Fréttablaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 32
FÓLK|TÍSKA 1 AÐ NOTA FARÐA SEM PASSAR EKKI VIÐ HÚÐLITINN Farðinn á ekki að gefa húðinni lit. Það er gert með sólarpúðri, kinnalit og bronsi. Farðinn á aðeins að draga úr misfellum og gefa húðinni sléttari áferð. Hann þarf því að tóna sem best við húðlitinn. Best er að prófa farðann á kjálkanum. Ekki ætti að prófa hann á handarbakinu því hendurnar eru oft mun veðraðri en andlitið. Enn betra er að fá prufu og prófa farðann í spegl- inum heima. Stundum þarf að kaupa tvo mismunandi tóna og blanda þeim saman með meikbursta. 2 AÐ BERA FARÐA Á ÞURRA OG FLAGNAÐA HÚÐ Til að komast hjá þessu verður að þrífa húðina vel kvölds og morgna og næra hana með rakakremi. 3 AÐ NOTA BLÝANT Á AUGABRÚNIR Útkoman verður oft gervileg. Frekar er mælt með því að velja augnskugga í lit sem tónar vel við hárrótina og bera hann á með mjóum pensli. Stundum getur þurft að bleyta fremsta hluta pensilsins örlítið. 4 AÐ PLOKKA OF MIKIÐ EÐA OF LÍTIÐ Vel snyrtar augabrúnir setja sannar- lega punktinn yfir i-ið. Heimsókn til snyrtifræðings í litun og plokkun er því oft peninganna virði. Með aldrinum geta augabrúnirnar farið að þynnast og þá vaxa þær líka síður aftur. Það er því sérstaklega varasamt að plokka of mikið. 5 AÐ NOTA ALLA AUGNSKUGGAPALLETTUNA Þó svo að augnskuggabox séu oft með fjórum eða fleiri litatónum þýðir það ekki að þú þurfir að nota þá alla í einu. Þrír tónar eru oftast yfirdrifið nóg við fínni tilefni. Einn á augnlokin, einn ljós- ari undir augabrúnirnar og einn dökkur til að undirstrika augnumgjörðina. Hversdags ætti einn tónn að duga. 6 AÐ NOTA OF MIKINN SVARTAN AUGNBLÝANT Staðreyndin er sú að svarti liturinn minnkar augun og þá sérstaklega ef hann er bara notaður undir augun. Frekar ætti að leggja áherslu á að teikna línu við efri augnhárin og þykkja hana út við endana. Með aldrinum ætti frekar að draga úr augnmálningu en hitt. Blautur svartur liner dregur til að mynda athygli að hrukkum og öðrum öldrunareinkennum í kringum augun. Frekar ætti að nota brúnan blýant og létta augnskugga og leggja áherslu á mjúkar línur. 7 AÐ SETJA MASKARA Á NEÐRI AUGNHÁRIN Það eru allar líkur á að hann smitist niður á baugasvæðið yfir daginn en fæstir vilja dekkja það svæði að óþörfu. 8 AÐ NOTA OF MIKIÐ GLIT OG GLANS Gljáandi efnum er bætt í mjög margar snyrtivörur. Sé vel að verki staðið geta þær gert húðina hressilega og ljóm- andi. Hins vegar verður að gæta þess að andlitið verði ekki eins og glitrandi diskókúla. ALGENG MISTÖK FÖRÐUN Vissir þú að svartur augnblýantur minnkar augun og maskari á neðri augnhárin undirstrikar baugasvæðið? Þá ætti ekki að nota blýant á augabrúnir. ÞRÍR LITIR ÆTTU AÐ DUGA Þótt augnskuggapallettan sé oft með fjórum litatónum eða fleiri þýðir það ekki að það þurfi að nota þá alla í einu. Yfirleitt er yfirdrifið nóg að nota þrjá. Einn á augnlokin, einn dekkri til að undirstrika augnumgjörðina og einn ljósari undir augabrúnirnar. EKKI OF MIKIÐ SVART Mikill svartur augn- blýantur minnkar í raun augun og þá sérstaklega ef hann er bara notaður undir augun. Frekar ætti að leggja áherslu á að teikna línu við efri augn- hárin og þykkja hana út við endana. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Str: 36-46 kr.13.900.- Gallabuxur Skipholti 29b • S. 551 0770 Útsala hafin! Frábær tilboð á Útsölu 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 9 -C 1 4 C 1 7 5 9 -C 0 1 0 1 7 5 9 -B E D 4 1 7 5 9 -B D 9 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.