Fréttablaðið - 05.12.2015, Síða 52
FÓLK| JÓL
Tinna Pétursdóttir nuddari ólst upp við að halda dag heilags Nikulásar hátíðlegan. Þá kemur jólasveinninn St. Nicolas til byggða og
gefur börnunum pakka. Þau sem eru stillt fá líka
brauðkarla eða Boxemännercher og rjúkandi súkku-
laði.
„Það var alltaf ótrúlega spennandi að vakna
þennan morgun og sjá skrifborðið í herberginu
svigna undan pökkum en yfirleitt gefa foreldrar,
systkini, ömmur og afar pakka þennan dag. Börn í
Lúxemborg fá svo yfirleitt færri pakka á aðfangadag
en þar sem foreldrar mínir eru íslenskir héldum við
líka íslensk jól með tilheyrandi pakkaflóði,“ útskýrir
Tinna.
Buxnakarlarnir fara að sögn Tinnu að sjást í bak-
aríum í Lúxemborg nokkrum vikum fyrir dag heilags
Nikulásar. „Þeir eru ekki sætir og líkjast í raun brauði
en það er voða gott að dýfa þeim í súkkulaði.“
Tinna, sem er búsett á Akranesi, hefur búið í
Lúxemborg í samtals tuttugu ár. „Þó að mér líði vel
á Íslandi er Lúxemborg mitt annað heimili og ég
reyni að halda í kærar hefðir. Ég held reyndar ekki
formlega upp á dag heilags Nikulásar hér heima,
enda myndi það rugla börnin mín í ríminu, en hef
stundum bakað brauðkarlana.“
Meðal þess sem Tinna hefur saknað frá Lúxem-
borg er Bofferding-bjórinn en hann er sá útbreidd-
asti þar í landi. „Fyrir þremur árum ákváðum við
eiginmaður minn, Jökull Guðjónsson, að kanna
hvort við gætum flutt hann inn en upphaflega hug-
myndin var nú aðallega sú að við sjálf gætum nálg-
ast hann í Ríkinu,“ segir hún og hlær. „Við fengum
leyfið í haust og hafa viðtökurnar verið framar
öllum vonum enda er þetta mildur og góður bjór
sem passar með öllu.“ Tinna lætur ekki þar við sitja
heldur flytur líka inn teppi frá Nuvola baby, nuvola-
baby.com, sem er með aðsetur í Lúxemborg og
framleiðir gæðavörur fyrir börn.
Tinna deilir hér uppskriftinni að buxnakörlunum
en þá er tilvalið að baka á morgun, 6. desember.
Boxemännercher
600 g hveiti
60 g mjúkt smjör
60 g sykur
8 g salt
1 egg
1 pakki ger
330 ml volg mjólk
Velgið mjólkina. Bætið gerinu við. Blandið hveiti,
salti, sykri, smjöri og eggi í saman í skál. Bætið
gerblöndunni við. Hnoðið saman og látið standa
í klukkustund. Hægt er að blanda rúsínum eða
súkkulaðibitum út í deigið ef vill. Búið til litla
karla úr deiginu. Notið rúsínur eða súkkulaði í
augu og hnappa. Penslið með eggi. Bakið við 180
gráður í um það bil 15 mínútur.
NÆSTUM JAFN
SPENNANDI OG JÓLIN
HEFÐIR FRÁ LÚXEMBORG Tinna Pétursdóttir er fædd og uppalin í Lúxemborg
en þar er dagur heilags Nikulásar haldinn hátíðlegur 6. desember. Þá fá börnin
pakka frá jólasveininum og ríkir ekki síður eftirvænting eftir þeim degi en jól-
unum sjálfum. Þá eru líka bakaðir sérstakir brauðkarlar eða Boxemännercher.
HEILAGUR NIKULÁS Tinna ólst upp við að halda dag heilags
Nikulásar hátíðlegan en þann dag vakna börn í Lúxemborg upp
við gjafir.
SKEMMTILEGIR BRAUÐKARLAR Karlarnir eru úr brauðdeigi og bragðast best nýbakaðir með heitu súkkulaði. MYND/ANTON BRINK
BJÓR OG TEPPI Tinna ræktar meðal
annars tengslin við Lúxemborg með því
að flytja inn lúxemborgskan bjór og teppi.
Gleðilegt uppeldi
Margrét Pála Ólafsdóttir
Leynigarður
Johanna Basford
Fiskarnir hafa enga fætur
Jón Kalman Stefánsson
Sorcerer’s Screed
Skuggi
2.
3.
4.
Frelsi
Linda Vilhjálmsdóttir
Eitthvað á stærð við alheiminn
Jón Kalman Stefánsson
Nigella á ítölskum nótum
Nigella Lawson
Stríðsárin 1938-1945
Páll Baldvin Baldvinsson
Stóri skjálfti
Auður Jónsdóttir
6.
8.
9.
10.
1.
METSÖLULISTI
Bókabúðar
Máls og menningar
26. nóv - 3. des 2015
5.
7.
Sogið
Yrsa Sigurðardóttir
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
8
-2
A
B
4
1
7
A
8
-2
9
7
8
1
7
A
8
-2
8
3
C
1
7
A
8
-2
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K