Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Blaðsíða 15
DVSpbrt
fiMmtudagur 8. nóvembM3M1Í$
Fimmtudagur 8. nóvember 2007
Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
WEST HAM
EVERTON
14.-16.
DESEMBER
Verð á mann f tvíbýli frá
52.800 kr.
Icelandair er samstarfsaðili West Ham og býður ferðir
á alla heimaleiki liðsins (vetur. Fjölmargir leikir framundan,
s.s. á móti Man Utd, Fulham og Liverpool.
JrZjÆ
WWW.ICELANDAIR.IS
Emil Hallfreðsson
er orðaöur við
Napólí sem er sem
stendur í 7. sæti í
ítölsku A-deildinni:
LÆTURORÐ-
RÓMINN EKKI
TRUFLASIG
Emil Hallfreðsson er orðaður við
Napólí í ítölskum fjölmiðlum sem
hluti af leikmannaskiptum á milli
Reggina og Napólí. Emil segist ekki
taka mikið mark á þessum sögusögn-
um en er ánægður með að vekja at-
hygli fyrir frammistöðu sína.
„Ég las þetta svo sem bara í fjöl-
miðlum og tek ekki endilega mark á
þessum sögusögnum. En það er gam-
an að vita af því að maður vekur at-
hygli og öll umfjöllun er af hinu góða.
Ég er sáttur eins og er hjá Reggina og
ætla bara að einbeita mér að því. En
ef það kemur eitthvað upp og Regg-
ina myndi vilja láta mig fara þá kæmi
alveg til greina að skoða það," segir
Emil.
Reggina skiptí nýlega um þjálf-
ara og lét Massimo Ficcadentí róa í
stað hins 66 ára gamla Renzo Ulivieri.
„Mér hst vel á nýja þjálfarann. Hann
er með öðruvísi áherslur og æfingar.
Mér fannst hinn þjálfarinn hnn og ég
hef ekkert um það að segja. Það kom
mér svo sem ekkert á óvart að hann
var látinn fara. Gengið var ekki gott
og við höfðum ekki unnið einn ein-
asta leik af þeim níu sem við vorum
búnir að spila í deildinni. Hann var
eiginlega búinn á því. Maður var við
því búinn að hann yrði látínn fara ef
við myndum ekki vinna leikina á móti
Siena og Livorno. Slæm fr ammistaða í
þeim gerði útslagið.
Fram að þeim tveimur leilqum
vorum við ekkert búnir að vera lélegir
en þama vorum við slakir. Þetta hef-
ur reynt á og það var enn ein raunin
sem við lentum í þegar Napóh jafnaði
á mótí okkur á síðustu mínútu í síð-
asta leik.
Það er svakalega góð stemning á
vellinum hjá Napólí. 45 til 50 þúsund
áhorfendur og mér gekk vel. Það var
mjög gaman."