Fréttablaðið - 05.03.2016, Page 136
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Pawels
Bartoszek
Bakþankar
Hvað sér fólk fyrir sér þegar talað er um „vonda for-eldra“? Sér fólk fyrir sér
drykkfelldan, ofbeldisfullan föður?
Sér fólk fyrir sér móður sem skilur
börnin eftir svöng meðan hún
lognast út af dópuð í einhverjum
bílskúr? Ef svo er þá hafa menn
rangt fyrir sér. Þetta eru ekki verstu
foreldrarnir.
Fólk sem betur þekkir til hefur
sagt mér að börn sem eiga „vonda“
foreldra séu gjarnan mjög meðvirk.
Þau halda yfir þeim hlífiskildi og
vilja ekki vera tekin frá þeim. Af
hverju er það? Fyrsta skýringin sem
kemur upp í hugann er að börnin
treysti því ekki að aðrir geti varið
þau og óttist hefnd þessara vondu
foreldra ef þau með einhverjum
hætti koma þeim í klandur.
„Börnin eru hrædd og vita ekki
hvað þeim er fyrir bestu. Við
verðum að verja þau,“ hugsar fólk.
En sé litið til reynslu seinustu alda
þá eru það einmitt börnin sem vita
hvað þeim er fyrir bestu. Ekki við.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið
á högum þeirra sem ólust upp á
ábyrgð hins opinbera er sorgar-
lesning. Þær eru studdar með fjölda
frásagna. Oft alltof nýlegra. Margir
þolendur sem stíga fram hér á landi
er fólk um fimmtugt.
Gamlir starfsmenn eru ekki
aðalatriðið. Það er ekki þannig að
hugmyndin hafi verið góð en vont
fólk fengist til að framkvæma hana.
Því svona var þetta alls staðar í
heiminum. Alls staðar taldi fólk sig
vera að gera vel með því að hjálpa
börnum sem ekki áttu nógu góða
foreldra. En í flestum tilfellum, þar
sem það var hægt, hefðu allir verið
betur settir ef börnin hefðu fengið
að alast upp hjá stórgölluðum
foreldrum sínum heldur en að vera
sett í umsjá hins opinbera. Því
ríkið, eins vel og það vill, er ömur-
legt foreldri.
Heimsins verstu
foreldrar
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
GSM
2.990 KR.*
1817 365.is
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til
útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
E
-3
7
4
8
1
8
A
E
-3
6
0
C
1
8
A
E
-3
4
D
0
1
8
A
E
-3
3
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K