Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 16
Strákarnir eru HeforSHe Domino’s-deildir karla og kvenna og un Women verða í samstarfi á meðan úrslitakeppnin í körfu- bolta stendur yfir en úrslitakeppni karla hefst á fimmtudaginn. kkÍ og Domino’s ætla að taka þátt í að vekja athygli á baráttunni gegn kynjamisrétti og skora sérstak- lega á íslenska karla að ganga til liðs við baráttuna og skrá sig á HeforShe.is. fyrirliðar karlaliða Domino’s-deildarinnar skráðu sig sem HeforShe á blaðamannafundi fyrir úrslitakeppnina í gær og hétu því þar með að beita sér mark- visst í baráttunni fyrir jöfnum hlut kynjanna á öllum vígstöðvum. „Það er alltaf mikil tilhlökkun fyrir úrslitakeppni Domino’s- deildanna og núna er tilhlökkunin enn skemmtilegri og meiri með samstarfinu við HeforShe,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður kkÍ. Í dag 19.10 Snæfell - Keflavík Sport3 19.15 Meistaradeildarupph. Sport 19.35 Bayern - Juventus Sport2 19.45 Barcelona - Arsenal Sport 21.45 Meistaramörkin Sport 19.15 Haukar - Grindavík Hvergerði 19.15 Stjarnan - Valur Ásgarður 19.15 Snæfell - Keflavík Hólmurinn Handbolti Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í handbolta karla með sannfærandi sigri, 36-28, á Gróttu á heimavelli í fyrrakvöld. Það er erfitt að neita því að Haukar séu besta lið landsins en Íslandsmeistar- arnir hafa unnið 20 af 24 leikjum sínum í olís-deildinni, skorað flest mörk allra liða og fengið á sig fæst. Hafnfirðingar verða því að teljast ansi líklegir til afreka í úrslitakeppn- inni sem hefst eftir mánuð. Haukavélin mallaði vel í leiknum gegn Gróttu þar sem margir lögðu hönd á plóg í sóknarleiknum. alls komust tíu leikmenn Hauka á blað en sjö þeirra skoruðu fjögur mörk eða meira. Þeirra á meðal var skytt- an öfluga adam Haukur Baumruk en hann gerði fjögur mörk úr sjö skotum og lét auk þess til sín taka í vörninni. Vorum ekki tilbúnir gegn FH „Það er gott að vera búinn að klára þetta,“ sagði adam í samtali við fréttablaðið í gær. Hann var nokkuð ánægður með spilamennsku Hauka í gær og sagði hana mun betri en í jafnteflinu gegn fH í síðustu viku. „Þetta gekk vel miðað við síðasta leikinn gegn fH þar sem við mættum ekki til leiks og vorum ekki tilbúnir.“ enn er þremur umferðum ólokið í olís-deildinni og Haukar hafa því svigrúm til að hvíla menn fyrir úrslitakeppnina. tölvunarfræði- neminn adam segir þó mikilvægt Haukar missi ekki taktinn: „Við fáum smá tíma núna en það þýðir ekki að hætta alveg. Við þurfum að klára þessa þrjá leiki og koma sterkir inn í úrslitakeppnina.“ adam, sem verður 22 ára síðar í mánuðinum, hefur verið í meistara- flokki í nokkur ár en hann fékk mun stærra hlutverk í Haukaliðinu eftir að Sigurbergur Sveinsson fór til Þýskalands í atvinnumennsku eftir tímabilið 2013-14. Haukum gekk ekki vel framan af síðasta tímabili en þeir toppuðu á réttum tíma. og þrátt fyrir að vera ekki með heimavallarrétt í úrslita- keppninni unnu Hafnfirðingar alla sína leiki þar og tryggðu sér Íslands- meistaratitilinn með stæl. Patrekur Jóhannesson kvaddi Hauka eftir tímabilið til að einbeita sér að þjálfun austurríska lands- liðsins en við starfi hans tók Gunnar Magnússon. adam segir að það hafi ekki orðið miklar breytingar hjá Haukum við þjálfaraskiptin. Fær fullt skotleyfi „nei, þetta er mjög svipað. Patti var búinn að leggja góðan grunn og Gunni byggir á honum,“ sagði adam sem fær fullt skotleyfi hjá Gunnari líkt og hann fékk hjá Patreki. „Ég er eina skyttan þarna og á að skjóta á markið eins og skyttur gera. Ég fæ traustið hjá Gunnari eins og ég fékk hjá Patta í fyrra. ef maður fær færi verður maður að skjóta og þjálfarinn skilur það alveg og gefur manni leyfi.“ Haukar tóku þátt í eHf-bikarnum fyrir áramót og spiluðu m.a. tvo leiki við arnór atlason og félaga í franska liðinu Saint raphael. Haukarnir spiluðu mjög vel í fyrri leiknum á ásvöllum sem tapaðist með einu marki, 28-29. Í seinni leiknum fékk Hafnarfjarðarliðið hins vegar skell og féll því úr leik. Mikil sigurganga Sigurganga Hauka á þessari öld er ótrúleg en frá árinu 2000 hefur liðið Góð kaup að fá pabba og svo mig Adam Haukur Baumruk varð deildarmeistari með Haukum í fyrradag en hann og faðir hans, Petr, hafa átt drjúgan þátt í nær óslitinni sigurgöngu Hauka. Petr Baumruk og Adam Haukur Baumruk. FréttABlAðið/ernir Ég er eina skyttan þarna og á að skjóta á markið eins og skyttur gera. Adam Haukur Baumruk Nýjast Meistaradeild Evrópu Man. City - D. Kiev 0-0 Manchester City fór áfram, 3-1, samanlagt. Manchester City gerði það sem þurfti til og komst áfram í átta liða úrslitin í fyrsta sinn í sögu liðsins. Vincent kompany meiddist á kálfa í leiknum. Atlético - PSV eindhoven x Leikurinn var framlengdur og var ekki lokið þegar fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Fitul’til og pr—teinr’k . . . … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA níu sinnum orðið Íslandsmeistari, fimm sinnum bikarmeistari og tíu sinnum deildarmeistari. Þessi mikla sigurganga hófst aldamótaárið 2000 þegar Haukar urðu Íslandsmeist- arar eftir sigur á fram í úrslitaeinvígi. einn af lykilmönnum Hauka á þeim tíma var Petr Baumruk, faðir adams, en þeir feðgar hafa hjálpað Haukum að vinna ansi marga titla. „Það voru góð kaup hjá Þorgeiri Haraldssyni [formaður handknatt- leiksdeildar Hauka] að fá pabba og svo mig,“ sagði adam og hló. Petr kom hingað til lands árið 1990 eftir að hafa notið mikillar velgengni með Dukla Prag í ættlandinu, tékkó- slóvakíu. eins og að hafa annan þjálfara Petr lék með Haukum til ársins 2001 og um áratug seinna tók sonurinn við keflinu. Petr er þó alltaf nálægur en hann starfar í íþróttahúsinu á ásvöllum og fylgist vel með öllu sem þar fer fram. „Maður fær aldrei frið heima,“ sagði adam í léttum dúr, aðspurður hvort pabbinn væri að segja honum til eða skamma hann. „ef mann vant- ar ráð getur maður leitað til hans. en hann kann líka að róa sig niður og ef hann sér að ég vil ekki tala um handbolta talar hann ekki um hand- bolta. Þetta er eins og að hafa annan þjálfara heima.“ adam segir margt líkt með þeim feðgum á vellinum enda spila þeir sömu stöðu, sem rétthent skytta. „Hann var kannski aðeins grimm- ari í vörninni. Ég á eftir að vaxa þar,“ sagði adam. „en helsti munurinn er að hann var meira í gólfskotunum í sókninni en ég meira í uppstökk- unum og að skjóta fyrir utan.“ adam segist ekki hafa fundið fyrir aukinni pressu á sér vegna þess hver faðir hans er. „auðvitað er einhver pressa á manni en ég hugsa ekki um það. Ég reyni bara að vera ég sjálfur,“ sagði adam að lokum. Ingvi Þór Sæmundsson ingvi@frettabladid.is 1 6 . M a r s 2 0 1 6 M i Ð V i K U d a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð sport 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 7 -F 9 5 0 1 8 C 7 -F 8 1 4 1 8 C 7 -F 6 D 8 1 8 C 7 -F 5 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.