Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 27
Hrím Kringlunni Opnuð í mars 2015 Epal Kringlunni Opnuð í mars 2015 Finnska búðin Kringlunni Opnuð í ágúst 2015 iittala Kringlunni Opnuð árið 2015 Dúka Smáralind Opnuð árið 2011 pEtit Suðarlandsbraut 4 Opnuð í nóvember 2013 snúran Síðumúla 21 Opnuð í mars 2015 Epal Hörpu Opnuð í maí 2011 Hrím Laugavegi 25 Opnuð í mars 2012 norr11 Hverfisgötu 18a Opnuð í desember 2014 spark DEsign spacE Klapparstig Opnaði í júlí 2010 rEykjavik’s cutEst Laugavegi 27 Opnuð árið 2016 Hrím ElDHús Laugavegi 32 Opnuð árið 2014 Fakó Laugavegi 37 Opnuð árið 2013 my concEpt storE Laugavegi 45 Opnuð í mars 2014 Fimmtán nýjar hönnunarvöruverslanir á fimm árum* Nýjar búðir utan miðbæjarins Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms, flutti verslunina til Reykja- víkur í miðbæinn fyrir fjórum árum. Þremur árum síðar var hún komin með þrjár Hrímsverslanir í Reykja- vík, eina í viðbót, Hrím Eldhús, í miðbænum og aðra í Kringlunni. Hún segir þessa útrás hönnunar- búða á tímabilinu einungis hafa styrkt starfsemi Hríms. „Maður þarf bara aðeins að sér- hæfa sig betur og halda betur í merkin sín. Þessar nýju verslanir sem hafa verið opnaðar og skipt um eigendur og svona hafa verið að stela merkjum frá manni. Maður reynir bara að fara ótroðnar slóðir í vöru- leit,“ segir Tinna. Vinsælustu vörurnar hjá Hrími hafa að sögn Tinnu verið Reykjavik Posters og vörur frá Studio Arhoj, en fyrirtækið hefur einmitt náð að vera eina búðin sem selur vörur Studio Arhoj. Þær vörur hafa verið mjög vinsælar og við höfum náð að halda því ein, en vitum að aðrar búðir hafa verið að reyna að ná því merki til sín,“ segir Tinna. Hrím er ein þeirra verslanakeðja sem hafa bætt við sig verslun í versl- unarmiðstöð, en aðrar verslanir sem hafa gert það eru meðal annars Epal og Finnska búðin. Tinna segir að staðan sé sú að ferðamenn séu mest að versla í miðbænum en Íslend- ingarnir í Kringlunni. „Því miður eru allt of lítið af Íslendingum að koma í bæinn og þeim fækkar með hverjum mánuðinum. Það er engin niðursveifla í búðunum hjá mér, kúnnahópurinn er bara annar.“ Satu Ramo, ein eigenda Finnsku búðarinnar og Reykjavik’s Cutest, tekur undir þetta. Hún segir að eftir að þær opnuðu Finnsku búðina í Kringlunni sáu þær að Íslending- arnir væru að fara þangað að versla. „Við ákváðum af því að það koma svona margir ferðamenn inn í mið- bænum og spyrja hvort til sé eitt- hvað íslenskt að breyta úrvalinu og aðeins að breyta nafninu svo að útlendingar skildu hvað væri til sölu. Við höfum því tekið inn íslenskar vörur þarna og leggjum áherslu á íslenska hönnun,“ segir Satu. Þarf að fara ótroðnar slóðir í vöruleit Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms, leggur mikið upp úr því að sérhæfa sig og hafa sérstök merki í búðinni. FréTTaBLaðið/PjeTur Maður þarf bara aðeins að sérhæfa sig betur og halda betur í merkin sín. 3 hönnunarbúðir eru í rekstri hjá bæði Hrími og Epal 30+ hönnunarbúðir eru starfræktar í mið- bænum, Kringlunni og Smáralind 5 búðir hafa verið opnaðar í Kringl- unni og Smáralind á síðustu fimm árum Árið 2015 var það besta í fjörutíu ára sögu Epal eyjólfur Pálsson, eigandi epal, segir að árið 2015 hafi verið besta rekstrarár í sögu epal. FréTTaBLaðið/GVa *Listinn er ekki tæmandi fyrir hönnunarbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Inni í talningunni eru ekki verslanir utan Reykjavíkur og Kópavogs, né búðir sem sérhæfa sig í fatnaði og skartgripum. Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur - vinna með þér Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað RV 0216 Úti- og innimottur á tilboði – úrval af frábærum mottum í mörgum gerðum og stærðum Tilboð Verð frá 3.188 Kr. 24/7 RV.is GripWa lker TM 18 þúsund í hóp fyrir notaðar hönnunarvörur Margar hönnunarbúðanna á höfuðborgarsvæðinu eru einnig með netverslun, auk þeirra er fjöldi verslana sem eru einungis á netinu. Svo virðist sem Íslendingar séu einnig duglegir að selja hönn- unarvörur sín á milli. Tæplega 18 þúsund manns tilheyra Facebook- hópnum Notaðar hönnunarvörur. Þar skiptast margir á vörum í mis- munandi litum auk þess að selja hönnunarvörur. Vinsælar vörur þar eru meðal annars Georg Jensen- jólaóróar, iittala-kertastjakar, Marimekko-skálar og Kähler-vasar. Auk hans eru sérstakir hópar fyrir notaðar hönnunarvörur á Norður- landi og á Suðurnesjum. LaugavegurSkólavörðustígur Læ kjargata Hverfisgata MarKaðurinn 7m i ð v i k u D a g u r 1 6 . m a r s 2 0 1 6 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 7 -F 4 6 0 1 8 C 7 -F 3 2 4 1 8 C 7 -F 1 E 8 1 8 C 7 -F 0 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.