Fréttablaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 32
í kringum sig. „Það er sammann
legur grunntónn sem einkennir
verkið, svipaður og hjá Shake
speare. Klassíkin hefur alltaf þetta
stóra, hjartans mannlega mál sem
hefur fylgt okkur frá örófi alda. Þess
vegna getum við enn leitað í gömlu,
grísku leikritin, þau eiga alltaf við –
horfum á Sýrlandsstríðið, harmleik
sem á sér stað í dag.
Á sama tíma og ég var að leika í
leikritinu Krítarhringurinn í Kák
asus 1999 þar sem aðalpersónan
finnur lítið barn sem hafði verið
skilið eftir, byrjaði einmitt stríð
í þeim heimshluta. Ég man að ég
opnaði dagblað og sá mynd af
konu þar með barn í fanginu og
var í fatnaði sem næstum rímaði
við sýninguna.“
Þekkir harminn
Margrét á flottan feril að baki, bæði
á sviði og hvíta tjaldinu og er ekk
ert óvön því að takast á við stór
hlutverk og miklar tilfinningar. Á
síðasta ári hlaut hún Grímuna fyrir
leik sinn í Eldrauninni eftir Arthur
Miller í Þjóðleikhúsinu og á sama
sviði túlkaði hún Lafði Macbeth
með tilþrifum veturinn áður. Hún
segir Mörtu eina af hinum stóru
kvenrullum leikbókmenntanna
sem gaman sé að kljást við. „Mér
finnst ég komin á svo góðan aldur
því þar er allt kraumandi í djúsí
kvenhlutverkum með miklum
texta og alvöru tilfinningum,“ segir
hún en hvernig grefur hún upp þær
sterku kenndir sem hún þarf að
koma frá sér í Virginíu Woolf?
„Marta er að díla við þungbæra
hluti og auðvitað kannast ég við
ýmislegt í þeim. Barnleysið rímar
við vandamál sem við hjónin
stríddum við og það var stór
harmur að bera en mér finnst alltaf
varhugavert að líta á list sem sjálfs
hjálpartæki. Enda á leikur ekkert
með manns eigið líf að gera að
neinu leyti. Ég hef alltaf haft góðan
aðgang að þeim tilfinningabanka
sem ég hef komið mér upp þó að ég
hafi ekki lent í sömu hörmungum
og persónan á sviðinu. Ég á auðvelt
með að setja mig í spor fólks og get
grátið dögum saman yfir lífi þess.
Það er samkenndin sem skiptir
mestu máli, hún er einmitt það
sem listin er alltaf að vekja okkur
til umhugsunar um því leikhúsverk
fjalla oft um það þegar persónurnar
opna dyr inn í kvikuna.“
Himnaríki á jörð
Þau Margrét og Egill Heiðar giftu sig
árið 2001. Þar sem Egill Heiðar starf
ar mikið erlendis, meðal annars í
Þýskalandi, ákváðu þau fyrir tveim
ur árum að flytja til Berlínar svo fjöl
skyldan gæti verið meira saman.
„Við erum verndarenglar tveggja
barna og mér fannst erfitt að þurfa
að vera frá þeim á kvöldin þegar ég
var að leika. Vinnutími leikara er
þannig að stundum erum við að æfa
allan daginn og svo að sýna öll kvöld
frá miðvikudegi fram á sunnudag. Þá
missir maður af því allra heilagasta,
að fá að gefa að borða og baða og
lesa og svæfa.
Hverfið sem við búum í í Berlín
er eiginlega himnaríki á jörð fyrir
fjölskyldufólk, risastórir leikvellir á
hverju horni með fallega smíðuðum
og ævintýralegum leiktækjum. Þjóð
verjar senda ekki börnin sín ein á
leikvöllinn eins og við Íslendingar
gerum heldur eru alltaf með þeim.
Þeir leyfa sér líka að hafa þar flókn
ari tæki en tíðkast hér, því börn eru
þar á ábyrgð foreldranna.“
Margrét segir hafa komið sér vel
að Egill Heiðar hafi verið þýsku
mælandi en öllum hafi þeim gengið
vel að aðlagast. „Ég bíð alltaf eftir
bakslagi en það hefur ekki komið
enn. Mamma sagði oft: „Vona það
besta en búa sig undir það versta.“
Það er ábyggilega gamalt orðatiltæki
úr móðuharðindunum! Hún var svo
öldruð í sinni. En ég bjóst við miklu
meiri erfiðleikum. Kannski erum
við fullorðna fólkið bara búin að
missa þá eiginleika að mæta nýjum
aðstæðum fordómalaus og glöð eins
og börn.“
Söng fyrir afa á sjónum
Sjálf kveðst Margrét hafa varið mikl
um tíma hjá afa sínum og ömmu,
Þórði og Ólafíu, þegar hún var lítil.
Þau bjuggu við Starhagann. „Þá voru
braggar og fiskvinnsla þar sem Star
haginn mætir Ægisíðunni. Þar var
ég að þvælast í kringum fólkið sem
var vinna, Ebbi sem sá um húsin tók
í nefið og sýndi manni köngulær
í krukku, það var magnað. Þarna
voru hænur og kartöflugarðar og við
krakkarnir gengum um með rauð
maga í hjólbörum og seldum í húsin.
Svo voru grásleppuhrognin unnin
hjá afa og við keyrðum þau í gamla
Moskvitsnum til Hafnarfjarðar.
Afi átti líka lítinn bát og ég fór með
honum að vitja um netin úti hjá
Gróttu og söng fyrir hann á sjónum.
Þetta man ég, samt var ég bara fimm
eða sex ára þegar hann dó.“
Spurð hvenær hún hafi ákveð
ið að verða leikkona svarar Mar
grét: „Það gerðist ekkert af sjálfu
sér. En ég var áhugsöm að kynnast
sem flestum listum og móðir mín
hvatti mig endalaust á þeirri braut.
Ég lærði á fiðlu í tíu ár og tók þátt í
kórstarfi í MH í fimm ár. Samt var
ég ekkert séní í tónlist en að syngja
í kór var bara það besta sem hafði
komið fyrir mig. Ég tók líka leik
listartíma og myndlistartíma í MH.
Dansi og hreyfingu var haldið að
mér, ég var fimm ára komin í þjóð
dansa og síðan fór ég í ballett og fim
leika. Var sem sagt rosalega virk, það
er að segja, ég átti móður sem var
rosalega virk og kom mér í þetta allt
saman. Hún hét Sigríður Erla Sigur
björnsdóttir og var alger perla. Hún
dó úr krabbameini 2002, fór alltof
snemma og var mér mikill missir.“
En Margrét á líka góðar æsku
minningar norðan af Langanesi,
þar kveðst hún hafa verið öll sumur
í algerri dásemd. „Pabbi minn, Vil
hjálmur Auðunn Þórðarson, keypti
jörð þar í félagi við aðra. Hún heitir
Eiði. Þarna var bær við bæ út með
ströndinni en þeir voru allir komnir
í eyði þegar ég var þar. Þó var þetta
talin svo mikil matarkista að ef
maður legðist á magann við vatns
bakka þá synti silungurinn upp í
mann og þegar maður velti sér á
bakið verpti fuglinn upp í mann!“
Óhress með stefnu Íslands
En úr eyðibyggð Langaness yfir í
stórborgina Berlín sem Margrét
lýsir líka af mikilli aðdáun. „Berlín
er afskaplega græn borg, þar er hægt
að hjóla um allt, meðal annars í
risastóra garða með klifursvæðum,
skógi og alls konar skemmtileg
heitum. Ég hef aldrei verið ginn
keypt fyrir að flytja til útlanda en
nú fannst mér vera kominn tími á að
prófa það og það reyndist vel. Egill
Heiðar er prófessor við Ernst Busch
háskólann í Berlín svo hann kemur
heim á kvöldin og við borðum
saman kvöldmat. Stundum verður
hlé á milli kúrsa og því gat hann
komið heim núna í tvo mánuði að
sinna þessu verkefni. Ég held hann
hafi kannski ekki alveg verið búinn
að sjá það fyrir að ég yrði eftir heima
til að sýna. En ég vann reyndar í
nokkra mánuði í fyrra líka í lista
safninu MoMA í New York, var að
lesa þar inn á hljóðskúlptúr.
Vinnan okkar er tarnavinna, ég
líki henni stundum við sjómennsku.
Það er bara unnið dag og nótt til að
klára verkið. “
Einhvern veginn finnst mér eins
og Margrét sé ekki á leiðinni heim til
Íslands í bráð til búsetu. Hún viður
kennir það. „Mér finnst rosalega góð
hvíld frá íslensku samfélagi að vera
þarna úti. Þýska heilbrigðiskerfið er
til dæmis mjög gott og þar gengur
það sama yfir alla. Íslendingar
þurfa að fara að hugsa sinn gang,
bæði í sambandi við náttúruvernd
og heilbrigðiskerfið. Mér líkar ekki
hvert við erum að stefna. Ég hef ekki
áhuga á að taka þátt í samfélagi sem
er búið að taka svona stóran skell
eins og hrunið var og ætlar ekki að
læra af honum. Það er svo ótrúlega
sorglegt að nýta ekki það tækifæri.
Svo er afar dýrmætt fyrir fjöl
skylduna að eiga þennan tíma
saman úti í Berlín og ná að sinna
hvert öðru vel. Þannig verkefni fær
maður ekki á hverjum degi.“
9.990
ÁTTABLAÐARÓSIN
Áður 12.980
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
HÖFUM OPNAÐ
Í KRINGLUNNI
Jólatilboð
Rúmföt
Kvikmyndir sem
Margrét hefur leikið í
2001 Í faðmi hafsins og
Mávahlátur
2002 Fálkar og Reykjavík
Guesthouse
2004 Love is in the Air
2006 Blóðbönd
2007 Misty Mountain
2007 Duggholufólkið
2008 Brúðguminn
2010 Kóngavegur 7
2010 Mamma Gógó
Snjókast er alltaf hressandi og nóg er af efniviði í það á Íslandi núna. Fréttablaðið/VilHelm
Það er mikil grimmd í
verkinu og sendingar
milli hjónanna eru
eitraðar, ást Þeirra
hefur með tímanum
snúist upp í biturð Því
vonbrigði lífsins hafa
leikið Þau grátt.
vinnutími leikara er
Þannig að stundum
erum við að æfa allan
daginn og svo að sýna
öll kvöld frá miðviku-
degi fram á sunnudag.
Þá missir maður af Því
allra heilagasta, að
fá að gefa að borða og
baða og lesa og svæfa.
↣
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r32 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
7
-F
9
5
4
1
7
A
7
-F
8
1
8
1
7
A
7
-F
6
D
C
1
7
A
7
-F
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K