Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 70
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
BESTI BITINN
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Umræðan síðustu daga kveikir í
okkur, og sýnir okkur enn frekar
mikilvægi þess að segja þessa
sögu, okkur finnst samfélagslega
mikilvægt að gera þetta núna,“
segir Unnur Ösp Stefánsdóttir
leikkona sem ásamt leikkonunni
Nínu Dögg Filippusdóttur stendur
í stórræðum í Kvennafangelsinu
í Kópavogi þar sem tökur á sjón-
varpsseríunni Fangar munu fara
fram.
„Þetta verður sex þátta leikin
drama- og spennusería sem við
byggjum á sjö ára rannsóknar-
vinnu, og hefur hún mikið til
farið fram innan veggja fangels-
isins meðan það var virkt,“ segir
Unnur og bætir við að þetta sé í
raun mjög innblásinn skáldskapur.
„Við tókum okkur góðar pásur
inn á milli í þessu sjö ára ferli,
þetta fékk að gerjast á sínum hraða,
en rannsóknarvinnan tók gríðar-
lega á. Sögurnar sem konurnar
höfðu að segja eru mjög drama-
tískar og erfiðar. Þetta er allt mjög
eldfimt og viðkvæmt,“ útskýrir
Unnur og segir að þær Nína, auk
hópsins, brenni í skinninu að koma
þessu fram í dagsljósið.
Hópurinn samanstendur af þeim
Ragnari Bragasyni, sem leikstýrði
Vaktarseríunum vinsælu og mun
hann leikstýra þáttunum, og Mar-
gréti Örnólfsdóttur sem skrifar
handritið ásamt Ragnari, Unni Ösp
og Nínu Dögg. Það eru svo Árni
Filippusson og Davíð Óskarsson
hjá Mystery sem framleiða auk
Vesturports.
„Í ljósi umræðunnar sem fylgir
í kjölfar byltingarinnar #þöggun
innan Beauty tips er gríðar-
lega samfélagslega mikilvægt
að varpa ljósi á sögur kvenfang-
anna, þar sem þessi þöggun spilar
stóra rullu í stóra samhenginu, en
það var algjört sjokk fyrir okkur
að átta okkur á hlutföllum þeirra
sem hafa verið beittar kynferðis-
ofbeldi.“
Tökur eiga að hefjast eftir ára-
mót og er unnið í samstarfi við
RÚV, en þættirnir verða sýndir
þar.
Stórskotalið leikara mun svo
prýða þættina en þar má nefna
Kristbjörgu Kjeld, Halldóru Geir-
harðsdóttur, Þorbjörgu Dýrfjörð,
Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Sigrúnu
Eddu Björnsdóttur, Margréti
Helgu Jóhannsdóttur, Arndísi
Hrönn Egilsdóttur, Kristínu Þóru
Haraldsdóttur auk Nínu Daggar,
Unnar Aspar og ótal fleiri leikara.
Segir Unnur yfirvöld og Fang-
elsismálastofnun hafa verið afar
hjálplega og verið jákvæða gagn-
vart því að leggja þáttunum lið.
„Við eyddum þriðjudeginum í að
koma saman í nýtæmdu fangelsinu
þar sem Einar Andrésson, fanga-
vörður Kvennafangelsisins til
tuttugu ára, og Haukur Einarsson
sálfræðingur voru okkur innan
handar. Þetta var mögnuð stund og
gefur tóninn fyrir það sem koma
skal. Raddir þessara kvenna þurfa
að heyrast.“
gudrun@frettabladid.is
Raddir þessara kvenna
þurfa að heyrast núna
Unnur Ösp og Nína Dögg skrifuðu handrit að dramatískum spennuþáttum sem
innblásnir eru af sjö ára rannsóknarvinnu þeirra í Kvennafangelsinu í Kópavogi.
Í ljósi umræðunnar
sem fylgir í kjölfar
byltingarinnar #þöggun
innan Beauty tips er
gríðarlega samfélagslega
mikilvægt að varpa ljósi
á sögur kvenfanganna.
Unnur Ösp Stefánsdóttir,
leikkona.
Stuttmynd Jörundar Ragnars sonar,
Hjónabandssæla, hlaut verðlaun
fyrir besta handritið á hinni virtu
Tel Aviv International Student Film
Festival á sunnudag.
Skammt er stórra högga á milli,
því í byrjun mánaðarins var myndin
valin sú besta í flokki erlendra stutt-
mynda á New York Inter national
Film Festival, og hafði áður hlot-
ið verðlaun á kvikmyndahátíðum í
Prag og Montreal.
„Ég átti ekki von á neinu þegar
ég var að gera þessa mynd, og hún
var allt eins líkleg til að enda ofan í
skúffu hjá mér,“ segir Jörundur en
myndin er skólaverkefni hans við
Columbia-háskóla í Bandaríkjunum.
Myndin hefur sumsé sannarlega
fallið vel í kramið og er Jörundur nú
önnum kafinn við að fylgja myndinni
vítt og breitt um heiminn. „Mynd-
in var valin til að vera með í pró-
gramminu Les Nuits en Or, á vegum
Frönsku kvikmyndaakademíunnar,
og er þýdd yfir á sex tungumál. Ég er
á túr núna ásamt þrjátíu og tveimur
öðrum akademíuverðlaunaleikstjór-
um, svo sem BAFTA- og Óskars-
verðlaunahöfum, þar sem við sýnum
myndirnar,“ útskýrir Jörundur og
viðurkennir að nú hlaðist verulega
inn í reynslubankann.
Mun Jörundur útskrifast um ára-
mótin og segir stefnuna tekna bein-
ustu leið heim á Klakann með fjöl-
skylduna. „New York er ekki sérlega
aumingjagóð, mikið hark hérna.
Auk þess sakna ég plássins heima á
Íslandi,“ segir hann að lokum. - ga
Hjónabandssæla heillar hvar sem hún kemur
Jörundur Ragnarsson hlaut verðlaun fyrir besta handritið á Tel Aviv International Student Film Festival.
FARSÆLL Stuttmyndin var sýnd hér á
landi á RIFF, Stockfish-hátíðinni og á
Patreksfirði, þar sem hún er tekin upp.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985
Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
NÚ FÁANL
EGUR ME
Ð
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
*
Snoop Dogg á Prikinu er mesta
„bang for the buck“ sem ég veit um!
Helgi Sæmundur Guðmundsson, rappari og
meðlimur í sveitinni Úlfur Úlfur sem gefur út
plötuna Tvær plánetur í dag.
REYNSLUBOLTAR Unnur Ösp Stefánsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir og Nína Dögg
Filippusdóttir.
KVENFANGAR Hér má sjá konurnar sem leika í þáttunum, sem hafa verið lengi í bígerð.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
8
-1
D
9
C
1
7
5
8
-1
C
6
0
1
7
5
8
-1
B
2
4
1
7
5
8
-1
9
E
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K