STARA - 16.04.2015, Page 29
S
T
A
R
A
n
o
.3
1.T
B
L
2
0
15
29
Frá árinu 2012 hefur verkefnið Reitir boðið
73 einstaklingum víðsvegar að úr heiminum
til Siglufjarðar í tilraunakennda nálgun á hina
hefðbundnu listasmiðju. Reitir byggir á þeirri
hugmynd að með því að leiða saman athafna-
sama einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn
og sérkunnáttu nýtist ólík reynsla þátttakenda
sem grunnur að spennandi og krefjandi sam-
starfi. Sem dæmi má nefna að stærðfræðingur,
grafískur hönnuður og teiknari hafa unnið
saman að hljóðskúlptúr.
Öll vinnan er staðbundin, og það á einnig við
um rannsókna- og hugmyndavinnu. Þátttakend-
ur mæta á staðinn án fyrirfram mótaðra hug-
mynda, með opinn hug gagnvart óeigingjörnu
samstarfi og drifkraft til að skapa. Reitir er tólf
daga verkefni sem skiptist í tvo hluta; fyrri
hlutinn er þrír dagar og tileinkaður rannsókna-
og hugmyndavinnu en seinni hlutinn fram-
kvæmd og úrvinnsla verkefna sem lýkur með
opnun. Verkferlið er mjög frjálst og er seinni
hlutinn alveg í höndum þátttakenda.
Hinn fullkomni þátttakandi er framtakssamur,
samvinnufús, skapandi í hugsun, tekur sénsa
og er með ástríðu fyrir því sem hann gerir.
Siglufjörður er viðfangsefni þátttakenda og
hafa þeir algjört frelsi til að nálgast bæinn á
þann hátt sem þau kjósa. Meðal fyrri verkefna
eru snjallsímaforrit, blaðaútgáfa, pop-up kaffi-
hús, leturgerð, myndbandsverk, útiskúlptúr
og margt fleira. Reitir er grunnur að skapandi
alþjóðasamstarfi í þágu bæjarins en sýnileiki
og samvinna við bæinn er mikilvægur hluti
verkefnisins. Á hverju ári er leitast við að auka
beint samband við bæjarbúa á skemmtilegan
hátt. Hvert ár skora Reitir á Siglufjörð í fótbolta
en einnig er hópnum skipt niður í litla hópa
og þeim boðið í kvöldmat á heimili í bænum.
Verkefnið er einnig miðjupunktur í vaxandi
tengslaneti sem teygir sig þvert yfir heiminn.
Hefur samstarf oft haldið áfram að Reitum
loknum og sumir snúið aftur sem þátttakend-
ur. Markmið Reita er að vera virkur partur af
uppbyggingu Siglufjarðar sem áfangastaðar
nýrra hugmynda gegnum þverfaglegt skapandi
samstarf.
Alþýðuhúsið á Siglufirði hýsir verkefnið.
Menningarráð Eyþings, Evrópa unga fólksins,
Myndlistarsjóður og Fjallabyggð hafa styrkt
verkefnið auk minni fyrirtækja í bænum.