Fréttablaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Í gær voru 45 ár síðan heimsbyggðin varð vitni að einu krúttlegasta dæmi þess hvernig samtakamáttur Íslendinga á góðum degi getur lyft grettistaki. Rétt fyrir klukkan eitt, fimmtudaginn 4. mars árið 1971, sat hópur Íslendinga í sal uppboðsfyrirtækisins Sotheby’s í London með öndina í hálsinum. Á herðum þeirra hvíldi mikil ábyrgð. Þeir voru komnir alla leið til höfuðborgar Bretlands til að kaupa síðasta uppstoppaða geirfuglinn í einkaeigu fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Geirfuglinn hafði dáið út rúmri öld fyrr. Aðeins 80 upp- stoppaðir geirfuglar voru til í heiminum. Af þeim voru 79 í eigu safna víða um heim. Líklegt þótti að þetta væri sá síðasti sem yrði nokkurn tímann til sölu. Stuttu fyrir uppboðið í London kom upp sú hugmynd að hefja landssöfnun hér á landi til að fjármagna kaupin og færa geirfuglinn heim. Undirtektir almennings voru ótrúlegar. Á aðeins fjórum dögum safnaðist myndarleg upphæð. En margir vildu eignast gripinn. Gæti íslenska sendinefndin boðið betur en Du Pont fjölskyldan, ein ríkasta fjölskylda Bandaríkjanna? Ófleygur í útrýmingarhættu Geirfuglinn var stór og álkulegur fugl af svartfuglaætt sem gat ekki flogið. Hann lifði við strendur Norður-Atlantshafs, meðal annars á Íslandi. En á 18. öld fór að halla undan fæti. Fuglunum fór snarfækkandi vegna ofveiði. Geirfuglinn var kjötmikill og auðvelt var að handsama hann svona ófleygan. Það gerði geirfuglinum enga greiða að lenda í því að komast í útrýmingarhættu. Vinsældir hans einfaldlega jukust – allir vildu eignast uppstoppaðan geirfugl áður en það yrði of seint. Síðustu tveir geirfuglarnir voru veiddir í Eldey suður af Reykjanesi sumarið 1844. Hrópað hátt og snjallt „Andrúmsloftið var nánast sem rafmagnað,“ sagði Valdi- mar Jóhannesson, framkvæmdastjóri geirfuglssöfnunar- innar, í samtali við Morgunblaðið eftir uppboðið árið 1971. „Blaðamenn voru fjölmennir og flestir Íslendingar sem búsettir eru í London voru viðstaddir.“ Fyrsta boð í fuglinn var 500 sterlingspund. „Töluverð spenna var i loftinu og fólk hafði á tilfinningunni að eitt- hvað mikið stæði til,“ sagði Valdimar. En fljótt tók að draga úr bjartsýni íslensku sendinefnd- arinnar. Fulltrúi Du Pont fjölskyldunnar virtist staðráðinn í að hreppa fenginn. „Þegar komið var upp í sex þúsund pund fór Du Pont maðurinn allt í einu upp í átta þúsund pund,“ sagði Valdimar. „Þetta gerði hann ekki eins og venjan er með sérstakri merkjasendingu, heldur stóð upp og hrópaði hátt og snjallt: „Ég býð átta þúsund pund.““ En Íslendingarnir hugðust ekki gefast upp. Þeir buðu níu þúsund pund. „Þegar okkur var sleginn fuglinn dönsuðu landarnir stríðsdans og blaðamenn stormuðu að okkur.“ Séríslenskt snarræði Nú, 45 árum síðar, er aftur þörf á að við Íslendingar stillum saman strengi og björgum gersemum sem við erum við það að glata. Í byrjun vikunnar bárust fréttir af því að Íslandsbanki hefði gefið út ársreikning sinn á ensku. „Við lítum svo á að það eigi að vera hægt að nota íslensku til alls,“ sagði Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar, í samtali við Fréttablaðið. Mikið hefur verið rætt um stöðu íslenskunnar síðustu misseri. Eftir því sem talandi tæki á borð við snjallsíma verða fyrirferðarmeiri, því meiri fótfestu nær enskan. Er það mat 200 evrópskra sérfræðinga sem greint hafa stöðu 30 Evrópumála að íslenska sé í næstmestri útrýmingar- hættu í stafrænum heimi á eftir maltnesku. Árið 1971 sýndum við af okkur séríslenskt snarræði og björguðum „síðasta geirfuglinum“. Það var þó því miður eftir að tegundin dó út. Geirfuglinn er nú aðeins safngripur. Það stefnir allt í að íslenskan hljóti sömu örlög. En það er ekki orðið of seint að gera eitthvað í málinu. Ef allir taka höndum saman – einstaklingar, fyrirtæki og stjórnvöld – er allt hægt. Sýnum samtakamáttinn. Látum íslenskuna ekki enda sem safngrip. Íslenskur stríðsdans í Sotheby’s Sjálfsagt er að styðja bænd- ur til að mæta breytingum meðan þær ganga yfir. En eðlileg krafa hlýtur að vera, að veðjað sé á framtíðina – ekki for- tíðina A ldrei í sögunni hefur verið betra tækifæri til að rjúfa vítahring búvöru-samninga. Í mannsaldur hafa slíkir gerningar fest sveitafólk í fjötrum fátæktar og ruglað neytendur í ríminu. Fólk sem kaupir í matinn veit ekki sitt rjúkandi ráð. Sumt er meira og minna búið að borga með sköttum. Annað greiðist fullu verði við búðarkassann. Verðmiðinn í kjörbúðinni segir enga sögu. Venjulegt fólk hefur ekki tíma til að rýna í flókna samninga. Það hefur engar forsendur til að átta sig á hvað er hagstætt að kaupa í kjötborðinu og hvað ekki. Marktækur verðmiði er grundvöllur upplýstra innkaupa. Hann á að ráða valinu úr hillum kjörbúð- anna. Þar á samanburður verðs og gæða að fara fram. Sívaxandi ferðamannastraumur hrópar á upp- stokkun í sveitum. Tækifærin til arðbærrar og skapandi fjárfestingar blasa við. Sveitirnar sárvantar vinnufúsar hendur, sem geta tryggt dreifða byggð í landinu á heilbrigðum forsendum. Þar eru tækifæri. En stjórnvöld og bændaforysta bregðast við með því að binda vinnuaflið á klafa fortíðar. Ólarnar eru hertar þannig að ekki einu sinni stjórnvöld fram- tíðarinnar geta leyst hnútana. Flest eigum við rætur í sveitum og viljum blóm- lega byggð um land allt. Þess vegna hafa kynslóðirn- ar umborið augljóst óhagræði í landbúnaðarkerfinu af ótrúlegu örlæti. Meirihluti fólks hefur vitandi vits stutt til valda stjórnmálaöfl sem staðið hafa vörð um óbreytt kerfi. Það sá ekki aðra kosti í stöðunni. Tiltölulega fáir andæfðu. En tímarnir eru breyttir. Æ ljósara verður að óbreytt ástand þjónar fáum og kallar á óþarfa stöðnun á landsbyggðinni, sem á bjarta framtíð ef tækifærin eru nýtt. Sjálfsagt er að styðja bændur til að mæta breyt- ingum meðan þær ganga yfir. En eðlileg krafa hlýtur að vera, að veðjað sé á framtíðina – ekki fortíðina. Sveitabýli eru einkafyrirtæki og bændur, karlar og konur, sjálfstæðir atvinnurekendur. Það er holur hljómur í tali um matvælaöryggi í þessu samhengi. Ísland er matarkista. Við erum örþjóð, sem veiðir meiri fisk en nokkur önnur þjóð miðað við fólks- fjölda. Almennt eru bændur framúrskarandi vinnuafl. Í þeirra röðum munu vera fleiri þúsundþjalasmiðir en í öðrum stéttum. Þeir eru sjálfs sín herrar og þurfa að ganga í öll verk, líka kontórvinnu. Bændur ættu því að vera vel búnir undir vel skipulagt breytingarferli, sem smátt og smátt losar þá undan ríkisforsjánni – og þjóðina við kostnaðinn af úreltu kerfi. Til þess á fyrst um sinn að nota féð sem rennur í feluleikinn í kringum landbúnaðinn. Sveitafólk á að fá stuðning og hvatningu til að breyta fyrirtækjum sínum, laga þau að nútímanum til að sveitirnar geti mætt kröfum tímans. Í þeim efnum er erfitt að benda á eina uppskrift. En það þarf að sýna stórhug og sækja fyrirmyndir þangað sem þær eru bestar, innan lands og utan. Fjárfesting þarf að taka við af fjáraustri. Vítahringur 5 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð SKOÐUN 0 5 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 3 6 s _ P 1 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 8 K _ N Y .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A E -4 B 0 8 1 8 A E -4 9 C C 1 8 A E -4 8 9 0 1 8 A E -4 7 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 3 6 s _ 4 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.