Fréttablaðið - 16.03.2016, Síða 16
Strákarnir eru HeforSHe
Domino’s-deildir karla og kvenna
og un Women verða í samstarfi
á meðan úrslitakeppnin í körfu-
bolta stendur yfir en úrslitakeppni
karla hefst á fimmtudaginn. kkÍ
og Domino’s ætla að taka þátt í
að vekja athygli á baráttunni gegn
kynjamisrétti og skora sérstak-
lega á íslenska karla að ganga til
liðs við baráttuna og skrá sig á
HeforShe.is. fyrirliðar karlaliða
Domino’s-deildarinnar skráðu sig
sem HeforShe á blaðamannafundi
fyrir úrslitakeppnina í gær og hétu
því þar með að beita sér mark-
visst í baráttunni fyrir jöfnum hlut
kynjanna á öllum vígstöðvum.
„Það er alltaf mikil tilhlökkun
fyrir úrslitakeppni Domino’s-
deildanna og núna er tilhlökkunin
enn skemmtilegri og meiri með
samstarfinu við HeforShe,“ segir
Hannes S. Jónsson, formaður kkÍ.
Í dag
19.10 Snæfell - Keflavík Sport3
19.15 Meistaradeildarupph. Sport
19.35 Bayern - Juventus Sport2
19.45 Barcelona - Arsenal Sport
21.45 Meistaramörkin Sport
19.15 Haukar - Grindavík Hvergerði
19.15 Stjarnan - Valur Ásgarður
19.15 Snæfell - Keflavík Hólmurinn
Handbolti Haukar tryggðu sér
deildarmeistaratitilinn í handbolta
karla með sannfærandi sigri, 36-28, á
Gróttu á heimavelli í fyrrakvöld. Það
er erfitt að neita því að Haukar séu
besta lið landsins en Íslandsmeistar-
arnir hafa unnið 20 af 24 leikjum
sínum í olís-deildinni, skorað flest
mörk allra liða og fengið á sig fæst.
Hafnfirðingar verða því að teljast
ansi líklegir til afreka í úrslitakeppn-
inni sem hefst eftir mánuð.
Haukavélin mallaði vel í leiknum
gegn Gróttu þar sem margir lögðu
hönd á plóg í sóknarleiknum. alls
komust tíu leikmenn Hauka á blað
en sjö þeirra skoruðu fjögur mörk
eða meira. Þeirra á meðal var skytt-
an öfluga adam Haukur Baumruk
en hann gerði fjögur mörk úr sjö
skotum og lét auk þess til sín taka í
vörninni.
Vorum ekki tilbúnir gegn FH
„Það er gott að vera búinn að klára
þetta,“ sagði adam í samtali við
fréttablaðið í gær. Hann var nokkuð
ánægður með spilamennsku Hauka
í gær og sagði hana mun betri en í
jafnteflinu gegn fH í síðustu viku.
„Þetta gekk vel miðað við síðasta
leikinn gegn fH þar sem við mættum
ekki til leiks og vorum ekki tilbúnir.“
enn er þremur umferðum ólokið
í olís-deildinni og Haukar hafa
því svigrúm til að hvíla menn fyrir
úrslitakeppnina. tölvunarfræði-
neminn adam segir þó mikilvægt
Haukar missi ekki taktinn: „Við fáum
smá tíma núna en það þýðir ekki að
hætta alveg. Við þurfum að klára
þessa þrjá leiki og koma sterkir inn
í úrslitakeppnina.“
adam, sem verður 22 ára síðar í
mánuðinum, hefur verið í meistara-
flokki í nokkur ár en hann fékk mun
stærra hlutverk í Haukaliðinu eftir
að Sigurbergur Sveinsson fór til
Þýskalands í atvinnumennsku eftir
tímabilið 2013-14.
Haukum gekk ekki vel framan af
síðasta tímabili en þeir toppuðu á
réttum tíma. og þrátt fyrir að vera
ekki með heimavallarrétt í úrslita-
keppninni unnu Hafnfirðingar alla
sína leiki þar og tryggðu sér Íslands-
meistaratitilinn með stæl.
Patrekur Jóhannesson kvaddi
Hauka eftir tímabilið til að einbeita
sér að þjálfun austurríska lands-
liðsins en við starfi hans tók Gunnar
Magnússon. adam segir að það hafi
ekki orðið miklar breytingar hjá
Haukum við þjálfaraskiptin.
Fær fullt skotleyfi
„nei, þetta er mjög svipað. Patti var
búinn að leggja góðan grunn og
Gunni byggir á honum,“ sagði adam
sem fær fullt skotleyfi hjá Gunnari
líkt og hann fékk hjá Patreki.
„Ég er eina skyttan þarna og á að
skjóta á markið eins og skyttur gera.
Ég fæ traustið hjá Gunnari eins og
ég fékk hjá Patta í fyrra. ef maður
fær færi verður maður að skjóta og
þjálfarinn skilur það alveg og gefur
manni leyfi.“
Haukar tóku þátt í eHf-bikarnum
fyrir áramót og spiluðu m.a. tvo leiki
við arnór atlason og félaga í franska
liðinu Saint raphael. Haukarnir
spiluðu mjög vel í fyrri leiknum á
ásvöllum sem tapaðist með einu
marki, 28-29. Í seinni leiknum fékk
Hafnarfjarðarliðið hins vegar skell
og féll því úr leik.
Mikil sigurganga
Sigurganga Hauka á þessari öld er
ótrúleg en frá árinu 2000 hefur liðið
Góð kaup
að fá pabba
og svo mig
Adam Haukur Baumruk varð deildarmeistari með
Haukum í fyrradag en hann og faðir hans, Petr, hafa
átt drjúgan þátt í nær óslitinni sigurgöngu Hauka.
Petr Baumruk og Adam Haukur Baumruk. FréttABlAðið/ernir
Ég er eina skyttan
þarna og á að skjóta
á markið eins og skyttur
gera.
Adam Haukur Baumruk
Nýjast
Meistaradeild Evrópu
Man. City - D. Kiev 0-0
Manchester City fór áfram, 3-1, samanlagt.
Manchester City gerði það sem
þurfti til og komst áfram í átta liða
úrslitin í fyrsta sinn í sögu liðsins.
Vincent kompany meiddist á kálfa
í leiknum.
Atlético - PSV eindhoven x
Leikurinn var framlengdur og var
ekki lokið þegar fréttablaðið fór í
prentun í gærkvöldi.
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
níu sinnum orðið Íslandsmeistari,
fimm sinnum bikarmeistari og tíu
sinnum deildarmeistari. Þessi mikla
sigurganga hófst aldamótaárið 2000
þegar Haukar urðu Íslandsmeist-
arar eftir sigur á fram í úrslitaeinvígi.
einn af lykilmönnum Hauka á þeim
tíma var Petr Baumruk, faðir adams,
en þeir feðgar hafa hjálpað Haukum
að vinna ansi marga titla.
„Það voru góð kaup hjá Þorgeiri
Haraldssyni [formaður handknatt-
leiksdeildar Hauka] að fá pabba og
svo mig,“ sagði adam og hló. Petr
kom hingað til lands árið 1990 eftir
að hafa notið mikillar velgengni
með Dukla Prag í ættlandinu, tékkó-
slóvakíu.
eins og að hafa annan þjálfara
Petr lék með Haukum til ársins 2001
og um áratug seinna tók sonurinn
við keflinu. Petr er þó alltaf nálægur
en hann starfar í íþróttahúsinu á
ásvöllum og fylgist vel með öllu sem
þar fer fram.
„Maður fær aldrei frið heima,“
sagði adam í léttum dúr, aðspurður
hvort pabbinn væri að segja honum
til eða skamma hann. „ef mann vant-
ar ráð getur maður leitað til hans.
en hann kann líka að róa sig niður
og ef hann sér að ég vil ekki tala um
handbolta talar hann ekki um hand-
bolta. Þetta er eins og að hafa annan
þjálfara heima.“
adam segir margt líkt með þeim
feðgum á vellinum enda spila þeir
sömu stöðu, sem rétthent skytta.
„Hann var kannski aðeins grimm-
ari í vörninni. Ég á eftir að vaxa þar,“
sagði adam. „en helsti munurinn er
að hann var meira í gólfskotunum
í sókninni en ég meira í uppstökk-
unum og að skjóta fyrir utan.“
adam segist ekki hafa fundið fyrir
aukinni pressu á sér vegna þess hver
faðir hans er.
„auðvitað er einhver pressa á
manni en ég hugsa ekki um það. Ég
reyni bara að vera ég sjálfur,“ sagði
adam að lokum.
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvi@frettabladid.is
1 6 . M a r s 2 0 1 6 M i Ð V i K U d a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð
sport
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
C
7
-F
9
5
0
1
8
C
7
-F
8
1
4
1
8
C
7
-F
6
D
8
1
8
C
7
-F
5
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K