Fréttablaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 11. júní 2015 | SKOÐUN | 23
Stjórnarandstaðan í Simbabve
sótti svo í sig veðrið í þingkosn-
ingum 2008 að Robert Mugabe
forseti og flokkur hans neyddust
til að mynda samsteypustjórn með
höfuðandstæðingi sínum, Morg-
an Tsvangíraí og flokki hans.
Mikið var í húfi. Mugabe forseti
og menn hans höfðu gengið svo
fram af almenningi og alþjóða-
samfélaginu að yfir landinu vofði
innrás Breta léti Mugabe sér ekki
segjast. Verðbólgan æddi áfram.
Landið var rjúkandi rúst eftir ára-
langa óstjórn Mugabes samfleytt
frá 1980. Ein krafan á hendur
Mugabe var um nýja stjórnar-
skrá til að leggja grunninn að
brýnum réttarbótum, einkum til
að skerða völd forsetans. Lestu
nú áfram, lesandi minn góður, því
þessi Afríku saga á brýnna erindi
við þig en þér kann að virðast í
fyrstu.
Bullur gegn mannréttindum
Mugabe og menn hans höfðu
hvað eftir annað sigað bullum
á andstæðinga sína með til-
heyrandi mannslátum, limlest-
ingum, nauðgunum og pynd-
ingum og falsað kosningatölur.
Mugabe sagði, væntanlega í ógáti,
á flokksþingi 2008 að stjórnar-
andstaðan hefði uppskorið 73%
atkvæða í þingkosningum það ár.
Nýja samsteypustjórnin skipaði
stjórnlaganefnd 2009 til að semja
nýja stjórnarskrá sem lögð skyldi
fyrir kjósendur. Verkið leiddu
fulltrúar flokkanna tveggja,
mannréttindalögfræðingurinn
Douglas Mwonzora úr flokki
Tsvangíraís, fágaður í allri fram-
göngu, og Paul Mangwana fyrir
hönd Mugabes, hreinræktuð bulla
sem virtist hvorki kunna né telja
sig þurfa að leyna eðli sínu og
samherja sinna. Þessu er öllu lýst
úr návígi í magnaðri heimildar-
mynd Camillu Nielsson, Mugabe
og demokraterne, sem danska
sjónvarpið sýndi nýlega.
Þegar Mugabe vígði stjórnlaga-
nefndina til starfa skein lítilsvirð-
ingin úr andliti hans. Hann sagði
þá m.a.: „Við stöndum við stýrið
og dirfumst ekki deila því starfi
með öðrum. […] Við erum full-
trúar fólksins í þinginu.“ Hann
gleymdi m.a.s. að lýsa starfið
hafið og þurfti að fara aftur í
stólinn til að hrækja þeim orðum
út úr sér. Fulltrúar hans í nefnd-
inni þvældust fyrir starfinu við
hvert fótmál, einkum þegar rætt
var um þörfina fyrir að takmarka
völd og þaulsetu forsetans. Mwon-
zora þurfti m.a.s. að dúsa án dóms
og laga í fangelsi í þrjár vikur
meðan á verkinu stóð. Hann gafst
ekki upp, heldur tókst honum
ásamt félögum sínum að ná sam-
komulagi innan nefndarinnar um
mikilvægar réttarbætur handa
almenningi gegn persónuafslætti
handa Mugabe á þann veg að for-
setinn, tæplega níræður mað-
urinn, yrði undanþeginn valda-
skerðingu í tíu ár. Félli forsetinn
frá innan tíu ára skyldi þingið til-
nefna nýjan forseta í stað Muga-
bes án aðkomu kjósenda. Með líku
lagi þurftu umbótasinnar að una
því að stjórnlagadómstóllinn yrði
fyrstu tíu árin skipaður sitjandi
dómurum í Hæstarétti Simbabve
sem er undir hæl forsetans þótt
fyrir hafi komið að rétturinn byði
forsetanum byrginn. Það gerðist
2004 eins og ég lýsti í grein minni
„Æfur við Hæstarétt“ hér á þess-
um stað 4. nóvember 2004.
Þjóðaratkvæðagreiðslan
Þegar stríðandi fylkingar í stjórn-
laganefndinni höfðu náð saman,
m.a. um réttarbætur handa
konum og stúlkum, stofnun sjálf-
stæðs ákæruvalds, stofnun sann-
leiks- og sáttanefndar og sér-
stakar ráðstafanir gegn spillingu,
og kynntu sameiginlega niður-
stöðu sína ásamt persónuafslætt-
inum handa forsetanum, steig
forsetinn í stólinn og sagði:
„Mwonzora! Og nýi vinur þinn
Mangwana! Hvað eruð þið að
vilja upp á dekk? Stundum er
eins og menn viti ekki hvaðan
valdið sprettur.“ Fyrirlitningin
skein úr hverjum andlitsdrætti.
Flokksmenn forsetans í salnum
hlógu stirðum, hræddum hlátri.
Oddvitar stjórnlaganefndarinn-
ar, bæði mannréttindalögfræð-
ingurinn og bullan, sátu stjarfir
undir ræðu forsetans. Þjóðar-
atkvæðagreiðslu um frum-
varpið var frestað í tvígang,
en Mugabe tókst þó ekki að
koma í veg fyrir hana. Hún var
haldin í marz 2013. Kjörsókn
var 59% og 94% kjósenda sam-
þykktu frumvarpið. Takið nú
eftir þessu: Tveimur mánuðum
síðar, í maí 2013, staðfesti þing-
ið í Harare, höfuðborg lands-
ins, niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar.
Eftirleikurinn
Þess sér þó varla stað í Simbabve,
ekki enn, að þjóðin hafi sett sér
nýja stjórnarskrá. Mugabe tókst
að hrekja Tsvangíraí og flokks-
menn hans úr ríkisstjórninni
2013. Mwonzora var handtekinn.
En stjórnarskráin stendur.
Tveimur mánuðum
síðar, í maí 2013,
staðfesti þingið í Harare,
höfuðborg landsins,
niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar.
Flokkur, forseti og stjórnarskrá
Í DAG
Þorvaldur
Gylfason
hagfræðiprófessor
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á
greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
9
0
0
0
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Pensillín fyrir
hjónabandið
Ég var að ræða við sálfræðinginn
minn um hve erfitt það væri oft að
ræða neikvæða hegðun fullorðinna
án þess að því væri tekið sem árás
eða a.m.k leiðinlegu tuði. Þá benti
hann mér á að þetta væri bara eins
með börnin og okkur, við þyrftum
að ávarpa tilfinningar í núinu. Og
þegar ég fór að hugsa um það þá
er þetta svo rétt. Svo nú líður mér
svolítið eins og ég sé Lykla- Hildur,
að ég standi í dyrum hjónaríkis þar
sem hamingjan er eilíf og dagur
og nótt renna saman í eitt. Sem er
kannski svolítið ýkt.
Að ávarpa tilfinningar í núinu
jafnast hins vegar á við sterkan
pensillínkúr, segjum við svæsinni
streptókokkasýkingu. Það kemur
kannski ekki í veg fyrir að streptó-
kokkarnir taki sig upp aftur en það
læknar alltént þá sem fyrir eru og
þannig eigum við líka að lifa, við
eigum að takast á við vandann sem
upp kemur hverju sinni í stað þess
að kvíða því ókomna.
http://www.pressan.is
Hildur Eir Bolladóttir
Reiðikast á lyklaborði
Hvað þýðir setningin: „Hetjur
hafsins komu líka í land, duttu í
það og lömdu konurnar sínar“? Er
hér talað um alla sjómenn, flesta
sjómenn, marga sjómenn, nokkra
sjómenn, einn sjómann? Orð eru
hættuleg, séu þau of losaraleg, eins
og reyndist vera í þessu tilviki. Hef
stundum notað losaraleg orð, sem
betur hefðu verið skilgreind nánar.
Reyni að forðast slíkt, með mis-
jöfnum árangri.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
AF NETINU
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
8
-F
6
D
C
1
7
5
8
-F
5
A
0
1
7
5
8
-F
4
6
4
1
7
5
8
-F
3
2
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K