með
Bjarna Benediktssyni formanni og fór yfir helstu stefnumálin í kosningabaráttunni, stöðu heimilanna, skatta og atvinnumál.
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
2013
Bjarni segir að setja verði fram
raunhæfa áætlun til að afnema
gjaldeyrishöftin. „Höftin eru
þarna vegna þess að við getum
ekki leyft eignum í eigu erlendu
kröfuhafanna að fara út á hinu
opinbera skráða gengi. Það
verður að ganga mjög ákveðið til
verks núna og setja reglur sem
miða að því að afskrifa stóran
hluta af þessum kröfum og
gera í framhaldi af því upp við
kröfuhafana, án þess að gengi
krónunnar verði sett í algjört
uppnám.
Ef hugmyndir um nýjar reglur
leysa ekki vandann, þá er
ekkert annað að gera en
að taka þessi fjármála-
fyrirtæki sem eru í
slitameðferð og setja
í þrotameðferð. Þá
verða bankarnir að
gjaldþrota félögum og
ég get séð fyrir mér
að þá verði þetta ekki
leyst með skilyrðum
seðlabankans um
útgreiðslu gjald-
eyris, heldur einfald-
lega með mjög háum
skatti á greiðslu fjár út úr
landinu.“
➜ Afnemum höftin
18,8%
➜ Fylgi Sjálfstæðisflokksins í formannstíð Bjarna
60%
50%
40%
30%
20%
25
.3.
20
09
7.4
.20
09
14
.4.
20
09
20
-22
.4.
20
09
28
.7.
20
09
15
.10
.20
09
7.1
.20
10
18
.3.
20
10
23
.9.
20
10
19
.1.
20
11
24
.2.
20
11
5-6
.4.
20
11
8.9
.20
11
7-8
.12
.20
11
8-9
.2.
20
12
11
-12
.4.
20
12
23
-24
.5.
20
12
16
-17
.1.
20
13
27
-28
.2.
20
13
30
-31
.1.
20
13
13
-14
.3.
20
13
Ko
sni
ng
ar
25
.4.
20
09
treysta Bjarna Benedikts-
syni best til að leiða ríkis-
stjórn að loknum kosn ing-
um, samkvæmt könnun
Fréttablaðsins sem gerð var
í lok febrúar.
29,1%
40,3%
27,3%
43,4%
23,7%
44,0%
43,7%
34,7%
24,8%
35,6%
41,2%
42,6%
30,4%
50,3%
31,1%
27,6%
TÆKIFÆRI Bjarni Benediktsson segir
tækifæri felast í óvissufylgi. Raunhæfar
tillögur Sjálfstæðisflokksins muni laða fleiri
kjósendur að honum.
ÞRJÚ MÁL SEM
EKKI VERÐUR
HVIKAÐ FRÁ ÞEG-
AR KEMUR AÐ
RÍKISSTJÓRNAR-
SAMSTARFI.Skattalækkanir
„Skattar verða lækkaðir
og einfaldaðir. Það verður
einfaldlega að gera það.“
1
Tekið á hallarekstri
„Sjálfstæðisflokkurinn
mun ekki taka þátt í
ríkisstjórnarsamstarfi
sem byggir á áfram-
haldandi stórkost-
legum hallarekstri
ríkissjóðs.“
3 Skuldastaða heimilanna
„Það verður ekki gefið
eftir að taka á skulda-
stöðu heimilanna og
greiðsluvanda þeirra.“
2
21,9%
49,6%
35,0%
17.11.2011
Landsfundur 27.1.2013 Icesave-
dómur fellur
21.02.2013
Landsfundur
32,0%
40,7%
29,0%
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
9. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
28%
Framsóknarflokkurinn er á mikilli siglingu þessa dagana og mælist hátt í skoðanakönnunum. Þetta eru aðrar kosningarnar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiðir flokk-inn í gegnum. Hann varð formað-
ur 18. janúar 2009, þegar mikil endurnýjun
varð í forystu flokksins. Óhætt er að segja að
hann hafi átt glæsta innkomu í stjórnmálin.
Þeir eru ekki margir sem hafa orðið formenn
eftir jafn stuttan starfsferil í flokki.
Flokksþing Framsóknarflokksins fór fram
í febrúar og þar voru línurnar lagðar fyrir
kosningabaráttuna. Tvö mál ber þar hæst;
skuldaleiðréttingu og afnám verðtrygging-
ar. Fréttablaðið sett-
ist niður með
Sigmundi
og fræddist um stefnuna í þessum stærstu
málum.
240 milljarðar afskrifaðir
Sigmundur Davíð segir að flokkurinn hafi
frá minnihlutastjórninni í febrúar 2009 lagt
mikla áherslu á leiðréttingu skulda og rætt
um 20 prósent í því samhengi. Því miður
hafi tækifærin til þess ekki verið nýtt og
aðstæður nú séu flóknari og málin erfiðari í
útfærslu. En hvað mun þetta kosta?
„Málið er orðið mun flóknara núna og
nauðsynlegt er að meta hvert og eitt tilvik
fyrir sig. Það þarf þó að gera eftir algildum
eða almennum reglum og við teljum mikil-
vægt að allir sitji við sama borð. Augljóslega
mun þó þurfa að huga að því hvenær lán var
tekið. Það er ekki hægt að ráðast í jafn mikla
leiðréttingu láns sem tekið var í síðasta mán-
uði og á því sem tekið var 2006.
Við teljum óhjákvæmilegt að ráðast í þess-
ar aðgerðir því eins og staðan er núna er nán-
ast heil kynslóð á Íslandi eignalaus og með
neikvætt eigið fé. Það er mjög hættu-
legt ástand fyrir samfélag, bæði
félagslega og efnahagslega, því
þessar kynslóðir eru þær sem
viðhalda þurfa vextinum.
Því segjum við að það sé á
endanum dýrara að bregðast
ekki við vandanum heldur en
að gera það. Það er nokkuð
á reiki um hvaða tölur er að
ræða en verðtryggð fasteigna-
lán eru í kringum 1.200 millj-
arða króna. Ef við notum 20
prósentin sem viðmið, þó að
það sé ekki endilega niðurneglt,
erum við að tala um 240 millj-
arða króna.
Það er hins vegar ekki
þar með sagt að þessir 240
milljarðar séu eitthvað sem komi
til greiðslu í einu lagi. Ávinn-
ingurinn af leiðréttingu skulda
getur farið að skila sér áður en
kostnaðurinn fellur allur til,“
segir Sigmundur og ítrekar að
sá kostnaður eigi að lenda á þeim
sem hafi hagnast á hruninu.
Einhver kostnaður
Framsóknarflokkurinn leggur til
að á meðal leiða sem farnar verði sé
að veita þeim sem greiði af fasteigna-
lánum afslátt af tekjuskatti. En
geturðu upplýst kjósendur
um hvað þessar leiðir
muni þýða fyrir
ríkissjóð í
minnkandi tekjum eða útgjöldum?
„Ég get sagt að þetta kunni að þýða að ein-
hver langtímakostnaður lendi á ríkissjóði,
þó ekki væri nema vegna flækjustigsins sem
komið er í þetta. Sá langtímakostnaður verð-
ur hins vegar, áður en hann fellur til, veginn
upp af efnahagslegum ávinningi.“
Samningsvilji kröfuhafa
Sigmundur Davíð segir að til að hægt sé
að fara í þessa skuldaleiðréttingu þurfi að
semja við kröfuhafa föllnu bankanna. Lík-
lega séu um 90 prósent krafnanna í eigu vog-
unarsjóða sem keypt hafi kröfurnar af upp-
haflegum lánveitnedum.
„Þeir sem keyptu kröfur tiltölulega
snemma, eins og við reyndar töldum að
ríkið ætti að gera, hafa hagnast verulega
á þeim. Þá spyrja menn: Er það ekki bara
þeirra hagnaður, er nokkur flötur á að skipta
honum með þeim sem töpuðu á hruninu?
Jú, það er í fyrsta lagi réttlætanlegt og í
öðru lagi framkvæmanlegt. Þeir sem keyptu
kröfur bankanna á hrakvirði vissu að hverju
þeir gengu. Þeir sérhæfa sig í svona við-
skiptum og vissu að þeir keyptu kröfur á
gjaldþrota fyrirtæki í landi sem um tíma
hafði verið verið kallað gjaldþrota, og í
gjaldeyrishöftum. Þau meinuðu þeim að
ná fjárfestingunni til baka án þess að ein-
hverjar breytingar yrðu á fyrirkomulaginu.“
Lausn Framsóknarflokksins á þessu er
að gefa kröfuhöfum kost á að taka þátt í því
að byggja upp íslenskt samfélag og eiga þá
hlutdeild í aukinni verðmætasköpun. Að
öðrum kosti geti þeir staðið frammi fyrir
íþyngjandi aðgerðum, sem þó séu réttlætan-
legar.
„Í slíkum viðræðum þurfa menn bæði að
hafa gulrót og kylfu. Það þarf að skapa hvata
en menn þurfa líka að standa frammi fyrir
því að ef þeir séu ekki tilbúnir til að spila
með verði það þeim ekki til hagsbóta. Eins
og lögin eru núna í stakk búin á að greiða úr
þrotabúum íslenskra fyrirtækja í íslenskum
krónum. Seðlabankinn gæti því í raun inn-
kallað gjaldeyrinn, í krafti gjaldeyrishaft-
anna, og greitt út í íslenskum krónum sem
menn sætu þá fastir með hér.“
Þessi stefna gerir ráð fyrir samningsvilja
kröfuhafanna?
„Hún byggir annaðhvort á vilja þeirra
eða því að ríkið nýti sér fullveldisrétt sinn,
til dæmis með því að greiða út í íslenskum
krónum eða sérstakri skattlagningu.“
En óttist þið ekki að það muni hafa áhrif
á framtíðarkröfuhafa Íslands? Ríkissjóður
mun þurfa að fjármagna sig í framtíðinni.
„Ég held að menn þurfi ekki að hafa mikl-
ar áhyggjur af því. Menn gera sér grein
fyrir því að í þeim aðstæðum sem Ísland er
í núna þarf að beita óhefðbundnum leiðum.
Ísland sker sig ekki lengur úr og við
höfum fordæmi frá fjölmörgum Evr-
ópuríkjum þar sem verið er að fara
óhefðbundnar leiðir. Menn skilja að
þarna er fyrst og fremst um að ræða
vogunarsjóði sem sérhæfa sig í að
fjárfesta í óvissunni.“
Þarna er þó líka um að ræða
lánastofnanir sem lánuðu bönk-
unum í góðri trú. Kemur þetta
ekki niður á þeim?
„Jú, þetta getur haft áhrif á
einhverja sem hafa þegar tapað,
en ekki grætt. Hagur þeirra
hefur hins vegar vænkast
vegna þess að neyðarlögin
verja eignir þeirra. Þó að
tapið sé stórt er þó búið
að verja hag þeirra svo
mikið að eðlilegt er að
þeir taki þátt í að koma
til móts við hina hliðina,
það er að segja skulda-
hliðina.“
Verðtryggingin afnumin
Framsóknarflokkurinn vill stofna nefnd sér-
fræðinga sem leiti leiða til að afnema verð-
trygginguna. Sigmundur Davíð segir í sjálfu
sér ekki flókið að afnema hana. Nefndin
verði að skoða heildarmyndina því verð-
tryggingin haldist í hendur við margt annað.
„Margir hafa bent á að verðtryggingin sé
ekki vandamálið heldur verðbólgan. Auð-
vitað þarf, samhliða afnáminu, að haga hag-
stjórn þannig að haldið sé aftur af verðbólg-
unni. Einn af göllum verðtryggingarinnar er
hins vegar að síðan hún var sett hefur efna-
hagslífið lagað sig svo að henni að verðtrygg-
ingin er farin að ýta undir verðbólguna.
Menn hafa til dæmis verið hvað eftir
annað að reyna að hafa áhrif á verðbólgu
með stýrivöxtum Seðlabankans. Engu máli
skiptir hvort þeir eru færðir upp eða niður,
samhengið við verðbólguna birtist ekki. Það
er vegna þess að áhrifin hafa verið tekin úr
sambandi við verðtrygginguna með því að
hafa í raun annan gjaldmiðil á lánum. Afnám
verðtryggingarinnar er því hluti af því að
vinna á verðbólguvandanum.“
Peningar eru ekki verðmæti
Tökum einfalt dæmi. Ef ég lána þér fyrir
bjór vil ég geta keypt mér bjór fyrir þann
pening sem þú borgar mér til baka. Ég vil að
virði peninganna sé það sama þegar þú end-
urgreiðir mér lánið. Hvernig tryggið þið það
ef verðtryggingin er afnumin?
„Þessi rök eru gild svo langt sem þau ná.
Það má segja að 30 milljóna fasteignalán í
dag sé ekki jafn hátt og 30 milljóna fast-
eignalán fyrir fimm árum, þar sem verð-
mæti hverrar krónu sé minna.
Það sem vantar hins vegar í þennan rök-
stuðning er að peningar eru ekki eiginleg
verðmæti. Peningar eru, rétt eins og aðrar
eignir, hlutir sem geta sveiflast að verðmæti.
Þegar einn lánar öðrum verða báðir aðilar
samnings að taka áhættu af þeim sveiflum í
verðmæti. Eins og þetta er núna er áhættan
aðeins hjá lántakanum. Hann þarf alltaf að
borga jafn mikinn bjór til baka, eða hvaða
viðmiðun við notum, þannig að áhættan, sem
hlýtur að þurfa að skiptast á milli manna
þegar þeir gera samning, liggur eingöngu
öðru megin. Kostnaðurinn við sveiflujöfnun
má ekki bara lenda á lántakanum.“
Óttumst ekki vaxtahækkun
En óttist þið ekki að lánveitendur tryggi hag
sinn með því einfaldlega að hækka vexti?
„Við höfðum áhyggjur af því í byrjun en ég
fellst á þau rök að svo eigi ekki að vera. Við
afnám verðtryggingar geta markaðslögmálin
farið að virka með fjármagn eins og annað.
Menn þurfa að hafa þau kjör á fjármagni
þegar þeir lána það út að fólk vilji kaupa, það
er að segja að taka lán. Ef vextir eru með
þeim hætti að menn sjái sér ekki hag í að
taka lánið, þá auðvitað taka menn það ekki.“
Sigmundur segir óskiljanlegt hve vextir á
verðtryggðum lánum séu háir. Verðtrygging-
in tryggi að lánveitandi fái allt sitt til baka en
engu að síður bætist við háir vextir. Glöggt
hafi komið í ljós að markaðslögmálin gildi
ekki á lánamarkaði þegar bankarnir hækk-
uðu vexti sína á húsnæðislánin til að draga
úr fasteignabólunni.
„Þrátt fyrir það dró ekki úr lántöku sem
neinu nam. Ástæðan fyrir því var að mark-
aðslögmálin virkuðu ekki, fasteignabólan
hélt áfram að blása út. Fólk hugsaði aðeins
um hvað það þurfti að borga fyrstu mán-
uðina. Heildarkostnaðurinn við lánið var
ekki það sem réð ákvörðuninni.
Þegar verðtryggingin er ekki til staðar til
að rugla þessa mynd, þá sjá menn heildar-
kostnaðinn og geta tekið ákvörðun út frá því.
Við teljum því að þetta verði gegnsærra og
jafni stöðu samningsaðilanna, lánveitandans
og lántakans.“
2013
Einfalt að afnema verðtryggingu
Leiðrétting skulda og afnám verðtryggingar eru stóru mál Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar. Flokkurinn nýtur góðs
fylgis í könnunum og er í uppsveiflu. Fréttablaðið fór yfir þessi mál með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni.
➜ Fylgi Framsóknarflokksins í formannstíð Sigmundar
25%
20%
15%
10%
5%
22
.01
.09
27
.02
.09
11
.03
.09
25
.03
.09
07
.04
.09
14
.04
.09
25
.04
.09
Ko
sni
ng
ar
28
.07
.09
15
.10
.09
07
.01
.10
18
.03
.10
23
.09
.10
19
.01
.11
24
.02
.11
05
- 0
6.0
4.1
1
08
.09
.11
07
- 0
8.1
2.2
01
1
08
- 0
9.2
.20
12
11
- 1
2.4
.20
12
23
- 2
4.5
.20
12
16
- 1
7.1
.20
13
30
- 3
1.1
.20
13
27
- 2
8.2
.20
13
20
- 2
2.0
4.0
9
treysta
Sigmundi
Davíð best til að leiða
ríkisstjórn, samkvæmt
könnun Fréttablaðsins og
Stöðvar 2 sem gerð var í
lok febrúar. Hann nýtur
mests stuðnings allra
stjórnmálamanna til þess.
16.8% 16.8%
15.8%
12.4% 12.3%
14.8% 14.1%
14.6%
9.9%
9.4%
6.8%7.5%
7.3%
11.3% 11.8% 11.9%
26.1%
11.7%
13.7%
13.8%13.3%
12.5%
ÞRJÚ MÁL SEM EKKI
VERÐUR KVIKAÐ
FRÁ ÞEGAR KEMUR
AÐ RÍKISSTJÓRNAR-
SAMSTARFI
Málefni heimilanna
„Við stöndum fast á þeim.
Ekki bara af því að það er
rétt heldur er það óhjá-
kvæmilegt til að byggja
upp íslenskt efnahagslíf.“
Atvinnuuppbygging
„Við þurfum framtíðarsýn
og stöðugleika í anda
þjóðarsáttar. Einfalda
verður skattkerfið.“
ESB
„Við erum ekki
á leið í Evrópu-
sambandið.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
26,1% Framsóknarflokkurinn nýtur
stuðnings 26,1 prósents kjósenda samkvæmt
könnun Fréttablaðsins. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson segir málefni heimilanna vera
stóru málin í kosningabaráttunni.
1
2
3
20.8%
13.5%
Kolbeinn Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
SETT Í SKULDA-
NIÐURFELL-
INGU Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson vildi
að fjármunir
frá vogunar-
sjóðum færu
í skuldaniður-
fellingu Fram-
sóknarflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf
talað fyrir því að það verði að semja
við kröfuhafa föllnu bankanna. Í því
felist að afskrifa þurfi hluta krafn-
anna, en gera síðan upp við kröfuhaf-
ana. Raunar má segja að þetta hafi
verið stefnan sem allir aðrir flokkar
en Framsóknarflokkurinn kynntu.
Raunsæi var það sem Sjálfstæðis-
flokkurinn talaði fyrst og fremst
fyrir, finna þyrfti raunhæfa leið til
að afnema höftin.Bjarni dró hins
vegar enga dul á það að ef samningar
næðust ekki við kröfuhafana þyrfti
einfaldlega að keyra slitabúin í þrot,
gera þau gjaldþrota. Færi svo yrði
settur hár skattur á útstreymi fjár-
muna af landi brott.
Bjarni sagði, í viðtali við Fréttablað-
ið 16. mars 2013, að fyrst og fremst
þyrfti að setja fram raunhæfa áætl-
un til að losa fjármagnshöftin.
„Höftin eru þarna vegna þess
að við getum ekki leyft eignum í
eigu erlendu kröfuhafanna að fara
út á hinu opinbera skráða gengi.
Það verður að ganga mjög ákveðið
til verks núna og setja reglur sem
miða að því að afskrifa stóran hluta
af þessum kröfum og gera í fram-
haldi af því upp við kröfuhafana, án
þess að gengi krónunnar verði sett í
algjört uppnám.“
Gjaldþrot og skattur
Bjarni lagði áherslu á samninga, að
besta leiðin væri að semja við þrota-
búin. Til þess þyrfti að finna nýjar
leiðir.
„Ef hugmyndir um nýjar reglur
leysa ekki vandann, þá er ekk-
ert annað að gera en að taka þessi
fjármálafyrirtæki sem eru í slita-
meðferð og setja í þrotameðferð.
Þá verða bankarnir að gjaldþrota
félögum og ég get séð fyrir mér að
þá verði þetta ekki leyst með skil-
yrðum seðlabankans um útgreiðslu
gjaldeyris, heldur einfaldlega með
mjög háum skatti á greiðslu fjár út
úr landinu,“ sagði Bjarni í umræddu
viðtali.
Bjarni tiltók ekki hvernig þeir
fjármunir sem myndu skapast við
þessar aðgerðir yrðu nýttir. Raunar
talaði hann sjaldan ef nokkurn tíma
um þetta sem leið til að afla tekna
sem hægt væri að nýta í ákveðin
verkefni, líkt og Sigmundur Davíð
gerði þegar hann sá fyrir sér að
nýta fjármunina í skuldaniðurfell-
ingu.
Sú stefna sem Bjarni talaði
fyrir í mars 2013 er býsna lík
þeirri sem kynnt var
á mánudag. Samið
um afskriftir skulda
og að öðrum kosti
komi til gjaldþrota
og skattlagning-
ar. Raunar er hún
meira en lík, hún
er nákvæmlega
eins.
Afskrifa hluta krafna
Framsóknarflokkur Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar var býsna
afdráttarlaus fyrir síðustu kosn-
ingar þegar kom að kröfum í föllnu
bankana. Sigmundur vildi ekki gefa
tommu eftir í samningaviðræðum
við kröfuhafa.
„Í slíkum viðræðum þurfa menn
að hafa bæði gulrót og kylfu. Það
þarf að skapa hvata en menn þurfa
líka að standa frammi fyrir því að
ef þeir eru ekki tilbúnir til að spila
með verði það þeim ekki til hags-
bóta. Eins og lögin eru núna í stakk
búin á að greiða úr þrotabúum
íslenskra fyrirtækja í íslenskum
krónum. Seðlabankinn gæti því í
raun innkallað gjaldeyrinn, í krafti
gjaldeyrishaftanna, og greitt út í
íslenskum krónum sem menn sætu
þá fastir með hér,“ sagði Sig mundur
Davíð í viðtali við Fréttablaðið 9.
mars 2013.
Blaðamaður spurði hvort þessi
stefna gerði þá ráð fyrir samnings-
vilja kröfuhafa.
„Hún byggir annaðhvort á vilja
þeirra eða því að ríkið nýti sér full-
veldisrétt sinn, til dæmis með því
að greiða út í íslenskum krónum eða
sérstakri skattlagningu.“
Ekki í skuldaniðurfellingu
Hugmyndir Sigmundar um að nýta
fullveldisréttinn til að greiða út í
íslenskum krónum urðu ekki að
veruleika og aldrei mun koma til
álagningar stöðugleikaskattsins.
Raunar virðist aldrei hafa verið
hætta á því, kröfuhafarnir hafi
verið tilbúnir til að semja um leið og
línur voru lagðar af ríkisstjórninni.
En Sigmundur Davíð tiltók í
umræddu viðtali hvernig nýta
ætti þá fjármuni sem hægt væri
að sækja til kröfuhafanna erlendu.
Þeir voru nefnilega forsenda þess
að hægt yrði að fara í skuldaniður-
fellinguna frægu, stærsta kosninga-
loforð flokksins.
„Sigmundur Davíð segir að til að
hægt sé að fara í þessa skuldaleið-
réttingu þurfi að semja við kröfu-
hafa föllnu bankanna. Líklega séu
um 90 prósent krafnanna í eigu vog-
unarsjóða sem keypt hafi kröfurn-
ar af upphaflegum lánveitendum,“
sagði í viðtalinu fyrir kosningar,
viðtali sem Sigmundur las yfir og
samþykkti.
Sú stefna varð ekki að veruleika.
Farið var í skuldaniðurfellingu
í fyrra, en áætlun um losun
gjaldeyrishafta var kynnt
á mánudag. Það er því ljóst
að sú stefna flokksins
að sækja peninga til
erlendra vogun-
arsjóða og fjár-
magna þannig
skuldaniður-
fellinguna beið
skipbrot.
Fjármagna niðurfellingu
RAUNHÆF
ÁÆTLUN
Bjarni talaði
fyrst og fremst
fyrir raunhæfri
áætlun sem
ekki mætti hafa
áhrif á gengi
krónunnar.
Einhverjum finnst kannski tittlingaskítur
að velta því fyrir sér hver á eignarhaldið
á þeirri leið sem valin var við losun hafta.
Vissulega er aðalatriðið að aðgerðirnar tak-
ist vel og verði þjóðarbúinu til heilla. Lýð-
ræðið byggir hins vegar á því að kjósendur
vegi og meti orð og gjörðir stjórnmálamanna
og kjósi þá sem þeim hugnast best eftir það
mat. Það er því ekki úr vegi að skoða hvað
oddvitar ríkisstjórnarinnar sögðu um hafta-
losun í aðdraganda síðustu kosninga.
Þá voru Bjarni Benediktsson og Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson formenn
flokka í stjórnarandstöðu. Hlutskipti þeirra
var ólíkt. Framsóknarflokkurinn var í mik-
illi uppsveiflu, hreykti sér af því að sigur
hefði unnist í Icesave-málinu og talaði nokk-
uð digur barkalega um hrægammasjóði sem
ættu kröfur á hina föllnu banka. Algjör við-
snúningur hafði orðið á fylgi flokksins eftir
Icesave-dóminn og hann rauk upp í skoðana-
könnunum og vann síðan gríðarlega stóran
kosningasigur.
Sjálfstæðisflokkurinn var hins vegar í til-
vistarkreppu á þessum tíma. Bjarni varð
fyrir gagnrýni innan úr röðum flokksins
og meðal annars var gerð skoðanakönnun
sem sýndi gott fylgi við það að Hanna Birna
Kristjánsdóttir yrði formaður í hans stað.
Bjarni fór í frægt Kastljósviðtal og sneri
vörn í sókn, en útkoman úr kosningunum
varð flokknum ekki góð.
Að kosningum loknum þurfti að sameina
þau ólíku sjónarmið flokkanna sem hér sjást
til að mynda ríkisstjórn. Sú vinna er enn í
gangi, enda áherslurnar ólíkar um margt.
Hverju lofuðu þeir fyrir kosningar?
Mikið er deilt um eignarhald á þeirri leið sem valin var við losun hafta. Höftin hafa verið eitt af stóru málum íslenskra stjórnmála frá
hruni og voru hluti af kosningabaráttunni 2013. Þingsjá ákvað að kíkja á hvað oddvitar ríkisstjórnarinnar sögðu fyrir kosningar.
ÞAÐ SEM SIGMUNDUR OG BJARNI SÖGÐU UM HAFTALOSUN Í AÐDRAGANDA SÍÐUSTU KOSNINGA
Elsa Lára Arnardóttir
um störf þingsins
Málið er að afnáms-
áætlun síðustu ríkis-
stjórnar tók ekki til
slitabúa, annaðhvort
gleymdu þeir kröfu-
höfunum eða fannst
að það mætti nota
skuldsettan gjald-
eyrisforða til að borga þá út, eins og
sumir þeirra lögðu til. Aðgerðaáætlun
ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar tekur á 1.200 milljarða vanda-
máli, þar af eru slitabúin 900 milljarðar.
Heildarlausnin liggur því í að tekið sé á
slitabúunum.
Jón Gunnarsson
um stóriðju á Bakka
Það er ákveðinn
tvískinnungsháttur í
allri þessari umræðu.
Þetta verkefni var
stutt hér af þeim
vinstriflokkum sem
í dag eru að berjast
fyrir því að leggja
stein í götu virkjana í neðri hluta Þjórsár
og stein í götu eðlilegrar afgreiðslu á
rammaáætlun með þeim afleiðingum
sem það getur haft í för með sér.
Katrín Júlíusdóttir
um störf þingsins
Það er leitt að heyra að
einhver hafi verið að
hlæja að framsóknar-
mönnum í aðdraganda
síðustu kosninga og þá
kannski ekki síst vegna
þess að menn hafi þar
verið að tala um kylfur
og gulrætur, ekki síst í ljósi þess að það
gerðum við líka sem þá vorum í ríkisstjórn.
Það kemur skýrt fram í fjölmiðlum frá þeim
tíma þar sem við erum að fjalla um að
beita þurfi aðferðafræði svipu og gulrótar.
Það er kannski það sem var aðhlátursefni,
það er að menn næðu ekki saman um það
hvort beita ætti svipum eða kylfum.
Steingrímur J. Sigfússon
um orð Jóns Gunnarssonar
Auðvitað kippi ég
mér ekki mikið upp
við skítadreifarana
frá hv. þm. Jóni
Gunnarssyni og ég
mun hafa tækifæri
síðar til að jafna þá
reikninga ef svo ber
undir, en mér er meira umhugað um að
svona lagað sé ekki látið líðast í störfum
þingsins, að svona lágkúra, svona ódreng-
skapur, að vega að mönnum sem ekki
geta svarað og hafa ekki ræðurétt í sömu
umræðu sé látið viðgangast. En auðvitað
er skömmin háttvirts þingmanns.
ÞINGSJÁ
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
GJALLARHORNIÐ
t
í
a
r
a
n-
s-
-
ð
hver langtímakostnaður lendi á ríkissjóði,
þó ekki væri nema vegna flækjustigsins sem
komið er í þetta. Sá langtímakostnaður verð-
ur hins vegar, áður en hann fellur til, veginn
upp af efnahagslegum ávinningi.“
Samningsvilji kröfuhafa
Sigmundur Davíð segir að til að hægt sé
að fara í þessa skuldaleiðréttingu þurfi að
semja við kröfuhafa föllnu bankanna. Lík-
lega séu um 90 prósent krafnanna í eigu vog-
unarsjóða sem keypt hafi kröfurnar af upp-
haflegum lánveitnedum.
„Þeir sem keyptu kröfur tiltölulega
snemma, eins og við reyndar töldum að
ríkið ætti að gera, hafa hagnast verulega
á þeim. Þá spyrja menn: Er það ekki bara
þeirra hagnaður, er nokkur flötur á að skipta
honum með þeim sem töpuðu á hruninu?
Jú, það er í fyrsta lagi réttlætanlegt og í
öðru lagi framkvæmanlegt. Þeir sem keyptu
kröfur bankanna á hrakvirði vissu að hverju
þeir gengu. Þeir sérhæfa sig í svona við-
a fjár-
ni gs-
l, og
f lda
iljum
í dag
ækju-
m við
m eftir
vegar
rygg-
ndur-
din.“
væm-
síður
aðal-
. Fréttablaðið settist með
la na, skatta og atvinnumál.
Bjarni segir að setja verði fram
raunhæfa áætlun til að afnema
gjaldeyrishöftin. „Höftin eru
þarna vegna þess að við getum
ekki leyft eignum í eigu erlendu
kröfuhafanna að fara út á hinu
opinbera skráða gengi. Það
verður að ganga mjög ákveðið til
verks núna og setja reglur sem
miða að því að afskrifa stóran
hluta af þessum kröfum og
gera í framhaldi af því upp við
kröfuhafana, án þess að gengi
krónunnar verði sett í algjört
uppnám.
Ef hugmyndir um nýjar reglur
➜ Afnemum höftin
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
8
-1
D
9
C
1
7
5
8
-1
C
6
0
1
7
5
8
-1
B
2
4
1
7
5
8
-1
9
E
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K