Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 104
Schengen-samstarf Evrópuríkjanna
hefur verið í nokkru uppnámi undan-
farið, eftir að flóttamenn tóku að
streyma í stríðum straumum frá Sýr-
landi og fleiri hrjáðum löndum.
Ekki bættu voðaverkin í París fyrir
nokkrum vikum úr skák.
Þeim röddum fjölgar sem segja
nauðsynlegt að taka upp innra landa-
mæraeftirlit á Schengen-svæðinu.
Strax í lok sumars varaði Angela
Merkel Þýskalandskanslari við því að
Schengen-samstarfið væri í uppnámi
vegna flóttamannastraumsins, en þá
reiknuðu Þjóðverjar með því að taka
við 800 þúsund flóttamönnum á þessu
ári. Nú er talið að fjöldi þeirra sé kom-
inn yfir milljón.
Myndi þýða endalok Schengen
FranÇois Hollande Frakklandsfor-
seti hefur sömuleiðis varað við því
að Schengen-samstarfið geti verið í
uppnámi, ef ekki tekst að finna leið til
að tryggja ytri landamæri Schengen-
svæðisins: „Við munum þurfa að setja
aftur upp landamærastöðvar og eftir-
lit,“ sagði hann í september, „og það
mun þýða endalok Schengen í þeim
skilningi að það sé svæði sem lýtur
ákveðnum reglum en tryggir um leið
ferðafrelsi.“
Ungverjaland hefur nú þegar lokað
landamærum sínum að Serbíu og
Króatíu.
Austurríki hefur tekið upp eftirlit við
landamæri Ungverjalands og Þýska-
land hefur tekið upp eftirlit við landa-
mæri Austurríkis.
Þá hafa bæði Svíþjóð og Noregur
tekið upp landamæraeftirlit með fólki
sem kemur frá Danmörku.
Loks tóku Frakkar upp eftirlit með
landamærunum að Belgíu eftir að
hópur öfgamanna myrti 130 manns í
París 13. nóvember síðastliðinn.
Tímabundið afnám ferðafrelsis
Það var svo nú í vikunni sem dóms-
málaráðherrar Evrópusambands-
ríkjanna komu saman í Brussel til að
ræða tillögu um að veita ríkjunum
tímabundna heimild til að setja upp
landamæraeftirlit til tveggja ára.
Í reglum Schengen-svæðisins er
nú þegar heimild til þess að vera með
innra landamæraeftirlit í allt að sex
mánuði, ef óhjákvæmilegt þykir.
Í aðdraganda fundarins í Brussel
hafa þau aðildarríki sem nú þegar hafa
tekið upp landamæraeftirlit í einhverri
mynd, verið sérstaklega gagnrýnd fyrir
að upplýsa ekki önnur Schengen-ríki
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
nægilega vel um fyrirætlanir sínar:
„Þetta hefur torveldað nágrannaríkjum
þeirra mjög að búa sig undir breytingar
á ferðaleiðum flóttafólks,“ segir í rök-
stuðningi með drögum að breytingum
á Schengen-sáttmálanum sem lögð
voru fyrir fundinn í Brussel.
Í reynd þýðir þetta að Evrópusam-
bandið geri að engu, að minnsta kosti
tímabundið, það grundvallaratriði
Schengen-svæðisins að fólk geti ferðast
á milli landa innan þess án þess að
framvísa vegabréfum á landamærum.
Mæðir mest á Grikklandi og Ítalíu
Flóttamannastraumurinn til Evrópu frá
Mið-Austurlöndum og norðanverðri
Afríku hefur verið í hámarki þetta árið,
svo annað eins hefur ekki sést ára-
tugum saman.
Mest hefur þetta mætt á Grikklandi
og Ítalíu, enda koma flóttamennirnir
fyrst þangað, en flestir hafa síðan reynt
að komast til Þýskalands og Svíþjóðar.
Samkvæmt Dyflinnarreglugerð
Schengen-svæðisins er ætlast til þess
að þau ríki sem flóttafólkið kemur fyrst
til afgreiði mál þeirra. Þetta hefur hins
vegar engan veginn gengið upp vegna
þess að hvorki Ítalía né Grikkland, og
allra síst þó Grikkland, hafa fjárhags-
lega burði til þess að ráða við þetta
verkefni.
Grikkjum hótað en Tyrkjum boðið fé
Grikkir hafa verið gagnrýndir fyrir að
þiggja ekki boð annarra Evrópusam-
bandsríkja um aðstoð. Nú er jafnvel
svo komið að ráðamenn sumra ESB-
ríkja hóta því að reka þurfi Grikkland
úr Schengen-svæðinu.
Á hinn bóginn hefur Evrópusam-
bandið lofað Tyrkjum peningum fyrir
að halda flóttafólki innan landamæra
sinna, þannig að færri fari vestur eða
norður yfir landamærin til aðildarríkja
Evrópusambandsins.
Tyrkir eru að einhverju marki
þegar byrjaðir að stöðva flóttafólk á
landamærunum, þótt peningarnir
frá Evrópusambandinu hafi reyndar
frekar verið hugsaðir til þess að bæta
hag flóttafólks í Tyrklandi með það í
huga að það geti hugsað sér að doka
þar við áfram.
Samstarf Schengen-ríkjanna
Schengen-samstarfið gengur annars vegar út á frjálsa för fólks yfir
landamæri milli ríkja innan svæðisins, hins vegar náið samstarf ríkjanna í
lögreglu- og dómsmálum ásamt því að skiptast á upplýsingum um einstak-
linga, stolna muni og annað sem yfirvöld gætu þurft að hafa afskipti af.
Á sviði lögreglumála snýst samstarfið meðal annars um leit að grun-
uðum einstaklingum og eftirlit með fólki í öðrum löndum.
Á sviði dómsmála snýst samstarfið meðal annars um að hraða brott-
vísun einstaklinga úr landi og heimildir til fullnustu dóma í öðrum löndum.
Upplýsingakerfi Schengen er lykilþáttur í þessu samstarfi öllu. Þar eru
skráðar viðvaranir og hvers konar hættumerki tengd tilteknum einstakling-
um, farartækjum, skotvopnum, skilríkjum, peningaseðlum og verðbréfum
sem lögregluyfirvöld geta þurft vitneskju um.
Hér á landi er það embætti ríkislögreglustjóra sem sér um rekstur og ber
ábyrgð á upplýsingakerfinu.
Aðgang að upplýsingunum hafa ríkissaksóknari, lögreglan, útlendinga-
stofnun og samgöngustofa, auk þess sem tollgæslan, landhelgisgæslan og
innanríkisráðuneytið geta óskað eftir upplýsingum úr kerfinu.
Aðganginn má þó einungis virkja þegar starfsmenn þessara stofnana
þurfa nauðsynlega á honum að halda til að geta sinnt starfi sínu.
Þrjátíu ár frá undirritun í Lúxemborg
Schengen-svæðið
Við munum þurfa að setja aftur upp
landamærastöðVar og eftirlit og það mun þýða
endalok schengen.
FranÇois Hollande, Frakklandsforseti
Aðild að ESB
og Schengen
Austurríki
Belgía
Danmörk
Eistland
Finnland
Frakkland
Grikkland
Holland
Ítalía
Lettland
Litháen
Lúxemborg
Malta
Portúgal
Pólland
Slóvakía
Slóvenía
Spánn
Svíþjóð
Tékkland
Ungverjaland
Þýskaland
Aðild að ESB
en ekki með í
Schengen
Bretland
Írland
Aðild að
Schengen
en utan ESB
Ísland
Noregur
Sviss
Liechtenstein
Aðild að ESB
og væntanleg
að Schengen
Króatía
Rúmenía
Búlgaría
Kýpur
Sumarið 1985 var Schengen-sam-
komulagið undirritað í Lúxemborg,
nánar tiltekið um borð í Móselferj-
unni Princesse Marie-Astrid sem lá
við bryggju í smábænum Schengen.
Samkomulagið undirrituðu full-
trúar fimm landa: Frakklands, Þýska-
lands og Benelux-landanna þriggja;
Belgíu, Hollands og Lúxemborgar.
Samkomulagið fól í sér að landa-
mæraeftirlit milli þessara fimm
landa yrði smám saman lagt niður.
Fimm árum síðar gerðu þessi lönd
með sér ítarlegan sáttmála, þar sem
fyrirkomulag Schengen-svæðisins er
útfært nánar.
Schengen-sáttmálinn tók síðan
gildi árið 1995. Næstu árin bættust
fleiri ríki í hópinn og árið 1999 var
Schengen-sáttmálinn tekinn inn í
löggjöf Evrópusambandsins. Það
var svo árið 2001 sem Norðurlöndin
öll gengu á einu bretti í Schengen-
samstarfið, en Norðurlöndin höfðu
haft með sér vegabréfasamband
áratugum saman.
Nú eru aðildarlönd Schengen-sam-
starfsins 26 talsins. Þar eru innifalin
22 af 28 aðildarlöndum Evrópusam-
bandsins ásamt Íslandi, Noregi, Sviss
og Liechtenstein.
Með tímanum munu svo fjögur
ný Evrópusambandslönd, Búlgaría,
Króatía, Kýpur og Rúmenía, bætast við.
Bretland og Írland standa utan við
Schengen-samstarfið að mestu og
sinna eigin landamæraeftirliti, en
hafa þó samið um að taka að hluta
þátt í samstarfinu, einkum á sviði
lögreglu- og dómsmála.
53
þúsund kílómetrar
eru ytri landamæri
schengen-sVæðisins
Schengen í
uppnámi
Flóttamannastraumur til Evrópu og ótti
við hryðjuverk hafa orðið til þess að reglur
Schengen-ríkjanna eru til endurskoðunar.
5 . d E S E m B E r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r56 h E L G i n ∙ F r É T T A B L A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
7
-E
A
8
4
1
7
A
7
-E
9
4
8
1
7
A
7
-E
8
0
C
1
7
A
7
-E
6
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K