STARA - 16.04.2015, Blaðsíða 5
S
T
A
R
A
n
o
.3
1.T
B
L
2
0
15
5
Það er nokkuð ljóst að umgjörð myndlistar er
ekki í neinu samræmi við þann veruleika sem
starfandi myndlistarmenn lifa og hrærast í og
það má einnig segja um aðrar stéttir, svo sem
sýningarstjóra, listfræðinga, kennara og alla þá
aðila sem á beinan eða óbeinan hátt koma að
myndlist á Íslandi. Það er eins og myndlistar-
menn og aðrir sem tengjast myndlist starfi
í heimi „Potemkintjalda“ þar sem umgjörð
myndlistar hefur vissulega einhverja framhlið og
oft glæsilega, en oft á tíðum er ekkert á bakvið.
Þessu þarf að breyta.
Kortið á að auðvelda fólki að átta sig á heildar-
mynd myndlistar á Íslandi. Það sýnir hvert atriði
myndlistarheimsins og um leið hvað tilheyrir
sama mengi og hvernig einstaka atriði skarast,
og auðveldar þannig allar áætlanir um breytingar
og lagfæringar.
Almenn umræða um íslenskan myndlistarheim,
og um leiðir til að umbylta og laga það sem laga
þarf, hefur verið einsleit, brotakennd, og um
leið hefur skort samvinnu milli greina og stétta.
Meginástæðan hefur verið sú að margir hafa ekki
náð að sjá fyrir sér heildarmyndina og ekki skilið
nauðsyn þess að margbreytilegir þættir umgjarð-
ar myndlistar séu samstilltir og í samvinnu milli
ólíkra aðila sem koma að myndlist. Oft skilgreina
þeir sem koma að myndlist hagsmuni sína og
sinna stofnana á rangan hátt og eiga erfitt með að
átta sig á því að til þess að allir þættir myndlistar-
heims Íslands nái að þróast og komast í ásættan-
legt horf er nauðsynlegt að skilja og skilgreina
tengingar milli stofnana og aðila út fyrir eigin
svæði og eigin hagsmuni, en þeir hagsmunir eru
oft þröngt skilgreindir og í sumum tilfellum eru
aðilar að vinna gegn sjálfum sér.
Kortið af heildarmyndinni er framlag SÍM til
þess að sameina framtíðarsýn þeirra sem koma
að myndlist á Íslandi. Það er sett fram sem til-
raun að grunni til samstarfs, en til að byrja með
mun hver og einn félagi í SÍM taka þátt í að bæta
við atriðum sem vantar og koma með tillögur
að aðgerðum til að heildarmynd myndlistar nái
að dafna og þróast. Aðrir aðilar sem tengjast
myndlist verða fengnir til að bæta við kortið eftir
þessa vinnu félaga SÍM, til þess að auka á skiln-
ing og samvinnu.
Stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM),
hefur tekið að sér það verkefni að gera kort af heildar-
mynd íslenskrar myndlistar.