Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 12
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
SA
7
84
18
0
2/
16
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
www.volkswagen.is
Við kynnum til leiks fjórðu kynslóð af vinsælasta atvinnubíl
á Íslandi undanfarin ár. Enn meiri staðalbúnaður, aukið
öryggi og öflugri vélar eru aðeins nokkur atriði sem gera
hinn nýja Caddy svo aðlaðandi. Nú kemur Caddy líka í
fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu með nálgunarvara
og loftpúðum fyrir ökumanns- og farþegarými.
Nýr Volkswagen Caddy
kostar frá
2.670.000 kr.
(2.135.226 kr. án vsk)
Glæsilegur vinnubíll
www.volkswagen.is
AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Nýr Volkswagen Caddy
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
fólk „Ég nenni að minnsta kosti ekki
að tala um pólitík – hún er svo leiðin-
leg,“ er það fyrsta sem Valdi koppasali
segir þegar útsendarar Fréttablaðs-
ins birtast á hlaðinu hjá honum við
Hólmsá og falast eftir viðtali.
Þorvaldur Norðdahl er eins og við-
urnefni hans gefur til kynna þekkt-
astur fyrir að selja hjólkoppa. Hann
er orðinn 63 ára en var bara strákur
þegar koppaævintýrið byrjaði.
„Ég byrjaði í hjólkoppunum árið
1962,“ segir Valdi sem hefur bjargað
mörgum um ódýra hjólkoppa í stað
þeirra sem hrokkið hafa af bílum
þeirra.
Mjög mikið dró úr eftirspurn eftir
hjólkoppum þegar framleiðendur
byrjuðu að útbúa bíla sína með álfelg-
um sem enga koppa þarf að setja yfir.
Það er því ekki mikið um að vera í við-
skiptunum hjá Valda. Hann segist þó
enn stússast í koppunum sem skipta
mörgum þúsundum í skúrnum hans
við Hólmsá.
„Nú, það þarf nú ekki að spyrja að
því, það er alltaf Ford, Volkswagen
eða Toyota því kopparnir á þessum
tegundum detta svo auðveldlega af,“
svarar Valdi spurður að því hvort
hann viti alltaf hvort hann eigi til-
tekinn hjólkopp og þá hvar hann er
í öllum koppastöflunum.
Valdi undirstrikar vandlega að ekki
sé sama koppur og koppur. Lítið sé
varið í seinna tíma plastkoppa. Öðru
máli gegni um gömlu, ekta málm-
koppana sem hann á enn mikið af og
hefur í öndvegi í skúrnum.
„Ég er að bíða eftir að það verði
tæmdur fatalager í húsnæði við
Höfðabakka svo ég geti sett upp
sýningu á hundrað koppum frá mér í
sal þar á bak við,“ upplýsir Valdi sem
kveðst vonast til að sýningin verði
að veruleika á næstu mánuðum. Þar
verði koppar frá árinu 1953 og fram á
áttunda áratuginn.
Koppasýninguna ætlar Valdi að
setja upp í samstarfi við Krúser-
klúbbinn sem er félagsskapur forn-
bílaeigenda. Slíkir bílar eru einmitt
eitt stærsta áhugamál koppasalans.
„Það er alltof lítið fjallað um forn-
bíla í fjölmiðlum,“ segir Valdi og
rifjar alvarlegur upp sögu af félaga
sínum sem var að skoða sig um í bíla-
hrúgunni hjá endurvinnslufyrirtæk-
inu Hringrás á Akureyri þegar hann
kom auga á mjög álitlegan fornbíl
sem hann bað um að fá.
„Þeir hífðu þá bílinn upp og settu
hann skellihlæjandi beint í pressuna
fyrir framan nefið á honum. Það þarf
að stofna fornbílafriðunarnefnd til
að bjarga bílum eldri en 25 ára frá
glötun,“ segir Þorvaldur Norðdahl.
gar@frettabladid.is
Yfirlitssýning
hjólkoppasala
Valdi koppasali hefur selt hjólkoppa í yfir hálfa öld.
„Láttu símanúmerið 865 2717 endilega fylgja með,“ segir Valdi koppasali sem
stendur hér í hjarta ríkis síns. FréttabLaðið/ViLheLm
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I k U D a G U r12 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
C
7
-D
6
C
0
1
8
C
7
-D
5
8
4
1
8
C
7
-D
4
4
8
1
8
C
7
-D
3
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K