Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2007, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 Fókus DV HVERT ER LAGIÐ? „í hugsunum mínum hef ég séð reykhringi handan trjánna" Nll3dd3Z 031Q3W N3AV3H OlAVMdlVlS :dVAS Öll ljóðin í skóginum eruvinir Bókaforlagið Bjartur og Forlagið standa fyrir upplestrarkvöldi á Næsta bar í kvöld með yfirskrift- inni Öll ljóðin í skóginum eru vinir. Þar munu ljóðskáld for- laganna tveggja - og leikararn- ir Hjalti Rögnvaldsson og Tinna Hrafnsdóttir - lesa upp úr nýjum ljóðabókum. Höfundamir sex eru Gerður Krismý, Kristín Svava Tómasdóttir, Sigurbjörg Þrastar- dóttir, Sjón, Steinunn Sigurðar- dóttir og Þórarinn Eldjárn. Kynnir kvöldsins verður hinn geðþekki útvarpsmaður Haukur Ingvarsson, einn umsjónarmanna menningar- þáttarins Víðsjár. Dagskráin hefst klukkan hálf níu, stundvíslega, og stendur til tíu. Ragna / • / tn symriiS Ragna Róbertsdóttir opnar í dag einkasýningu sína, Landslag fyrir hina og þessa, í gallerí i8. Verkin, Ísem öll eru frá þessu ári, hverfast annars vegar um náttúruna og tím- ann, hins vegar um náttúruna og hið manngerða. Tvö verka Rögnu á sýningunni eru tileinkun til listamanna sem hafa haft mótandi áhrif á hana, Guðjóns Samúelssonar og Donalds Judd. Ragna er meðal helsm myndlist- armanna íslendinga og hafa verk hennar verið sýnd afar víða, meðal annars í öllum helstu söfnum og sýningarsölum á íslandi og á sýn- ingum alls staðar á Norðurlöndun- um, í Skodandi, Bandaríkjunum, Rússlandi, Þýskalandi, Spáni, Kína ogjapan. Aska seld til Þýskalands og Póllands Bókaforlagið Veröld hefúr geng- ið ffá samningum um útgáfú á væntanlegri glæpasögu Yrsu Sig- urðardóttur, Ösku, í Þýskalandi og Póllandi. Aska er komin á færi- bandið í Prentsmiðjunni Odda og verður henni dreift í verslanir nú í nóvember. Þá hefur útgáfuréttur- inn á Þriðja tákninu verið seldur til Tyrklands. Þar með er ljóst að bók- in kemur út á 31 tungumáU en eng- in íslensk skáldsaga eftir núlifandi rithöfund er væntanleg á jafnmörg- um erlendum tungumálum og Þriðja táknið. Aska er þriðja glæpa- . saga Yrsu. . Sýning á verkum Margrétar H. Blöndal, Þreifaö á himnunni, veröur opnuð í Hafnar- húsi Listasafns Reykja- vikur í dag. Listakonan segir himnur heimsins vera margar og ná víða. Margrét H. Blöndal myndlistarkona „Þessi viðfangsefni geta verið fólk, hugsanir, aðstaða eða hvað sem maður kljáist við á hverri stundu." „Sýningin fjallar í rauninni um hvar maður staðsetur sig og um mörkin á milli manns og viðfangs- efna. Þessi viðfangsefni geta verið fólk, hugsanir, aðstaða eða hvað sem maður kljáistvið á hverri stundu," segir Margrét H. Blöndal myndlist- arkona sem opnar í dag sýningu í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Sýningin er í tveimur sölum - í öðr- um eru þrívíð verk sem listakonan vann beint inn í rýmið en í hinum eru teikningar. Himnur heimsins Spurð um ástæðu þessarar tví- skiptingar sýningarinnar segir Mar- grét að sér finnist áhugavert að hafa tvær ólíkar nálgunaraðferðir á áþekk viðfangsefni. Sýningin heitir Þreif- að á himnunni. Hvers vegna? „Orð- ið „þreifa" á íslensku er notað yfir það að leita að einhverju, þreifa sig áfram, og fjallar hér kannski um það að fóta sig í tilverunni," segir Margrét . „Himna er fallegt orð og hún nær ffá þeirri örfínu sem ver líffæri okk- ar alla leið til himins. Og himnurn- ar eru margar. Það er til dæmis ein í kringum mig, önnur kringum þig og þína og ósonlagið er líka himna." Skúlptúrar Margrétar eiga það sameiginlegt að bera merki með- höndlunar; þeir hafa verið mótað- ir, bundnir, vafnir, rúllaðir, kreistir, teygðir, beygðir, krumpaðir, rifnir, brotnir eða settir saman. Og hún seg- ir að uppstilling hlutanna í sölunum endurspegli athugun hennar á hverj- um hlut fýrir sig en einnig sem hluta af heild. „Sýningin samanstendur af mismunandi þáttum og hver þáttur hefur áhrif á annan." Hefur sýnt víða Margrét hefur sýnt víða, bæði hér á landi og erlendis síðan 1994. Á þessu ári hefur hún haldið einka- sýningar í Solvent Space í Rich- mond í Bandaríkjunum, Mother's Tank Station í Dyflinni á írlandi og í Gallery Alessandra Bonomo í Róm á ítalíu. Meðal fjölda viðurkenninga sem Margrét hefur hlotið er tilnefn- ing til Sjónlistaverðlauna fslands í fyrra. Spurningin erkjánaleg, en blaða- maður lætur samt vaða og spyr lista- konuna hvort hún stefni ekki að því að fá „að minnsta kosti" tilnefningu fyrir Þreifað á himnunni. „Ég skil ekki hvernig væri hægt að stefna að tilnefningu fyrir verk. Hvert verkefni er glíma og meðan á því stendur er sú glíma aðalatriðið. Hver eftirleik- urinn verður kemur í ljós. Alla vega eru tilnefningar ekki drifkraftur." Sýningin verður opnuð í dag klukkan 17 og stendur til 31. desem- ber. kristjanh@dv.is KAROKIM ATSTOFA MEÐ TÓNLISTARMYNDBÖND Það er þónokkuð að gera á Thaishop matstofu við Lyngháls þegar ég geng þar inn í hádeginu á miðvikudegi. Staðurinn er aug- 1SKYNDI ljóslega vinsæll og kúnnahópur- inn er fjölbreyttur. Þarna eru ungir sem gamlir, innlendir sem erlendir, iðnaðarmannaklæddir sem hvers- dagslega klæddir viðskiptavinir. Umhverfið er snyrtilegt og notalegt en um leið nett hallærislegt. Hátt til lofts og vítt til veggja. Svið og kar- ókígræjur. Flatskjár og voldugir há- á mælikvarða veit- Reyndar er þetta ekki eiginlegur „veitingastaður" heldur „matstofa", eins og kemur fram í heiti staðarins. Það skýrir líklega það fýrirkomulag að aðeins er hægt að velja á milli fimm rétta og tveggja útfærslna á skömmtunum. Annað hvort að fá tvo rétti og borga 850 krónur fyrir, eða að fá þrjá rétti og greiða þá 1000 krónur. Mér skildist á konunni sem skammtaði matinn að ef síðamefndi kosturinn er valinn væri skammtur- inn eitthvað stærri. Ef það er ekki rétt slálið hjá mér þá er það væntanlega í berhöggi við lýðræðið sem við þykj- umst búa við hér á landi, að mkka 150 krónur fýrir fleiri valkosti. Eða hvað? Ég fékk mér tvo rétti, núðlur og kjúkling í karrí. Afgreiðslan gekk hratt og vel fyrir sig. Konan sem sá um matinn var brosmild og indæl. Gjaldkerinn hefði mátt bæta aðeins íbrosvipruna. f bæði skiptin sem ég hef kom- ið á Thaishop hefur Skjár einn ver- ið í gangi á flatskjánum þarna inni, lækkaður í botn. Tónlistarmynd- bönd em kannski ekki alveg það sem maður vill góna á yfir hádeg- ismatnum. Á hinn bóginn jákvætt að hljóðið fylgir ekki með heldur austurlensk tónlist í takt við mat- inn. Sem sem var fí'nn (en ekki alveg magafylli). Spurning með hina rétt- ina þrjá. Smakka þá næst. Og prófa jafnvel karókíið. talarar, alla ýúrgastaða. Matstofa KRISTJÁN HRAFN GUÐMUNDSSON fórá Thaishop matstofu HRAÐI: ★★ VEITINGAR VIÐMÓT: UMHVERFI:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.