Fréttablaðið - 05.03.2016, Page 28
Það myndast svo mikil stemming á markaðnum og það er ekki síður það sem gerir þetta svona skemmtilegt,“ segir Hlédís Sveinsdóttir.
Hún, ásamt Eirnýju Sigurðardóttur,
stendur fyrir Matarmarkaði Búrsins
sem haldinn er í Hörpu um helgina.
Markaðurinn var haldinn fyrst fyrir
fimm árum og hefur vaxið töluvert
síðan þá. Fyrst var hann haldinn í
litlu tjaldi fyrir utan sælkeraverslun-
ina Búrið en verður núna haldinn
í áttunda sinn í Hörpu. „Núna eru
þetta um 50 framleiðendur sem taka
þátt en þeir voru fimmtán fyrst. Þetta
hefur stækkað hratt, þegar við fórum
fyrst að tala um þetta þá fannst okkur
vanta þessa matarmarkaðsstemn-
ingu á Íslandi. Við kýldum bara á
þetta og héldum fyrsta markaðinn
fimm dögum seinna. Okkur óraði
ekki fyrir því þá að þetta myndi
stækka svona fljótt,“ segir Hlédís.
Á matarmarkaðnum gefst fólki
kostur á að kaupa vöru beint af fram-
leiðenda. Allar vörur sem seldar eru
á markaðnum eru framleiddar hér á
landi. Ýmislegt verður til sölu; kjöt,
fiskur, brauð, konfekt, brjóstsykur
og krydd, svo eitthvað sé nefnt. „Þor-
grímur á Erpsstöðum er til dæmis að
selja, hann býr sjálfur til ís sem hann
selur í brauðformi á markaðnum.
Ómar frá Hornafirði verður líka
þarna en hann veiðir sjálfur, verkar,
reykir og selur svo fiskinn,“ segir
Hlédís en framleiðendum sem taka
þátt hefur fjölgað mikið. „Það er mis-
munandi hvaða framleiðendur taka
þátt hverju sinni og nú er fólk farið að
mæta til að kaupa eitthvað sem það
keypti á síðasta markaði.“
Hlédís segir aukna vitund vera um
að kaupa beint frá býli, vörur sem þú
veist hvaðan koma og hvað er í þeim.
„Það er okkar að uppfræða næstu
kynslóð. Það skiptir máli hvernig er
farið með skepnuna. Það er margt í
þessu sem við þurfum að huga að.
Við viljum endilega hvetja fólk til að
koma með börn á markaðinn. Leyfa
þeim að upplifa, smakka og ræða við
þau um uppruna og innihald matar.
Við stoppum t.d. ekki matarsóun
nema að kenna þeim að bera meiri
virðingu fyrir matnum.“
Matarmarkaðurinn er opinn bæði
laugardag og sunnudag frá kl. 11-16
og aðgangur er ókeypis.
Matur beint frá býli í Hörpu
Matarmarkaður Búrsins fer fram í Hörpu um helgina. Um fimmtíu framleiðendur selja vörur sínar milliliðalaust.
Aðstandendur vilja hvetja fólk til að mæta með börn á markaðinn og leyfa þeim að kynnast uppruna vörunnar.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
8BLS
BÆKLINGURSTÚTFULLUR AF NÝJUM SJÓÐHEITUM VÖRUM!
VINNUR
ÞÚ
FIËSTA
GO
HLJÓÐK
ERFI
HEPPIN
N FACEB
OOK VIN
UR
VINNUR
FIËSTA
GO
FRÁ TRU
ST
EINA SE
M ÞARF
AÐ GERA
ER AÐ TE
LJA PÁS
KA-
KANÍNUR
Í NÝJA
BÆKLIN
G-
NUM OK
KAR OG
SMELLA
SVARINU
Á FACEB
OOK
SÍÐU TÖL
VUTEK
VORU
M AÐ
OPNA
NÝJA
LEIKJ
ADEIL
D
Í HAL
LARM
ÚLAN
UM
Þær Eirný og Hlédís héldu fyrsta matarmarkaðinn fyrir um fimm árum. Síðan þá hefur hann vaxið mikið og farið frá því að vera haldinn í litlu tjaldi yfir í að vera í Hörpunni. Fréttablaðið/StEFán
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
5 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r28 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
helgin
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
E
-8
1
5
8
1
8
A
E
-8
0
1
C
1
8
A
E
-7
E
E
0
1
8
A
E
-7
D
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K