Fréttablaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 20
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20 Frjáls félagasamtök skipta miklu máli í starfi að velferðarmálum og heilbrigðismálum, segir Bret- inn Sir Stephen Bubb. Hann er framkvæmdastjóri ACEVO, samtaka stjórnenda sjálf- boðasamtaka í Bretlandi, og verð- ur aðalræðumaður á málþingi sem Almannaheill standa fyrir á Fundi fólksins á morgun. Bubb segir að stjórnvöld gætu veitt almannaþjónustu mun betur með því að nýta frjáls félagasam- tök og góðgerðarfélög á skilvirk- ari hátt. „Þegar þú horfir á heil- brigðisgeirann í Bretlandi þá hafa frjáls félagasamtök alltaf spilað stóra rullu. Og stundum eru frjáls félagasamtök betri í því að aðstoða fólk með geð- heilbrigðisvanda, í fíkn, heldur en ríkið getur gert. Þau eru oft betur miðuð að skjólstæðingnum en ríkið,“ segir Bubb. Þá bendir Bubb á að frjáls félagasamtök skipti verulegu máli fyrir efnahagslíf í hverju ríki. Hann bendir á að 1,5 milljónir manna séu á launum hjá frjálsum félagasamtökum í Bretlandi og um 6 milljónir manna starfa reglulega í sjálfboðaliðs- vinnu fyrir frjáls félagasamtök. Bubb segir að munurinn á sterk- um samfélögum og veikum samfélögum sé fjöldi frjálsra félagasamtaka í sam- félaginu. Það sé grundvallar atriði að stjórnvöld hafi mótaða stefnu sem styður og verndar frjáls félagasamtök og skaðar þau ekki. „Að auki er mikilvægt að stjórn- völd virði sjálfstæði þessara sam- taka. Að þau styðji en séu ekki að reyna að stýra eða segja fyrir um hvað á að gera og hvað ekki,“ segir Bubb. Bubb segir að stjórnvöld verði að gefa þessum félagasamtökum svigrúm til þess að tala frjáls- lega. „Þannig að ef stjórnvöld eru að gera eitthvað sem skaðar sam- félagið þá er það hlutverk þess- ara félagasamtaka að koma í veg fyrir það,“ segir Bubb. Það verði að hafa á hreinu að það sé hlut- verk þessara frjálsu félagasam- taka að benda á það sem miður fer. „Við erum ekki hluti ríkisins og stundum þurfum við að segja ríkisvaldinu ef það er að gera eitt- hvað rangt,“ segir hann. Bubb bendir á að í hluta Austur- Evrópu og í Rússlandi hafi frjáls félagasamtök og góðgerðarsam- tök hreinlega verið barin niður. „ Þannig að þú þarft að geta boðið stjórnvöldum birginn og góð stjórnvöld skilja það en styðja samt við bakið á þessum sömu félagasamtökum,“ segir Bubb. jonhakon@frettabladid.is Óháðir aðilar oft betri en ríki Stjórnvöld geta styrkt almannaþjónustu með því að semja við frjáls félagasamtök um að veita þjónustuna. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka stjórnenda sjálfboðasamtaka í Bretlandi. Verður hér á landi á morgun. MEÐFERÐARHEIMILI VOGUR SÁÁ á aðild að Almannaheillum og er dæmi um samtök sem hafa skipt sköpum fyrir velferðar- og heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Stephen Bubb segir að frjáls félagasamtök styrki samfélagið og lýðræðið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA STEPHEN BUBB Stephen Bubb kemur hingað til lands á vegum Almannaheilla. Það eru heildarsamtök sem félög og sjálfseignarstofnanir sem starfa að almanna- heill ákváðu að stofna með sér með það að markmiði að vinna að sam- eiginlegum hagsmunamálum. Eftirtaldir aðilar áttu aðild að samtökunum: Á vegum Almannaheilla ADHD samtökin Barnaheill Blindrafélagið Bandalag íslenskra skáta Einstök börn Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs Heimili og skóli Hjartavernd Hjálparstarf kirkjunnar Krabbameinsfélagið Kvenréttindafélag Íslands Kvenfélagasamband Íslands Landvernd Landssamband eldri borgara Landssamtökin Geðhjálp Landssamtökin Þroskahjálp Neytendasamtökin SÁÁ Samtök sparifjáreigenda Skógræktarfélag Íslands Styrktarfélaga krabbameinssjúkra barna Styrktarfélaga lamaðra og fatlaðra Ungmennafélag Íslands– UMFÍ Umhyggja Vinir Vatnajökuls Öryrkjabandalag Íslands Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru í gær hækkaðir um 0,5 prósentustig og eru nú fimm prósent. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðla- bankans kemur fram að einsýnt virðist vera að hækka þurfi vexti umtalsvert í ágúst og frekar á komandi misserum eigi að tryggja verðstöðugleika til lengri tíma litið. Nefndin benti á að miklar launahækk anir í nýgerðum kjarasamningum hafi valdið því að verðbólguhorfur hafi versnað veru- lega og því hafi verið gripið til vaxtahækk- unar. Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að ómögulegt sé að segja til um hversu miklar þær hækkanir verði. Þá benti pen- ingastefnunefndin á að aðgerðir stjórnvalda í tengslum við nýgerða kjarasamninga hafi áhrif á ákvörðun um hækkun stýrivaxta nú. Aðgerðirnar séu enn ófjármagnaðar og feli því að óbreyttu í sér slökun á aðhaldi í ríkis- fjármálum. „En ef þetta verður fjármagnað, sem við náttúrlega vonum, þá verða ekki þessi áhrif. En annars er þetta að leggjast á sveif með og koma til viðbótar við önnur eftirspurnarauk- andi öfl og hækkanir á kostnaði í hagkerfinu sem eru að eiga sér stað. Og við skulum vona að það verði ekki,“ segir Már. Þá varar peningastefnunefndin einnig við því að fé sem kunni að falla stjórnvöldum í skaut vegna losunar hafta verði varið þann- ig að það skapi þenslu. Þó sagði Már á fundi þar sem vaxtaákvörðunin var rökstudd í gær- morgun að ekkert hefði komið fram sem benti til annars en að þessir fjármunir yrðu nýtt- ir til að lækka skuldir ríkissjóðs. Seðlabank- inn myndi þó fylgjast með framvindu mála og grípa til viðeigandi aðgerða ef þörf krefði. -ih, hmp Stýrivextir Seðlabankans voru hækkaðir um 0,5 prósentustig í gær en þeir verða að líkindum hækkaðir aftur í ágúst: Seðlabankinn boðar talsverðar vaxtahækkanir STÝRIVEXTIR KYNNTIR Arnór Sighvatsson og Már Guðmundsson kynntu vaxtaákvörðun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Advania hefur keypt Knowledge Factory sem veitir ráðgjöf um högun upplýsingatækniumhverfa. Knowledge Factory þjón ustar ríflega 500 viðskiptavini um heim allan. Fyrirtækið veitir ráð- gjöf á sviði upplýsingatækni með megináherslu á högun upplýs- ingatækniumhverfa og tilfærslu úr hefðbundnu rekstrarumhverfi í skýjaumhverfi. Sérhæfing fyrirtækisins liggur einkum á sviði Microsoft-lausna. Alls starfa 35 manns hjá fyrir- tækinu sem er með þrjár starfs- stöðvar á Norðurlöndunum. - jhh 35 manna fyrirtæki bætt við: Advania kaupir nýtt fyrirtæki SÁTTIR VIÐ KAUPIN Mikael Noaksson, forstjóri Advania í Svíþjóð, og Tobias Öien, forstjóri Knowledge Factory. Lýsi hf. hefur skrifað undir samning um kaup á meirihluta hlutafjár í Akraborg ehf. Fyrir- tækið var stofnað árið 1989 og hefur í rúm 20 ár framleitt niður- soðna þorsklifur. Stærstu eigendur voru Tri- ton ehf., auk Bornholms A/S, félags í eigu Christian Sieverts og fjölskyldu, sem hefur rekið félagið um árabil. Eftir kaupin mun Bornholms A/S áfram eiga stóran hlut í fyrirtækinu. Hjá Akraborg ehf. starfa 50 manns og verður starfsemi félagsins rekin í óbreyttri mynd. - jhh Starfsemin í óbreyttri mynd: Lýsi hf. kaupir Akraborg KATRÍN PÉTURSDÓTTIR HJÁ LÝSI Fyrirtækið hefur keypt nýtt fyrirtæki með 50 starfsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 8 -1 3 B C 1 7 5 8 -1 2 8 0 1 7 5 8 -1 1 4 4 1 7 5 8 -1 0 0 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.