Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 62

Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 62
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42SPORT HANDBOLTI Ísland má ekki tapa gegn Svartfjallalandi í leik liðanna í Laugardalshöllinni á sunnudag en það varð ljóst eftir úrslit gær- kvöldsins í undankeppni EM 2016. Ísland vann Ísrael ytra örugg- lega, 34-24, en leik Svartfellinga og Serba lauk með jafntefli, 23-23. Ísrael er stigalaust í riðlinum en hin þrjú eru að berjast um tvö efstu sæti riðilsins. Sem stendur eru Ísland og Svart- fjallaland efst og jöfn með sjö stig hvort. Serbía kemur svo næst með sex stig en reikna má með því að Serbía vinni Ísrael í lokaleik sínum um helgina og endi með átta stig. Sigurvegari leiksins í Laugar- dalshöll á laugardag tryggir sér um leið sigur í riðlinum. Tap liðið situr hins vegar eftir með sárt ennið. Serbar eru þó alls ekki hólpnir því jafntefli Íslands og Svart- fjallalands þýðir að bæði lið kom- ast áfram og Serbar sitja eftir með sárt ennið. „Þetta er einfalt. Við ætlum okkur að vinna þennan leik og ná efsta sæti riðilsins,“ sagði Aron Kristjánsson en þess ber þó að geta að jafntefli mun einnig tryggja strákunum okkar efsta sætið þar sem Ísland er með besta markahlutfallið af þessum þremur liðum eftir sextán marka stórsigur Íslands á Serbum í byrjun mars. „Við förum inn í þennan leik með eitt skýrt markmið og það er að vinna leikinn,“ sagði landsliðs- þjálfarinn um leikinn mikilvæga á sunnudag. Einbeiting og þolinmæði Leikurinn í gær var skraut legur og var Aron fyrst og fremst ánægður með að sleppa aftur heim með tvö stig í farteskinu og alla menn heila. „Verkefni dagsins var einbeit- ing og þolinmæði. Við þurftum að leggja okkur fram og að vinna með tíu marka mun á útivelli er góð niðurstaða. Við stóðumst prófið,“ segir Aron. „Okkur gekk vel í sókninni lengst af í leiknum. Það var óðagot á okkur inn á milli og við klikkuð- um á nokkrum dauðafærum. En í hvert skipti sem við gáfum okkur tíma og vorum þolinmóðir þá gekk þetta betur,“ segir þjálfarinn. „Hvað varnarleikinn varðar þá var byrjunin nokkuð erfið. Við vorum lengi að koma okkur í gang þó svo að við værum að vinna marga bolta. En það vantaði upp á kraftinn. Þegar það kom náðum við góðri forystu í leiknum og náðum að dreifa álaginu á milli manna. Það var gott að fá framlag úr mörgum mismunandi áttum og veit á gott fyrir leikinn á sunnudag.“ Nýttu tækifærið vel Hornamennirnir Stefán Rafn Sigur mannsson og Guðmundur Árni Ólafsson voru hvorugur í byrjunarliði Íslands í gær en nýttu tækifærið sem þeir fengu vel. Þeir voru tveir markahæstu menn Íslands – Stefán Rafn með átta mörk og Guðmundur Árni sex – og voru drjúgir þegar Ísland náði loks góðum tökum á leiknum eftir erfiðar fyrstu 20 mínútur. Ásgeir Örn Hallgrímsson nýtti færin sín vel og Björgvin Páll Gústavsson átti góðan dag í mark- inu og naut góðs af því að vera, á köflum að minnsta kosti, með góða vörn fyrir framan sig. Björgvin Páll varði einnig þrjú vítaskot í leiknum og Aron Rafn Eðvarðs- son þar að auki eitt. Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Ísland í gær en hann spil- aði engu að síður vel fyrir félaga sína þær mínútur sem hann var á vellinum og sem fyrr var greini- legt hversu mikilvægur hann er sóknar leik íslenska landsliðsins. eirikur@frettabladid.is Strákarnir stóðust prófi ð Ísland vann auðveldan tíu marka sigur á Ísrael ytra í gær, 34-24. Landsliðsþjálfarinn fagnar því fyrst og fremst að hafa klárað verkefnið með sóma en fram undan er úrslitaleikur gegn Svartfj allalandi á sunnudag. SIGUR ER SIGUR Strákarnir gerðu sitt í Ísrael í gær og komu sér í góða stöðu fyrir helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK FÓTBOLTI Íslenska U-21 árs lands- liðið hefur leik í undankeppni EM 2017 í kvöld þegar Makedónía kemur í heimsókn á Vodafone-völlinn. Auk Íslands og Makedóníu eru Frakkland, Úkraína, Skotland og Norður-Írland í riðlinum. Ísland var nálægt því að komast í lokakeppnina 2015 en miklar breytingar hafa orðið á liðinu frá síðustu undan- keppni. Sjö nýliðar eru í hópnum og aðeins tveir leikmenn eiga fleiri en fjóra landsleiki að baki; Rúnar Alex Rúnarsson og Orri Sigurður Ómarsson. „Það á eftir að koma í ljós hvar við stöndum en þetta er mjög spennandi verkefni og ég hef fulla trú á því að við getum gert góða hluti,“ sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs liðsins, í samtali við íþróttadeild 365. Sex leikmenn í 20 manna hópi leika í atvinnumannadeildum í Evr- ópu. Eyjólfur vonar að góð frammi- staða með landsliðinu skili fleiri leikmönnum í atvinnumennsku eins og raunin var í síðustu undankeppni. „Ég vona að við náum góðum árangri og vonandi komast þá fleiri leikmenn út,“ sagði landsliðsþjálfarinn. - iþs Skilar vonandi fl eirum erlendis BREYTINGAR Rúnar Alex er enn í íslenska hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir verður á meðal þeirra tíu sem etja kappi í spjótkastskeppni á Demantamóti í frjálsum íþróttum sem fer fram á hinum sögufræga Bislett-leikvangi í Ósló í kvöld. Ásdís verður þriðja í kaströðinni í keppninni sem hefst klukkan 18.20 í kvöld. Bein útsending frá mótinu hefst klukkan 18.00 á Stöð 2 Sport. Heimsmethafinn og Ólympíumeistarinn Barbora Spotakova verður á meðal keppanda sem og Christina Obergföll, ríkjandi heimsmeistari og stigahæsti keppandinn á Demantamóta- röðinni til þessa. Sunette Viljoen frá Suður- Afríku er einnig líkleg til afreka í kvöld en hún á lengsta kast ársins til þessa. Þessar þrjár komust allar á verðlauna- pall á Ólympíuleikunum í Lundúnum fyrir þremur árum. Ásdís er í nítjánda sæti heimslistans með 62,14 m en þeim árangri náði hún á móti í Lettlandi á dögunum. - esá Ásdís mætir þeim bestu í Ósló ÚRSLIT UNDANKEPPNI EM 2016 4. RIÐILL ÍSRAEL - ÍSLAND 24-34 (12-17) Mörk Ísraels (skot): Amit Yehuda Gal 5/1 (7/2), Alexander Sychenko 5/1 (9/2), Niv Levy 5 (13/1), Vladislav Kofman 4 (5/1), Tal Gera 3/1 (4/1), Ido Turel 1 (1), Dan Nathan 1 (3), Daniel Andres Fried- mann (1), Daniel Shkalim (1), Omer Davda (1), Oren Meirovich (1), Amit Yehiel Stelman (2/1), Varin skot: Oren Meirovich 16/1 (46/2, 35%), Dan Tepper 2/1 (4/1, 50%), Eldar Shikloshi 1/1 (3/3, 33%), Mörk Íslands (skot): Stefán Rafn Sigurmannsson 8 (12), Guðmundur Árni Ólafsson 6 (8), Guðjón Valur Sigurðsson 5/2 (10/4), Ásgeir Örn Hallgríms- son 4 (4), Arnór Þór Gunnarsson 3/1 (5/2), Vignir Svavarsson 2 (3), Tandri Már Konráðsson 2 (4), Rúnar Kárason 1 (1), Snorri Steinn Guðjónsson 1 (2), Kári Kristján Kristjánsson 1 (2), Róbert Gunn- arsson 1 (2), Björgvin Páll Gústavsson (1), Aron Pálmarsson (3), Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 18/3 (37/5, 49%), Aron Rafn Eðvarðsson 3/1 (8/2, 38%). SVARTFJALLALAND - SERBÍA 23-23 STAÐAN Ísland 5 3 1 1 157-115 7 Svartfjallaland 5 3 1 1 124-118 7 Serbía 5 2 2 1 121-129 6 Ísrael 5 0 0 5 111-151 0 NÆSTU LEIKIR Ísland - Svartfjallaland sun. kl. 17.00 Serbía - Ísrael sun. kl. 16.30 2. RIÐILL LITHÁEN - DANMÖRK 25-31 Guðmundur Guðmundsson er landsliðsþjálfari Danmerkur sem var þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum og sæti í lokakeppni EM. 7. RIÐILL FINNLAND - ÞÝSKALAND 34-20 Dagur Sigurðsson er þjálfari Þýskalands sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM með sigrinum. AUSTURRÍKI - SPÁNN 24-30 Patrekur Jóhannesson er þjálfari Austurríkis sem er úr leik í baráttunni um sæti á EM. SPÁNN Malaga vann Barcelona Jón Arnór Stefánsson var í byrjunarliði Unicaja Malaga sem minnkaði muninn í undanúrslitarimmu sinni gegn stórliði Barcelona í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar. Staðan er nú 2-1 fyrir Börsunga en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin. Framlengja þurfti leikinn sem Malaga vann, 89-84. Jón Arnór skoraði sjö stig og tók eitt frákast á tæpum fimmtán mínútum. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 A -4 6 9 C 1 7 5 A -4 5 6 0 1 7 5 A -4 4 2 4 1 7 5 A -4 2 E 8 2 8 0 X 4 0 0 9 B F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.