Öldrun - 01.02.2003, Page 33
Þann 6. mars næstkomandi stendur Öldrunarfræðafélag Íslands fyrir námstefnu í húsi
Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands við Dunhaga í Reykjavík
frá kl. 9:00 til 16:00.
Ýmsum spurningum er varpað fram.
Hvernig er aldurssamsetning þjóðarinnar að breytast og hver verður hún eftir 30 ár? • Þjónar líf-
eyrissjóðakerfið tilgangi sínum? • Eru sveigjanleg starfslok það sem koma skal? • Er undirbúningi
Íslendinga undir efri árin ábótavant og þá hvernig? • Er úrelding aldraðra raunveruleiki í íslensku
samfélagi? • Hver gætir hagsmuna aldraðra, þeir sjálfir eða einhverjir aðrir? • Eru aldraðir virkir
þátttakendur í samfélaginu og eigin lífi?
Fyrirlesarar verða:
Ásdís Skúladóttir, félagsfræðingur:
Eru aldraðir þátttakendur í samfélaginu og eigin lífi?
Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara:
Er lífeyrissjóðakerfið að þjóna tilgangi sínum?
Guðrún Agnarsdóttir, læknir:
Hver gætir hagsmuna aldraðra, þeir sjálfir eða …?
Jón Björnsson, sálfræðingur:
Að venda sínu kvæði í kross á miðjum aldri.
Magnús D. Baldursson, heimspekingur:
Er úrelding aldraðra raunveruleiki í íslensku samfélagi?
Tryggvi Þórir Herbertsson, hagfræðingur:
Aldurssamsetning þjóðarinnar og sveigjanleg starfslok.
N. N.
Starfsmannastefna, starfslok og ábyrgð fyrirtækjanna.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Öldrunarráðs Íslands:
Er undirbúningi Íslendinga undir efri árin ábótavant?
Umsjón: Sigríður Jónsdóttir félagsfræðingur og Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir.
Námstefnan kostar 11.300 kr. og er áhugasömum bent á að skrá sig
hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Sími 525 4444. Netfang: endurmenntun@hi.is
33ÖLDRUN – 21. ÁRG. 1. TBL. 2003
Næsta námstefna
Öldrunarfræðafélags Íslands í samvinnu
við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.
Verður þú einhvern tíma gamall?
Hvernig nýtum við reynslu og þekkingu
aldraðra í nútímaþjóðfélagi?