Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007
Sjbort PV
ÍÞRÓTTAMOLAR
ALONSO AFTURTIL RENAULT?
Talið er að Fernando Alonso muni snúa
aftur til Renault eftir að hann yfirgaf
McLaren (fússi á dögunum. Breska
blaðiðThe
Guardian segir
frá því að
Renault hafi
boðið Alonso
samning sem
tryggirhonum
um1,2 milljarðaí
laun á ári. Haft er
eftir heimildar-
manni blaðsins
að Flavio Briatore, yfirmaður Renault,
hafi rætt við styrktaraðila um að
fjármagna laun ökuþórsins knáa. Meðal
þeirra fyrirtækja sem nefnd hafa verið er
símafyrirtækiðTelmex, sem er í eigu
Mexikóans Carlos Slim. Slim þessi er
þriðji ríkasti maður heims samkvæmt
tlmaritinu Forbes.
NAKAJIMATIL WILLIAMS
Formúlu 1 lið Williams hefurtilkynntað
hinn 22 ára Japani Kazuki Nakajima
muni taka stöðu Alexanders Wurz á
næsta ári. Wurz
hefur ákveðið að
hætta keppni í
Formúlu 1 en
Nico Rosberg
mun aka áfram
meðWilliamsá
næsta ári.„Kazuki
hefur staðið sig
vel á undanförn-
um árum. Hann
er hraöur og hefur rétta hugarfarið til að
verða góður Formúlu 1 ökumaður. Það
er mér mikil ánægja að tilkynna að Nico
mun verða áfram hjá liðinu, þriðja árið í
röð, eftir að hafa staðið sig vel á þessu
ári," segir Sir Frank Williams, yfirmaður
Williams.„Þetta er toppurinn á frábæru
ári hjá mér. Það er mikil vinna fyrir
höndum fram að næsta tlmabili en ég
mun gera allt til að sýna Williams og
Toyota að þeir gerðu rétt með að fá
mig," segir Nakajima. Faður hans heitir
Satoru Nakajima og var eitt sinn
Formúlu 1 ökumaður.
KUTSCHKO BERSTVIÐIBRAGIMOV
Allt bendir til að Wladimir Klitschko og
Sultan Ibragimov muni berjast um tvo
heimsmeistaratitla (þungavigt
hnefaleikanna (
Madison Square
Garden í New
York, 23.febrúar.
Samningavið-
ræður hafa
staðið yfir að
undanförnu.
Aðeins á eftir að
ganga frá
smáatriðum og
búist er viö að endanleg niðurstaða fáist
á næstu dögum.„Þar sem báðir aðilar
vilja berjast náum við að klára dæmið,"
segir Leon Margules, lögmaður
Ibragimovs. Klitschko ertalinn besti
þungavigtaboxarinn (heiminum (dag
og Ibragimov sigraði gamla jaxlinn
Evander Holyfield í síðasta mánuði.
TEIKNINGAR KLÁRAR
Skipuleggjendur Ólympluleikanna I
London 2012 birtu (gær teikningar af
Ólympíuleikvanginum sem fyrirhugað
er að byggja. Völlurinn mun taka 80
þúsund manns I sæti og kostnaöurinn
er um 61 milljarður króna. Eftir
ólympfuleikana mun hann taka 25
þúsund áhorfendur.„Eftir ólympluleik-
anna veröur honum breytt (völl sem
mun ekki aðeins hýsa frjálsfþróttamót
og aöra stórviðburði ((þróttunum,
heldur einnig til annarra nota," segir
Tessa Jowell, formaöur Ólymplunefnd-
arinnar (London. West Ham hefur sóst
eftir þvl að kaupa völlinn eftir
ólymptuleikana en Ken Livingstone,
borgarstjóri í London, segir að völlurinn
verði ekki seldur.„Viö gerðum
samkomulag um að þetta yrði völlur
sem gæti nýst sem flestum og við
munum standa viö þaö samkomulag.
Hvað varðar West Ham, þá höfúm viö
fundið svæði sem hentar þeim mun
betur," segir Livingstone.
Liverpool sýndi sannkallaðan stjörnuleik gegn Besiktaz þar sem liðið hreinlega fór
hamförum og skoraði átta mörk.
Markasúpa Liverpool skoraði átta
mörk gegn Besiktaz og Crouch,
Benayoun og Gerrard gerðu sex
þeirra. Arbeloa, sem er hér lengst til
vinstri, spilaði einnig vel í leiknum.
Þ(ÁTTA)SKIL HJÁ
UVERP00L?
■=4.
VIÐAR GUÐJÓNSSON
bladamaður skrifar: vidar&dv.ls
Hvaðan kom sá eldmóður og
áræðni sem einkenndu leik Liver-
pool gegn Besiktaz? Var það end-
urkoma Peters Crouch? Var það
frábær frammistaða Javiers Mas-
cerano eða Jussis Benayoun? Eða
var það sú staðreynd að Liverpool
kom inn í leikinn með baldð upp
við vegg, tilbúið í að leggja allt und-
ir til þess að sækja til sigurs? Lík-
lega voru þetta allt samverkandi
þættir en eftir frábæran 8-0 sigur
Liverpool á Besiktaz sönnuðu leik-
menn liðsins að það getur spilað
skemmtilega knattspyrnu og getur
skorað mörk.
Áttunda mark liðsins einkenndi
þann vilja sem bjó í liðinu í þessum
leik. Sjö mörkum yfir pressaði Ryan
Babel varnarmann Besiktaz fram-
arlega á vellinum með þeim afleið-
ingum að varnarmaðurinn spark-
aði knettinum í Babel og þaðan fór
knötturinn í netið.
Tryggði Crouch stöðu sína?
Þó Besiktaz hafi spilað liræðilega
verður ekkert tekið af Liverpool sem
átti 30 marktilraunir á móti fjórum og
hélt knettinum innan liðsins 60 pró-
sent af leiktímanum.
Peter Crouch sýndi hvað í honum
býr í leiknum, því auk tveggja marka
var hann sífelld ógn og tók til sín leik-
menn. Við það skapaðist meira pláss
fyrir samherja hans. Hann hefur lít-
ið fengið að spila að undanfömu en
yfirleitt þegar hann kemur inn á sýn-
ir hann hvað í honum býr. Ef Benitez
ákveður að spila honum ekki gegn Ful-
ham um helgina væri það afar skrítin
álcvörðun. Sóknarleilcur Liverpool hef-
ur verið slappur í deildinni að undan-
fömu og tilvalið væri fýrir Benitez að
nýta sér þann meðbyr sem endurkoma
Crouch í byrjunarliðið færði Liverpool.
Benitez hefur hins vegar margsýnt
það að hann tekur ákvarðanimar, ekki
fjölmiðlar. Femando Torres er óðum að
ná sér af meiðslum og líklegt að hann
verði í byrjunarliðinu gegn Fulham um
næstu helgi. Voronin stóð sig einnig vel
í leiknum gegn Besiktaz og því stendur
valið á milli Crouch og hans.
Benitez vildi ekki taka undir
með fréttamönnum sem töldu end-
urkomu Crouch vera lykilinn að
sigrinum. „Liðsheildin skóp þenn-
an sigur. Það var gaman að sjá til
Crouch en Voronin var einnig frá-
bær. Við megum ekki gleyma því að
kantmenn og varnarmenn spiluðu
einnig vel í þessum leik. Við héld-
um hreinu og það skiptir miklu,"
sagði Benitez sem telur að fyrsta
markið hafi skipt gríðarlega miklu
máli. „Við höfum skapað okkur færi
að undanförnu, en það var auðvelt
að sjá að þegar fyrsta markið
kom breyttist allt. Sjálfstraustið
og hreyfingin urðu betri eftir það,
allir vildu fá boltann og leikmenn
mínir voru grimmir að sækja í opin
svæði," segir Benitez.
Vonarneisti
Liverpool eygir von um að kom-
ast upp úr riðlinum eftir þennan
frábæra sigur. En eftir stendur að
liðið er með fjögur stig þegar tveir
leikir eru eftir af riðlinum. Mars-
eille er með 7 stig og Porto 8. Með
sigri í báðum lokaleikjum sínum,
gegn Porto á heimavelli og Mars-
eille á útivelli, kemst Liverpool allt-
[LIVERP00I.
Met í Meistaradeild
Dagsetning
Lokatölur
6. nóv.2007 Liverpool - Besiktas 8-0
10. des. 2003 Juventus -
Olympiakos 7-0
23. okt. 2007 Arsenal - Slavia Prag 7-0
10. apr. 2007 Manchester United
- AS Roma 7-1
17.mars1993 OlympiqueMarseille
- CSKA Moskva 6-0
26.Sept2000 Leeds United
- Besiktas 6-0
25 sept. 2002 Real Madrid
- RC Genk 6-0
Heimild: Infostrada Sports
Mynd: Getty Images C GRAPHIC NEWS
Liverpool vann stærsta sigur sem unnist
hefur í Meistaradeildinni þegar liðið lagði
Besiktas 8-0 á þriðjudag. Liverpool á einnig
stærsta sigursem unnist hefur í Evrópu-
keppni þegar liðið lagði Strömsgodset
11-0 í Evrópukeppni bikarhafa árið 1974.
af upp úr riðlinum og Benitez hef-
ur margsýnt það að hann er klókur
þjálfari í Meistaradeildinni. Næsti
leikur Liverpool er gegn Porto á An-
field. „Porto þarf að koma hingað á
Anfield og við vitum að þeir verða
hræddir við okkur. Þeir eru reynslu-
mikið lið en við munum setja mikla
pressu á þá. Ég hef alltaf haft trú á
því að við myndum komast áfram
úr þessum riðli," sagði Benitez kok-
hraustur.
Keflavík og Haukar eru efst og jöfn í Iceland Express-deild kvenna eftir spennusigra:
HAUKASIGUR í FRAMLENGINGU
Tveir hörkuleikir fóru fram í Iceland
Express-deild kvenna í körfúbolta í gær
þegar Keflavík vann KR 69-66 í Kefla-
vík og Haukar unnu góðan útisigur á
Grindavík 90-88 eftir framlengdan leik.
Einnar mínútu þögn var fýrir báða leik-
ina. Það var gert til að heiðra minningu
Mörtu Guðmundsdóttur sem lést á
mánudag. Marta lék með Grindavík og
Keflavík og lét ekki krabbamein stöðva
sig í að ganga á Grænlandsjökul. Allur
aðgangseyrir að leik Grindavíkur og
Hauka sem og Grindavíkur og Skalla-
gríms í Iceland Express-deild karla í
kvöld mun renna ósldptur til fjölskyldu
Mörtu.
Kiera Hardy var stigahæst í liði
Hauka. Hún skoraði 40 stig, annan leik-
inn í röð, en hún skoraði einnig 40 stig
gegn Keflavík á dögunum. Þá setti hún
niður tíu þriggja stiga körfur og í gær
voru það átta þriggja stiga skot hennar
sem fóru rétta leið.
Hjá Grindavík var bandaríska stúlk-
an Joanna Skiba stigahæst með 32 stig
og landa hennar Tiffany Roberson kom
næst með 31 stig.
Keflavík er enn taplaust í deildinni.
Sigur liðsins á KR í gær var fimmti sig-
urleilcur liðsins í röð og liðið er ekki
árennilegt, enda valinn maður í hverri
Stöðu. dagur@dv.is
ICEL. EXPRESS D. KVENNA
Grindavík Keflavik - Stafian - Haukar KR 88-90 69-66
Lið L U T M St
1. Keflavík 5 5 0 467:341 10
2. Haukar 6 5 1 500:467 10
4.Grindav(k 5 3 2 410:358 6
3.KR 5 3 2 404:331 6
5. Fjölnir 5 1 4 311:391 2
6. Hamar 4 0 4 262:329 0
7. Valur 4 0 4 238:375 0
It'KO
40 stig annan leikinn í röð
Kiera Hardy skoraði 40 stig fyrir
Hauka gegn Keflavíká dögunum
og endurtók leikinn í gær.