Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 34
„Ég er spenntur fyrir þessu nýja starfi en aðallega þó upp með mér yfir að UNICEF skyldi hafa samband við mig“ segir Ævar Þór Benediktsson,“ vel þekktur sem Ævar vísindamaður sem verður talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar í ár. Hann ætlar að hjálpa til við að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og auka skilning þeirra á því hvernig réttindi barna hafa tengingu við daglegt líf þeirra. Ævar kveðst ekkert endilega hafa verið á lausu en ákveðið að búa til tíma fyrir þetta verkefni. „Ég er aðallega að skrifa bækur og gera útvarps- og sjónvarpsþætti og finn bara auka klukkutíma til að geta lagt þessu málefni lið. UNICEF-hreyfing- in skiptir miklu máli og þá bara forgangs- raðar maður,“ segir hann ákveðinn. „Ég er búinn að vera á nokkrum undirbún- ingsfundum með starfsfólki UNICEF. Við erum með alls konar hugmyndir í gangi til að finna út hvernig ég nýtist sem best og svo fer boltinn hratt af stað þegar við byrjum.“ Í ár verður sérstök áhersla lögð á Sýr- land og Ævar ætlar að miðla til barnanna ýmsum staðreyndum um Sýrland, stríðið og áhrif þess á börn. Þegar hann hefst handa kveðst hann nálgast verkefnið eins og þegar hann er að vinna þættina sína. „Ég byrja á að safna upplýsingum og skoða hvað skiptir máli, hvað verður að koma fram og hvernig ég get matreitt það þannig að það veki athygli og skilji eitthvað eftir í huga fólks.“ En ætlar hann að fara út á mörkina eða bara nota miðlana? „Ég mun nýta allt sem ég get og örugglega leika mér eitthvað með miðlana, þannig náum við flestum.“ Spurður hvort hann verði nokkuð sendur til Sýrlands svarar Ævar: „Sú hugmynd hefur ekki komið upp. En það fylgir þessu verkefni að kafa ofan í málefni þess heimshluta því ef ég ætla að fræða fólk verð ég að vita eitthvað sjálfur og mér er ljúft og skylt að gera mitt besta í þeim efnum.“ gun@frettabladid.is Verð að vita eitthvað sjálfur Ævar Þór Benediktsson vísindamaður er vel þekktur fyrir að geta miðlað flóknum hlut- um til barna á upplýsandi hátt. Hann verður fyrsti talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar. „Ég byrja á að safna upplýsingum og skoða hvað skiptir máli, hvað verður að koma fram og hvernig ég get matreitt það þannig að það veki athygli og skilji eitthvað eftir í huga fólks,“ segir Ævar Þór. FrÉttablaðið/SteFán Vegna stærðar blaðsins á morgun, fimmtudag, verður Fréttablaðið prentað í tvennu lagi. Frestur til að skila inn dánarauglýsingum í fimmtudagsblaðið færist því fram til kl. 13.30. Elskulegi faðir okkar, tengdapabbi, afi og langafi, Valentínus Guðmundsson Hrafnistu, Boðaþingi 5-7, Kópavogi, sem lést þriðjudaginn 1. mars, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.00. Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Boðaþingi fyrir einstaka alúð og umönnun. Katrín Valentínusdóttir Ólafur Magnússon Hrönn Valentínusdóttir Guðjón Ágústsson Ingibjörg Valentínusd. Darrel John Brittain Hafþór Valentínusson Jude Respondo Valentinusson Valþór Valentínusson Aðalheiður Björgvinsdóttir Garðar Valentínusson Sarah Valentinusson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Karlsdóttir áður Sunnubraut 3, Vík í Mýrdal, lést á hjúkrunarheimilinu Hjallatúni, Vík í Mýrdal, mánudaginn 14. mars. Útförin verður auglýst síðar. Oddný Runólfsdóttir Karl Runólfsson Lára Jóna Jónasdóttir Sæmundur Runólfsson Kristín Svavarsdóttir Runólfur Þór Runólfsson Guðjóna Eygló Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar, Ástríðar Ingvarsdóttur Brúnavegi 9, áður Ásholti 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar H1 Hrafnistu Reykjavík fyrir einstaklega góða umönnun. Ingibjörg og Ragnheiður Kristjánsdætur og fjölskyldur. Ástkær frænka okkar, Ása Sigurðardóttir frá Hjalla í Ölfusi, áður til heimilis að Háteigsvegi 40, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum 11. mars síðastliðinn. Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.00. Systkinabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Erla Gestsdóttir lést þann 5. mars síðastliðinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Skarphéðinn Njálsson Gestur Skarphéðinsson Fanney Ásgeirsdóttir Guðrún Signý Gestsdóttir Guðjón Máni Ívarsson Erla Gestsdóttir Helga Magnea Gestsdóttir Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og systur, Pálínu Ernu Ólafsdóttur Munum þá sem gleyma. Halla Dröfn Þorsteinsdóttir Sigurjón Þ. Guðmundsson Ásta Ingibjörg Þorsteinsdóttir Róbert Grímur Grímsson Sigurður Óli Þorsteinsson Monika Radowska Erna, Grímur, Grettir, Ísak, Nína, Hilmir, Huginn og systkini hinnar látnu. Laufey Heiðbjört Helgadóttir frá Grímsstöðum við Mývatn andaðist í Brákarhlíð í Borgarnesi föstudaginn 11. mars. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 23. mars kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Ella og Dísa Steingrímsdætur og Kristinn Eldjárnsson Herborg Aðalbjörg Herbjörnsdóttir ( Ebba) Vættagili 11, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð 11. mars sl. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir. Látum minninguna lifa hjá líknarfélögum. Jakob Kárason Björn Halldór Sveinsson Kristín Hrönn Hafþórsdóttir Birgir Örn Sveinsson Svala Jóhannsdóttir og ömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Jónsdóttir Gullengi 5, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 8. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks lungnadeildar A6 á Borgarspítala og líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og alúð. Samheldinni fjölskyldu er þakkað fyrir ómetanlega aðstoð á erfiðum tíma. Sigurjón Einarsson Jóna Björk Sigurjónsdóttir Kristín Jóhanna Úlfarsdóttir Einar Sigurjónsson Halldóra Inga Ingileifsdóttir Linda Sigurjónsdóttir Heiðar Örn Kristjánsson barnabörn, barnabarnabarn og aðrir ættingjar. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og vinur, Gunnar Magnússon skipstjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 13. mars. Útförin verður auglýst síðar. Baldur Gunnarsson Edda Karen Haraldsd. Guðrún S. Gunnarsdóttir Hilmar Sigvaldason Gunnhildur Ó. Gunnarsdóttir Guðmundur Arnaldsson Magnús B. Gunnarsson Stefanía S. Gunnarsdóttir Kristján J. Ágústsson Gunnar M. Gunnarsson Guðrún H. Eiríksdóttir Marta K. Halldórsdóttir Pétur S. Gunnarsson Aðalheiður Pálmadóttir Svanhildur Snæbjörnsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Helga Sigurðardóttir áður húsmóðir að Foss-seli, Hrútafirði og Hlíðarvegi 17, Hvammstanga, andaðist laugardaginn 5. mars á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.00. Ragnheiður E. Jónsdóttir Þorvaldur Örn Árnason Kristrún Ólöf Þorsteinsdóttir barnabörn og fjölskyldur. Okkar ástkæra Fanney Halldórsdóttir frá Syðri-Steinsmýri í Meðallandi lést þann 8. mars á hjúkrunar- heimilinu Eir. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 16. mars, kl. 11.00. Ísleifur Vilhjálmsson Elsa Dóra Grétarsdóttir Birgir Ottósson Sigþór Grétarsson Anita Henriksen Jón Þór Grímsson Sigurlaug Guðmundsdóttir Inga Lára Ísleifsdóttir Karl V. Brandsson Bjarney Katrín Ísleifsdóttir Halldór Guðmundsson Ágústa Karla Ísleifsdóttir Ægir Ísleifsson Sara Heimisdóttir Jökull Ísleifsson barnabörn og barnabarnabörn. 1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r18 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð tímamót 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 C 7 -F 4 6 0 1 8 C 7 -F 3 2 4 1 8 C 7 -F 1 E 8 1 8 C 7 -F 0 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.