Fréttablaðið - 05.12.2015, Side 52

Fréttablaðið - 05.12.2015, Side 52
FÓLK| JÓL Tinna Pétursdóttir nuddari ólst upp við að halda dag heilags Nikulásar hátíðlegan. Þá kemur jólasveinninn St. Nicolas til byggða og gefur börnunum pakka. Þau sem eru stillt fá líka brauðkarla eða Boxemännercher og rjúkandi súkku- laði. „Það var alltaf ótrúlega spennandi að vakna þennan morgun og sjá skrifborðið í herberginu svigna undan pökkum en yfirleitt gefa foreldrar, systkini, ömmur og afar pakka þennan dag. Börn í Lúxemborg fá svo yfirleitt færri pakka á aðfangadag en þar sem foreldrar mínir eru íslenskir héldum við líka íslensk jól með tilheyrandi pakkaflóði,“ útskýrir Tinna. Buxnakarlarnir fara að sögn Tinnu að sjást í bak- aríum í Lúxemborg nokkrum vikum fyrir dag heilags Nikulásar. „Þeir eru ekki sætir og líkjast í raun brauði en það er voða gott að dýfa þeim í súkkulaði.“ Tinna, sem er búsett á Akranesi, hefur búið í Lúxemborg í samtals tuttugu ár. „Þó að mér líði vel á Íslandi er Lúxemborg mitt annað heimili og ég reyni að halda í kærar hefðir. Ég held reyndar ekki formlega upp á dag heilags Nikulásar hér heima, enda myndi það rugla börnin mín í ríminu, en hef stundum bakað brauðkarlana.“ Meðal þess sem Tinna hefur saknað frá Lúxem- borg er Bofferding-bjórinn en hann er sá útbreidd- asti þar í landi. „Fyrir þremur árum ákváðum við eiginmaður minn, Jökull Guðjónsson, að kanna hvort við gætum flutt hann inn en upphaflega hug- myndin var nú aðallega sú að við sjálf gætum nálg- ast hann í Ríkinu,“ segir hún og hlær. „Við fengum leyfið í haust og hafa viðtökurnar verið framar öllum vonum enda er þetta mildur og góður bjór sem passar með öllu.“ Tinna lætur ekki þar við sitja heldur flytur líka inn teppi frá Nuvola baby, nuvola- baby.com, sem er með aðsetur í Lúxemborg og framleiðir gæðavörur fyrir börn. Tinna deilir hér uppskriftinni að buxnakörlunum en þá er tilvalið að baka á morgun, 6. desember. Boxemännercher 600 g hveiti 60 g mjúkt smjör 60 g sykur 8 g salt 1 egg 1 pakki ger 330 ml volg mjólk Velgið mjólkina. Bætið gerinu við. Blandið hveiti, salti, sykri, smjöri og eggi í saman í skál. Bætið gerblöndunni við. Hnoðið saman og látið standa í klukkustund. Hægt er að blanda rúsínum eða súkkulaðibitum út í deigið ef vill. Búið til litla karla úr deiginu. Notið rúsínur eða súkkulaði í augu og hnappa. Penslið með eggi. Bakið við 180 gráður í um það bil 15 mínútur. NÆSTUM JAFN SPENNANDI OG JÓLIN HEFÐIR FRÁ LÚXEMBORG Tinna Pétursdóttir er fædd og uppalin í Lúxemborg en þar er dagur heilags Nikulásar haldinn hátíðlegur 6. desember. Þá fá börnin pakka frá jólasveininum og ríkir ekki síður eftirvænting eftir þeim degi en jól- unum sjálfum. Þá eru líka bakaðir sérstakir brauðkarlar eða Boxemännercher. HEILAGUR NIKULÁS Tinna ólst upp við að halda dag heilags Nikulásar hátíðlegan en þann dag vakna börn í Lúxemborg upp við gjafir. SKEMMTILEGIR BRAUÐKARLAR Karlarnir eru úr brauðdeigi og bragðast best nýbakaðir með heitu súkkulaði. MYND/ANTON BRINK BJÓR OG TEPPI Tinna ræktar meðal annars tengslin við Lúxemborg með því að flytja inn lúxemborgskan bjór og teppi. Gleðilegt uppeldi Margrét Pála Ólafsdóttir Leynigarður Johanna Basford Fiskarnir hafa enga fætur Jón Kalman Stefánsson Sorcerer’s Screed Skuggi 2. 3. 4. Frelsi Linda Vilhjálmsdóttir Eitthvað á stærð við alheiminn Jón Kalman Stefánsson Nigella á ítölskum nótum Nigella Lawson Stríðsárin 1938-1945 Páll Baldvin Baldvinsson Stóri skjálfti Auður Jónsdóttir 6. 8. 9. 10. 1. METSÖLULISTI Bókabúðar Máls og menningar 26. nóv - 3. des 2015 5. 7. Sogið Yrsa Sigurðardóttir 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 A 8 -2 A B 4 1 7 A 8 -2 9 7 8 1 7 A 8 -2 8 3 C 1 7 A 8 -2 7 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.