Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 54
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
Tónlistarkonan Sóley efnir til tón-
leika í kvöld þar sem hún fagnar
útgáfu plötunnar Ask the Deep.
Sóley er nýkomin heim úr
vel heppnaðri tónleikaferð um
Evrópu sem hún segir hafa geng-
ið vel, verið mikla keyrslu, og
ágætlega vandræðalausa en að
lítið hafi verið sofið. „Það var
eitt svolítið fyndið. Þegar ég var
í Póllandi og var að labba af svið-
inu sé ég að einn gaur stendur
og veifar einhverju að mér.“ En
Sóley segir það talsvert algengt
að aðdáendur komi með gjafir á
tónleika, geisladiska eða jafnvel
heimagert föndur.
„Hann réttir upp risastóra blý-
antsteiknaða A2-mynd af mér sem
hann hafði teiknað sjálfur. Ég tók
hana með baksviðs og hafði ekki
hugmynd um hvað ég ætti að gera
við hana.“
Sóley segir að staðið hafi
til að gefa móður sinni mynd-
ina en blýantsteikningin náði
því miður ekki heim til Íslands.
„Hún gleymdist á hótelherbergi
í Berlín. Vonandi hefur einhver
sem fann hana hengt hana upp
þar,“ segir hún og hlær.
Á tónleikaferðinni var Sóley að
fylgja eftir sinni annarri breið-
skífu, Ask the Deep, sem kom út
þann 12. maí síðastliðinn og hefur
fengið góða dóma í erlendum miðl-
um. „Viðbrögðin við plötunni hafa
verið jákvæð, sem er gaman. Það
er alltaf svolítið erfitt að koma
með plötu númer tvö og hún er
aðeins öðruvísi en fyrsta platan,“
segir Sóley og bætir við: „Ég gerði
hana bara eins og ég vildi hafa
hana og ég held að það sé mikil-
vægt.“ Ask the Deep er dekkri og
þyngri plata heldur en hennar síð-
asta breiðskífa hennar, We Sink,
sem kom út árið 2011.
Tónleikarnir í kvöld eru fyrstu
útgáfutónleikar Sóleyjar hér-
lendis. „Ég hef aldrei hugsað út
í það að halda útgáfutónleika. Ég
hef gefið út tvær EP og ein breið-
skífu og langaði bara til þess að
prófa að halda útgáfutónleika.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 í Fríkirkjunni. Miðaverð er
2.500 krónur og hægt er að nálg-
ast miða á midi.is.
gydaloa@frettabladid.is
Gleymdi teikningunni
á hótelherbergi í Berlín
Sóley fagnar útgáfu sinnar annarrar breiðskífu, Ask the Deep, í Fríkirkjunni í kvöld.
ÁNÆGÐ Sóley er ánægð með viðbrögðin sem platan hefur fengið en hún ákvað að gera hana eins og hún vildi hafa hana.
MYND/INGIBJÖRGBIRGISDÓTTIR
➜ Hann réttir upp risastóra
blýantsteiknaða A2-mynd af
mér sem hann hafði teikn-
að sjálfur. Ég tók hana með
baksviðs og hafði ekki hug-
mynd um hvað ég ætti að
gera við hana.
RISTAÐ BRAUÐ
með Dualit Architect
FA
S
TU
S
_F
_2
6
.0
5
.1
5
Verið velkomin í verslun okkar - opið mán - fös 8.30 - 17.00
Veit á vandaða lausn
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
11. JÚNÍ 2015
Tónleikar
19.30 Stór hljómsveitarverk eftir-
tektarverðra tónskálda; baráttukvenna
og brautryðjenda verða í brennidepli
þegar aldarafmælis kosningaréttar
íslenskra kvenna verður minnst á sögu-
legum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands sem fara fram í Hörpu.
20.00 Hekla, portal 2xtacy og Arnljótur
spila á Húrra. Húsið opnar 20.00 og
tónleikar 21.00. Krystal Carma þeytir
skífum eftir tónleikana.
20.00 Sóley fagnar útkomu plötunnar
Ask the Deep með útgáfutónleikum í
Fríkirkjunni í Reykjavík. Húsið opnar
kl. 20.00 og hefjast tónleikarnir hálf-
tíma síðar. Miðaverð er 2.500 kr. og má
nálgast miða á midi.is.
21.00 Skemmtistaðurinn Gaukurinn
ætlar að bjóða öllum sem vilja að stíga
upp á svið, leika sér með hljóðfærin sín
og skapa tónlist saman! Ekki er þörf á
að skrá sig fyrir fram heldur mætir þú
einfaldlega á svæðið og hoppar upp á
svið þegar tækifæri gefst. Á staðnum
verður gítar, trommusett og að sjálf-
sögðu vocal mics. Annars er langbest
að koma með sín eigin hljóðfæri. Hefst
klukkan 21.
22.00 Hljómsveitin Flakk heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg
8, í kvöld. Aðgangur er ókeypis!
Listasmiðja
Í sumar verður boðið upp á listsmiðjur
fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í Hafnar-
borg. Í fyrra fylltist fljótt á námskeiðin
sem eru bæði skemmtileg og upp-
byggjandi. Farið verður í rannsóknar-
leiðangra og undirstöðuatriði mynd-
listar kynnt bæði í gegnum það að
rannsaka umhverfið, sýningarnar
í safninu og með skapandi vinnu.
Unnin verða skapandi verkefni í
fjölbreytta miðla, teiknað, málað
og mótað, með það að markmiði að
þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi
hugsun og persónulega tján-
ingu barnanna.
Sýningar
12.10 Dr. Margaret E. Will-
son mun leiða gesti um
sýninguna SJÓKONUR í
Sjóminjasafni Reykja-
víkur, en hún fjallar
um sögu íslenskra
kvenna sem sóttu sjó-
inn, í fortíð og nútíð.
Fræðslufundir
12.00 Fundur fólksins er lífleg þriggja
daga hátíð um samfélagsmál. Þar
kemur saman fólk úr ólíkum áttum til
að ræða hin ýmsu málefni sem snerta
okkur öll. Aðstandendur Fundar fólks-
ins eru Norræna húsið, Alþjóðamála-
stofnun Háskóla Íslands, Almannaheill,
Norræna félagið, samstarfsráðherra
Norðurlanda og Reykjavíkurborg.
Eygló Harðardóttir, samstarfsráðherra
Norðurlanda, Mikkel Harder, forstjóri
Norræna hússins, og tónlistarmað-
urinn KK munu ávarpa gesti. Kynnir er
Gunnar Sigurðarson, talsmaður Fundar
fólksins.
18.00 Málþinginu Gilt eða ógilt er
ætlað að varpa ljósi á viðurkenningu
á menntun innflytjenda sem ekki var
aflað á Íslandi. Reynslusögur segja að
erfitt er fyrir fólk af erlendum upp-
runa að fá menntun viðurkennda hér á
landi. Þetta á líka við um þá sem öðlast
háskólagráðu frá evrópskum háskólum,
þar sem evrópska viðurkenningarkerfið
fyrir námseiningar (ECTS) gildir. Mál-
þingið fer fram í Norræna húsinu.
Tónlist
12.00 Plata sveitarinnar Úlfur Úlfur fer
í allar helstu plötuverslanir. Platan ber
titilinn Tvær plánetur og var þrjú ár í
vinnslu. Úlfur Úlfur er ein vinsælasta
rappsveit landsins og koma meðlimir
hennar frá Sauðárkróki.
20.00 MARTEINN leikur á
Prikinu í kvöld. Kvöldið er
liður í ítarlegri sumardag-
skrá á Prikinu. Þar leika
gjarnan plötusnúðar kvöld
hvert og er af nægu af
taka. Staðurinn er opinn
frá morgni til kvölds.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.
is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
8
-0
9
D
C
1
7
5
8
-0
8
A
0
1
7
5
8
-0
7
6
4
1
7
5
8
-0
6
2
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K